Fréttablaðið - 15.08.2015, Síða 102
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 62
Mér datt ekki í hug
að þetta yrði svona mikil
vinna. Við finnum fyrir-
sætur, finnum fötin,
förðum, tökum mynd-
irnar, vinnum myndirnar,
skilum fötunum.
Gunnhildur
Jónsdóttir
gunnhildur@frettabladid.is
Caitlyn Jenner er nú byrjuð með
sína eigin raunveruleikaþætti sem
heita I am Cait. Þegar Caitlyn til-
kynnti opinberlega áform sín um
að gerast kvenmaður þótti Kim og
Khloe Kard ashian hún tala of illa
um móður þeirra, Kris Jenner. Í
klippu fyrir nýjasta þáttinn lýsir
Khloe yfir óánægju sinni með
ummælin og hún telur það vera
óþarfa gagnvart Kris.
Óþarfi að tala
illa um Kris
ALLT LÁTIÐ FLAKKA Stjúpdóttir Caitlyn
var ósátt við umtalið um móður sína.
LÍFIÐ
Álfrún Pálsdóttir er um þessar
mundir að sýna á Edinborgarhátíð-
inni ásamt leikhópi sínum. Verk-
ið heitir The Lost Art of Lost Art
og hefur fengið einróma lof gagn-
rýnenda og meðal annars fjórar
stjörnur í Broadway Baby sem er
virt blað. Hópurinn fer óvenjuleg-
ar leiðir í að fjármagna sýninguna.
Sara Blöndal hannar búninga og
leikmynd.
„Við erum búin að vera að sýna
á hverjum degi frá því í byrjun
ágúst. Seinasta sýningin verður
20. ágúst en við fáum frí 19. ágúst.
Sýningin fjallar um listaverkaþjófa
sem stela Ópinu eftir Munch og eru
í sífellu að biðja um meiri pening
fyrir það. Sýningin er mjög fyndin
og skemmtileg og áhorfendur hlæja
mikið.“
Álfrún tók þátt í keppni á vegum
Scottish Daily Mail og Drama UK
og sigraði í flokknum „new acting
talents“ og fékk 6.000 pund í verð-
laun. Þann pening ætlar hún að
nota til að borga upp kostnaðinn af
sýningunni en hún kostar í kring-
um 10.000 pund. Til þess að borga
restina hefur hópurinn byrjað með
heldur frumlega fjáröflunarleið.
„Við settum upp okkar eigin
vefsíðu í stað þess að borga 8% af
ágóðanum okkar til Kickstarter.
Þegar fólk styrkir okkur um 20
pund þá fær það sent persónulegt
og skemmtilegt þakkarvídeó. Þegar
við fáum styrk upp á 50 pund eða
meira þá fær fólk að velja sér lag
sem við syngjum. Við höfum líka
lofað að skrifa bréf og fleira.“ Hóp-
urinn hefur nú safnað 1.400 pund-
um sem getur ekki talist annað en
mjög gott. - gj
Fara óhefðbundna leið í fj áröfl uninni
Leikhópur Álfrúnar Pálsdóttur gerir persónuleg þakkarmyndbönd og syngur lög fyrir þá sem leggja þeim lið.
MYNDARLEGUR HÓPUR Krakkarnir eru allir saman í leiklistarskóla í London.
MYND/JANNICA HONEY
Frænkurnar Heiðdís Lóa Óskars-
dóttir og Guðbjörg Sandra Guð-
jónsdóttir hafa sett á laggirnar
nýja vefsíðu sem heitir stylista.is.
Síðan býður þeim sem hafa áhuga
á tísku upp á að sjá hvað er í boði
í íslenskum verslunum. Þær eru í
nánu samstarfi við nokkrar versl-
anir í Reykjavík og ætla á næstu
vikum að auka úrvalið. Vefsíðan
hefur fengið góð viðbrögð enda
mörgu ábótavant hvað netverslun
varðar á Íslandi.
„Ég var að leita að sumargjöf
handa kærastanum mínum kvöld-
ið fyrir sumardaginn fyrsta á net-
inu. Ég fór inn á endalaust marg-
ar síður og fann hvergi neitt. Það
er erfitt að vita hvernig fötin eru
þegar þau eru ekki á fólki. Þá fór
ég að hugsa að það vantaði eina
síðu þar sem hægt væri að sjá allt
það helsta í búðum Reykjavíkur,“
segir Heiðdís Lóa.
Vefsíðan er ekki verslun en hún
er meira eins og tískublogg þar
sem birtast myndir af fyrirsætum
í nýjustu fötum sem boðið er upp
á. Þær gera allt sjálfar fyrir utan
að sitja fyrir. „Mér datt ekki í hug
að þetta yrði svona mikil vinna.
Við finnum fyrirsætur, finnum
fötin, förðum, tökum myndirnar,
vinnum myndirnar, skilum föt-
unum. vinnan er samt ótrúlega
skemmtileg og gefandi.“
Stelpurnar eru ekki að rukka
búðirnar fyrir færslurnar og
gera alla vinnuna í frítímanum
þannig að þær eru ekki í þessu til
þess að græða. „Markmiðið var
alltaf að fá búðirnar með okkur í
þetta og þess vegna er mikilvægt
að hafa síðuna virka og deila
einhverju á hverjum degi. Við
vonum að búðirnar séu ánægðar
með þetta en það er mikill heim-
sóknarfjöldi á síðunni og því góð
auglýsing fyrir þær. Viðtökurnar
hafa verið rosalega góðar.“
Heiðdís Lóa hélt áður úti sínu
eigin persónulega bloggi sem
náði miklum vinsældum og hún
hefur því góða reynslu. „Ég var
stundum með færslur sem hétu
Fataskápurinn þar sem ég heim-
sótti stelpur og þær voru mynd-
aðar í sínum eigin fötum. Þessar
færslur voru alltaf mjög vinsæl-
ar og stylista.is er í raun svipuð
pæling nema með búðir.“
Stelpurnar gera allt sjálfar,
þar á meðal að taka myndirnar
og vinna þær, hanna vefsíðuna
og búa til vörumerki. Þær eru
báðar í skóla og ætla að reyna að
vera jafn duglegar eftir að hann
byrjar aftur í haust. „Við eigum
helling af myndum í geymslu
sem við eigum eftir að vinna og
birta. Annars þyrftum við að
fara að taka myndir á hverjum
degi. Hingað til höfum við verið
að taka myndir einu sinni í viku,“
segir Heiðdís.
Öll fl ottustu fötin á einni vefsíðu
Heiðdís Lóa og Guðbjörg Sandra opnuðu á dögunum vefsíðuna stylista.is þar sem fólk getur séð hvað er það nýjasta og fl ottasta í
búðunum í dag. Síðan hefur fengið frábærar viðtökur þrátt fyrir að stutt sé frá opnun.
Nú nálgast haustið óðfluga, sumir
telja meira að segja að það sé nú
þegar komið. Þá er nauðsynlegt að
eiga flotta regnkápu. Þrátt fyrir að
það sé ekki alltaf rigning þá eru
þær komnar í tísku og þykir nú
til dags mjög fínt að eiga flottan
regnjakka.
TREND
REGNJAKKAR
ÖÐRUVÍSI Regnjakkar fást í öllum
gerðum. Það er gaman að vera öðruvísi.
GERIR MIKIÐ Regnjakkar geta gert
mikið fyrir heildarútlitið. Það verður allt
svo afslappað.
SÍÐUR REGNJAKKI því síðari þeim
mun betri?
FRÁ TOPPI TIL TÁAR Þessi er tilbúinn í
hvað sem er. MYNDIR/GETTY
FLOTTAR FRÆNKUR Heiðdís og Guðbjörg hafa verið bestu vinkonur frá blautu barnsbeini. MYND/ANTON BRINK
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-5
D
C
0
1
5
C
8
-5
C
8
4
1
5
C
8
-5
B
4
8
1
5
C
8
-5
A
0
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K