Fréttablaðið - 15.08.2015, Síða 44
FÓLK|HELGIN
NORÐLENSK HÖNNUN Helga Björg Jónasdóttir er sýningarstjóri NOT, samsýningar norðlenskra hönnuða í Ketilhúsinu á Akureyri.
MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON
Fjöldi norðlenskra vöruhönnuða á sýningu Epal á HönnunarMars í fyrra vakti athygli Akur-eyrarstofu og Listasafns Akureyrar, en af þeim
þrjátíu hönnuðum sem sýndu í Epal voru fimm frá
Akureyri. Í framhaldinu kviknaði sú hugmynd að
setja upp sýningu norðlenskra hönnuða á heima-
slóðum.
Helga Björg Jónasdóttir er sýningarstjóri.
„Ég ákvað strax að búa til nýtt verkefni í kringum
þetta, setja ekki bara aftur upp sömu hluti og sýnd-
ir voru í Epal heldur leggja sérstaka áherslu á bæði
hönnun og framleiðslu á heimaslóð. Hönnuðirnir
vinna með fyrirtækjum á svæðinu og búa til nýjar
vörur fyrir þessa sýningu,“ útskýrir Helga.
Í upphafi verkefnisins tóku níu hönnuðir þátt.
Fjórir heltust úr lestinni og eftir standa fimm, þeir
sömu og sýndu í Epal í fyrra. „Við ákváðum því að
sýna einnig hlutina sem voru á sýningunni í Epal,“
segir Helga.
Yfirskrift sýningarinnar er Húsa-gagn, eða nytja-
hlutur á heimili í víðum skilningi. Að sýningunni
standa Björg í bú – vöruhönnun, Herdís Björk
Þórðardóttir, María Rut Dýrfjörð, Sandra Kristín
Jóhannesdóttir og Sveinbjörg Hallgrímsdóttir. Þau
fyrirtæki sem hönnuðirnir vinna með eru meðal
annarra Hrísiðn, Valsmíði og Ölur.
„Þetta eru ólíkir hönnuðir og ólíkar vörur, en þó
er samhljómur í efnisnotkun og fleiru, til dæmis er
birkikrossviður í nokkrum vörum. Sýningin myndar
ákveðna heild,“ segir Helga. „Mitt markmið með
sýningunni er að skapa meira samtal milli hönn-
uða og framleiðenda og ekki síst almennings, að
fólk geri sér grein fyrir að hönnun er fag. Ég kom
sérstaklega inn á þetta í opnunarræðunni. Oft er
handverk, hönnun og föndur sett undir sama hatt
sem er ekki rétt. Þessir hlutir er góðir og gildir
hver fyrir sig en eiga ekki heima undir sama hatti.
Hönnun er fag.
Sýningin var opnuð þann 25. júlí og stendur út
ágúst eða fram yfir Akureyrarvöku, sem haldin er í
lok ágúst.
Helga segir það stefnu Listasafnsins á Akureyri
að kynna og sýna hönnun og arkitektúr meðfram
myndlist og hún hafi fengið góð viðbrögð við þess-
ari fyrstu samsýningu norðlenskra vöruhönnuða.
„Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð. Sýn-
ingin hefur aðeins hreyft við umræðunni um að
hönnun sé fag, sem mér finnst ánægjulegt.“
Verkefnið fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði Norð-
urlands. ■ heida@365.is
HÖNNUN ER FAG
ÍSLENSK HÖNNUN Fimm norðlenskir hönnuðir sýna í Ketilhúsinu á Akureyri
nýjar vörur sem hannaðar eru í samvinnu við framleiðendur í heimabyggð.
GRÓANDI Matjurtaræktunarkerfi eftir Björg í bú.
SALT Snúningsplattar eftir Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur.
INGÓLFUR Barnaskrifborð eftir Herdísi Björk Þórðardóttur.
BREYTA Veggpanelar og textílmunstur unnin út frá byggingum
Guðjóns Samúelssonar eru verk Maríu Rutar Dýrfjörð.
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949
Betra blóðflæði
Rauðrófu kristall 100% náttúrulegt
Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn
Nitric Oxide Superbeets
allt að 5 sinnum öflugri
1. dós superbeets jafngildir
30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Íslensk vottun á
virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar
Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð
áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi.
ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi.
- Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið -
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
-Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms.
-Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu
Helstu námsgreinar:
- Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
- Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
- Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
- Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði.
Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða.
Umsögn:
Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á
landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman
á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik
og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa,
frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé
nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem
skapaði gott andrúmsloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tíma var
mjög vel varið hvort sem maður hyggur á ferðaleiðsögn eða ekki.
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8-22
Magnús Jónsson
fv. veðurstofustjóri
Umsögn:
S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð
vel u dir væntingum þar sem fjölmargir ke ar komu að kennslun i og
áttu þeir a ðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og
ekki síst að vekja mig til umhugsu ar um þá auðlind sem la dið okkar er
og þá virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og
fróðir hver á sínu sviði og áttu auðv lt með að koma efninu ti skila.
Námi efur mikla atvinnumöguleika og spennandi tí r eru framundan.
Guðrún Helga
Bjarnadóttir,
Vestmannaeyjum
40.000
fréttaþyrstir
notendur
Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum:
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
C
8
-B
6
A
0
1
5
C
8
-B
5
6
4
1
5
C
8
-B
4
2
8
1
5
C
8
-B
2
E
C
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K