Fréttablaðið - 15.08.2015, Page 42

Fréttablaðið - 15.08.2015, Page 42
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 LISTAMAÐURINN Elli hefur alla tíð haft áhuga á kvikmyndagerð, hjólabrettum og tónlist. Hann segir að þetta smelli allt mjög vel saman. MYND/ANTON SHADES OF REYKJAVÍK Þeir eru flottir, félagarnir, sem nú hafa unnið skemmtilegt myndband ásamt indversku prinsessunni Leoncie. MYND/ANTON Leoncie. Hann á áritað plakat frá henni og sýndi mér ýmislegt stöff sem enginn annar á. Rútur Skæringur er engum líkur, hann er menntaður kvikmyndatöku- maður, og er einstakur á allan hátt. Hann safnar ótrúlegustu hlutum og skilur til dæmis mjög vel að Leoncie er með einstakan stíl sem fáir aðrir átta sig á. Honum fannst því mjög gaman að vinna að þessu,“ segir Elli enn fremur. Þegar hann er spurður hvort hann sé þá sjálfur orðinn aðdáandi Leoncie númer tvö svarar hann því játandi. „Það er ánægjulegt að myndbandið hafi vakið svona mikla athygli. Von- andi vekur það athygli á öðru sem við höfum gert.“ BRETTASTRÁKUR Hljómsveitin Shades of Reykja- vík var með frumsýningarpartí á Loftinu á miðvikudagskvöldið þar sem myndbandið var sýnt. „Það varð allt brjálað þegar víde- óið fór í gang, góð mæting og mikill stemmari í loftinu. Þetta heppnaðist frábærlega. Með- limir Shades eru, fyrir utan Ella, Shaman Shawarma (Emil Andri Emilsson), hann býr til sándið og rappar, Prins Puffin (Arnar Guðni Jónsson) rappari er æskuvinur Ella og þeir hafa gert bretta- myndir saman. Síðan er Her- mann Bridde pródúser og Máni Kjartansson sem flúrar fólk uppi á sviði. „Við breyttum örlögum hans, útveguðum tattúvél og hvöttum hann til að flúra. Nú er hann að fara að læra þetta fag og ætlar alla leið.“ Elli er brettakappi og hefur verið á hjólabretti frá unga aldri. Hann keppir á hverju ári í Norðurlandakeppni sem fram fer í Kaupmannahöfn. „Ég stofnaði Shades of Reykjavík fyrst sem hjólabrettagrúppu. Við vorum strákar á hjólabrettum sem bjuggum til myndbönd. Ég valdi stráka með mér sem hafa hæfi- leika á sviði kvikmyndunar og tónlistar. Við byrjuðum fljótlega að búa til leikna sketsa. Ég er alinn upp við teknó-tónlist og er mjög hrifinn af henni en síðan hefur rappið og hipphopp-tón- listin bæst við. AFINN VAR DJASSARI Elli er sjálfmenntaður á sínu sviði. Hann hefur unnið töluvert við kvikmyndagerð, til dæmis hjá RÚV og Pegasus. Hann gerði sína fyrstu brettamynd sumarið áður en hann fór í áttunda bekk. „Þetta byrjaði með myndbands- vél sem ég fékk í fermingargjöf,“ segir hann. Fyrsta brettamyndin tókst svo vel að hann framleiddi strax þrjár í viðbót sem voru vin- sælar á sínum tíma. „Hjólabretti og tónlist fara einstaklega vel saman og sameinast í götulist,“ segir Elli. Þegar hann er spurður um tónlist í fjölskyldunni kemur í ljós að djassleikarinn Viðar Al- freðsson, sem var skólastjóri tónlistarskólans á Mývatni, var afi hans. „Hann var þekktur fyrir að vera orkumikill á sviðinu, rétt eins og ég.“ Elli segist í eðli sínu vera mjög rólegur þrátt fyrir líflega sviðs- framkomu. „Ég hef hins vegar alltaf sankað að mér ofvirkum vinum sem hafa góð áhrif á mig.“ GENGINN ÚT Sambýliskona Ella er Karen Elva Lundberg en þau eiga átta mánaða gamlan son, Annel Elvis Lundberg. „Við vildum hafa nafn sem gæti gengið í Skandinavíu. Ég hef oft dvalið í Kaupmannahöfn í lengri tíma til að stunda bretti og gert mynd- band þar. Fólk getur fundið það undir Shade of Reykjavík cph 2013.“ Strákarnir í Shades of Reykja- vík eru nýbúnir að smíða stúdíó þar sem þeir vinna allt sjálfir. „Ný plata er í vinnslu og margt fleira spennandi í gangi hjá okkur. Við erum alltaf að búa til músík og fleiri tónlistarmyndbönd eru á leiðinni,“ segir Elli. Þeir munu koma fram á Iceland Airwaves. „Við seljum fatnað undir okkar merkjum til að fjármagna nýju plötuna og svo getur fólk séð hvað fleira er að gerast hjá okkur á Facebook-síðunni minni – Elli Grill.“ Þegar Elli er spurður hvort hann eigi eftir að koma fram með Leoncie, svarar hann því játandi. „Það á eftir að koma á óvart fljótlega en ég get ekki sagt frá því strax.“ SILFURTENNUR FRÁ TEXAS Shades of Reykjavík er með þrjú tónlistarmyndbönd á Youtube sem hafa fengið meira en sjötíu þúsund áhorf. „Ég hef fulla trú á að við séum að slá í gegn,“ segir Elli og bætir við að fólk víða um heim horfi á myndböndin. Eitt vinsælt vídeó er til dæmis Górillu Grill sem vakti mikla athygli. Það hefur sömuleiðis vakið at- hygli að Elli er með silfurtennur. Hann hefur mjög gaman af litrík- um búningum og hefur sinn eigin stíl. Nafnið Grill tengist þessum silfruðu tönnum. „Gulltennur kallast grillz á ensku svo ég pant- aði mér gull- og silfurtennur frá Texas í Bandaríkjunum. Ég sendi mót út og fékk góma til baka. Þetta eru eins og sogskálar sem festast við tennurnar sem síðan er hægt að taka út,“ útskýrir hann. Elli Grill er sem sagt ekki alltaf með silfraðar tennur. „Við pælum mikið í búningum, fötum og öllum fylgihlutum. Einnig í húsgögnum og umhverfi,“ segir hann. „Við höfum mikinn metnað fyrir því sem við erum að gera og ætlum að halda því áfram,“ segir þessi litríki og skemmtilegi listamaður. Þess má geta að Shades of Reykjavík er með útvarpsþátt á föstudagskvöldum kl. 21-23 á FM Extra á 101,5. ■ elin@365.is 1 4 -0 8 -2 0 1 5 2 1 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 2 K _ n y .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 C 8 -C A 6 0 1 5 C 8 -C 9 2 4 1 5 C 8 -C 7 E 8 1 5 C 8 -C 6 A C 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 1 2 0 s C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.