Fréttablaðið - 15.08.2015, Qupperneq 90
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 50TÍMAMÓT
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐNI ÞORGEIRSSON
fv. kaupmaður og skrifstofustjóri
Kaupmannasamtaka Íslands,
Borgarholtsbraut 71, Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum að morgni sunnudagsins 2. ágúst,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 19. ágúst
kl. 15.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á að láta líknarfélög njóta þess.
Ingibjörg Þorkelsdóttir
Þorkell Guðnason Stefanía Halla Hjálmtýsdóttir
Kristín Guðnadóttir Ásbjörn Björnsson
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
vegna andláts
SIGURÐAR JÓHANNS HELGASONAR
Sérstaklega þökkum við starfsfólki á
11G Landspítala og Hrafnistu í Reykjavík
góða umönnun og hlýju.
Birna Benjamínsdóttir
María Sigurðardóttir
Helga Sigurðardóttir Maríus Ólafsson
Jóhann Þór Sigurðsson Júlíana Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir,
MAGNEA KRISTÍN JAKOBSDÓTTIR
Fjólukletti 3,
Borgarnesi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
föstudaginn 7. ágúst. Jarðsett verður frá
Borgarneskirkju mánudaginn 17. ágúst. kl. 14.
Ragnar Ingimar Andrésson
Gréta Bogadóttir
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SESSELJU ÞORBJARGAR
ÞORSTEINSDÓTTUR
bónda,
Hraunholtum, Kolbeinsstaðahreppi.
Sigurður Þ. Helgason
Steinar Þór Snorrason Jóhanna Lára Óttarsdóttir
Sigríður Jóna Sigurðardóttir Ásberg Jónsson
Ásdís Ólöf Sigurðardóttir Siguroddur Pétursson
Elísabet Sigurðardóttir Guðlaugur Þór Tómasson
Jódís Sigurðardóttir
Helgi Sigurðsson Addý Guðjóns Kristinsdóttir
Guðmundur M. Sigurðsson Sólveig Einarsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Faðir okkar, afi og langafi,
PÁLMI K. ARNGRÍMSSON
garðyrkjumeistari,
Snorrabraut 58,
Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum 8. ágúst. Útförin fer
fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 19. ágúst kl. 15.00.
Arngrímur Friðrik Pálmason
Helga Ingunn Pálmadóttir
Þórdís Rut, Bryndís Gyða, Helga Matthildur,
Katariya Helga og Kári Valur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÞÓR ÞORGILSSON
Tröllaborgum 25,
áður Skriðustekk 8,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. ágúst.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 18. ágúst kl. 15.00.
Jónína Jóhannsdóttir
Þorgils Sigurþórsson Eygló Tómasdóttir
Anna Sigurþórsdóttir Rosager Anders Rosager
Þóra Sigurþórsdóttir Helgi Snorrason
Ársæll Sigurþórsson Þórhildur Eggertsdóttir
Jóhann Sigurþórsson Bylgja Valtýsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Útfararþjónusta síðan 1996
Elskuleg móðir mín og amma okkar,
FEDERICA PAULA FRANK SCHOLZ
frá São Paulo,
Dofrabergi 9, Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
í Hafnarfirði, 4. ágúst sl. Útförin fer fram
frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 27. ágúst klukkan 15.00.
Carola Moreno Frank
Alana Elín Steinarsdóttir
Daníel Ísak Steinarsson
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR
áður til heimilis að Mánavegi 1, Selfossi,
lést að Fossheimum fimmtudaginn 13. ágúst.
Útförin fer fram í kyrrþey að hennar ósk.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á vinafélag
Ljósheima og Fossheima.
Einar Sigurðsson
Vilborg Árný, Sigurður Kristinn, Jarþrúður, Margrét
og Sonja Ingibjörg.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og aðstoð við andlát
og útför elskulegrar móður okkar,
HAFDÍSAR INGVARSDÓTTUR
Hábergi 5,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Ingvar Örn Hilmarsson
Svana Fjóla Hilmarsdóttir
Birna Svanhvít Hilmarsdóttir
„Þetta var táknrænn fundur í tilefni
af 100 ára kosningaafmæli kvenna og
segja má að umræðuefnin hafi verið
í anda þess,“ segir Eydís Ásbjörns-
dóttir um fyrsta fundinn í bæjar-
stjórn Fjarðabyggðar sem skipaður
var aðal- og varakonum í bæjarstjórn.
En auk þeirra sat fundinn Páll Björg-
vin Guðmundsson bæjarstjóri. Eins og
sjá má á meðfylgjandi mynd er hópur-
inn ungur og hress.
Eydís er í bæjar-
stjórn og bæjarráði
og fær að finna fyrir
því að búa í sveitar-
félagi með mörgum
þéttbýliskjörnum,
er búsett á Eski-
firði en starfar sem
framhaldsskólakenn-
ari í Neskaupstað og
hefur gert frá árinu
1999. Aðalskrifstofur bæjarstjórnar
eru hins vegar á Reyðarfirði. Er hún
ekki ansi mikið á fartinni? „Jú, ég
keyri náttúrlega alltaf yfir Oddskarð-
ið í vinnuna og svo er Reyðarfjörður
alveg í hina áttina,“ viðurkennir hún.
Jafnréttismál voru fyrirferðar mikil
á umræddum fundi bæjarstjórnar-
kvenna. Tillaga um að efla hinsegin
fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggð-
ar, staða kvenna á vettvangi sveitar-
stjórnarmála á landsvísu og viljayfir-
lýsing um átak gegn heimilisofbeldi
voru meðal umræðuefna.
Völd karla voru líka svolítið gagn-
rýnd, að sögn Eydísar. „Það er ekki
alltaf auðvelt að vera kona í bæjar-
stjórn og bæjarráði Fjarðabyggðar,
því það er karllægt umhverfi. Sviðs-
stjórar eru sex, þar af fimm karlmenn,
bæjarstjóri er karl og bæjarritari líka
en ég tek fram að ég hef átt mjög gott
samstarf við alla á þessum vettvangi.
Svo á ég eintóma stráka og er ýmsu
vön!“
Eydís tekur líka fram að hlutföll-
in innan bæjarstjórnar hafi breyst í
sumar þannig að í fyrsta skipti séu
konur þar í meirihluta og hið sama
gildi um hafnarstjórn. Hún er ein
þeirra sem þar sitja og hafnirnar í
sveitarfélaginu eru margar og stór-
ar svo það er viðamikið svið. „Það
eru mikil umsvif í höfnunum enda
stór sjávarútvegsfyrirtæki hér eins
og Síldarvinnslan í Neskaupstað,
Eskja á Eskifirði og Loðnuvinnslan
á Fáskrúðsfirði, öll með öfluga starf-
semi. Svo er auðvitað álverið með mik-
inn útflutning svo það er líf og fjör í
Fjarðabyggðarhöfnum,“ segir Eydís
sem ásamt Esther S. Gunnarsdóttur
er á öðru kjörtímabili sínu í sveitar-
stjórninni. Það er líka nýlunda. Eyrún
tekur þó fram að hún hafi haft góða
kvenfyrirmynd því tengdamóðir henn-
ar, Hildur Metúsalemsdóttir, hafi
setið í bæjarstjórn Eskifjarðar fyrir
Alþýðubandalagið frá 1970 til 1978.
Eydís vonar að með fundinum
í fyrradag og öðrum viðburðum í
tengslum við kosningaafmælið geri
almenningur sér betur grein fyrir
mikilvægi kosningaréttarins og nýti
hann. „Það er áhyggjuefni hversu
dræm kosningaþátttakan hefur verið
í síðustu kosningum á Íslandi og þá
sérstaklega meðal ungs fólks,“ segir
hún. „Kosningaréttur er nefnilega víða
ekki sjálfsagður hlutur í hinni stóru
veröld.“
gun@frettabladid.is
Kvennafundur í bæjar-
stjórn Fjarðabyggðar
Sögulegur fundur var í Fjarðabyggð í fyrradag. Einungis kvenkyns kjörnir fulltrúar í aðal-
og varabæjarstjórn skiptust þar á skoðunum og karlarnir fengu smá á baukinn.
Á FUNDINUM
Tinna Hrönn
Smáradóttir,
Kristín Gests-
dóttir, Lísa Lotta
Björnsdóttir,
Þórdís Mjöll
Benediktsdóttir,
Eydís Ásbjörns-
dóttir, Pálína
Margeirsdóttir
fundarstjóri,
Páll Björgvin
Guðmundsson
bæjarstjóri, Esther
Ösp Gunnars-
dóttir, Hjördís
Helga Seljan
Þóroddsdóttir
og Hulda Sigrún
Guðmundsdóttir.
MYND/HELGA GUÐRÚN
JÓNASDÓTTIR
EYDÍS ÁS-
BJÖRNSDÓTTIR
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-4
E
F
0
1
5
C
8
-4
D
B
4
1
5
C
8
-4
C
7
8
1
5
C
8
-4
B
3
C
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K