Fréttablaðið - 15.08.2015, Qupperneq 55
Lyflækningasvið
Undir lyflækningasvið heyra barnalækningar, geðlækningar, lyflækningar, endurhæfingar-
lækningar, öldrunarlækningar, barnadeild, geðdeild, lyflækningadeild, almenn göngudeild,
Kristnesspítali og sjúkrahúspótek. Lyfjanefnd og næringarteymi heyra til sviðsins auk
fagtengdrar verktakaþjónustu. Á sviðinu eru um 160 stöðugildi og áætluð velta um 2.100 mkr.
Ábyrgð
Framkvæmdastjórinn heyrir beint undir forstjóra og á sæti í framkvæmdastjórn. Hann ber
fjárhagslega ábyrgð á rekstri sviðsins, ábyrgð á starfsmönnum og faglega ábyrgð með þeim
takmörkunum sem greinir í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Næstu undirmenn
framkvæmdastjóra eru forstöðumenn á lyflækningasviði.
Mögulegt er að sinna klínískri eða akademískri vinnu með framkvæmdastjórastarfinu.
Menntunar og hæfniskröfur
Gerð er krafa um:
• próf í heilbrigðisvísindum og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi,
• leiðtogahæfni og getu til að hvetja aðra til árangurs,
• farsæla stjórnunar- og rekstrarreynslu,
• framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og miðlun upplýsinga,
• frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi,
• reynslu af teymisvinnu og breytingastjórnum í heilbrigðisþjónustu.
SAk er sérgreinasjúkrahús, sem sinnir flestum greinum læknisfræðinnar fyrir íbúa Norður- og Austurlands. Þjónustusvæði sjúkrahússins nær frá Blönduósi og að
Neskaupsstað. Íbúafjöldi upptökusvæðisins er um 35.000 manns. Á ársgrundvelli eru gerðar 2.800 skurðaðgerðir á sjúkrahúsinu, legudagar eru 29.000, dagdeildarkomur
um 4.500, göngudeildarkomur lækna 13.400, komur á bráðamóttöku um 16.000 og sjúkraflug eru um 500. Starfsmenn sjúkrahússins eru að jafnaði 580 í um 450 stöðugildum.
Gildi SAk eru: Öryggi – samvinna – framsækni.
Unnið er að því að starfsemi sjúkrahússins fái alþjóðlega vottun. Samstarf er við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann
á Akureyri um menntun nema í heilbrigðisgreinum og um vísindarannsóknir.
Ráðið er í stöðuna til fimm ára. Starfskjör byggjast á kjarasamningum og lögum um starfsmenn ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Bjarni Jónasson forstjóri í síma 463-0100 eða/og í tölvupósti
bjarnij@sak.is. Ábyrgðarsvið stjórnenda og frekari upplýsingar um starfið eru á vef sjúkrahússins www.sak.is.
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2015.
Umsóknum skal skilað á umsóknareyðublaði sem fæst á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af stjórnunarstörfum ásamt með upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf, auk kennslustarfa eftir því sem við
á. Starfsleyfi skulu einnig fylgja umsókn. Stöðunefndir heilbrigðisstétta meta hæfni umsækjenda eftir því sem við á.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Framkvæmdastjóri lyflækningasviðs Sjúkrahússins á Akureyri
Staða framkvæmdastjóra lyflækningasviðs við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá og með 1. október nk. eða eftir samkomulagi.
VILTU TAKA ÞÁTT Í AÐ GLEÐJA GESTI OKKAR?
Spennandi og fjölbreytt störf í einu af 25 undrum veraldar
Kíktu á bluelagoon.is/atvinna
Hlökkum til að heyra í þér
Bláa Lónið hefur um árabil verið í hópi bestu heilsulinda heims og hlotið
fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir framúrskarandi aðstöðu og einstaka
upplifun.Bláa Lónið er eitt af 25 undrum veraldar að mati National Geographic.
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-D
9
3
0
1
5
C
8
-D
7
F
4
1
5
C
8
-D
6
B
8
1
5
C
8
-D
5
7
C
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K