Fréttablaðið - 15.08.2015, Side 112
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 72
Eftir erfiða byrjun hefur vörn KR styrkst með hverjum leiknum. KR hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í fjórum bikar-
leikjum og einungis þrjú mörk í síðustu sjö deildarleikjum. Stefán Logi Magnússon hefur verið góður í stóru leikjunum,
Skúli Jón Friðgeirsson er einn besti varnarmaður landsins og hann og Rasmus Christiansen ná vel saman í miðri vörn
KR. Aron Bjarki Jósepsson og Gunnar Þór Gunnarsson eru öflugir varnarlega í bakvarðastöðunun.
Thomas Christensen breytti varnarleik Vals til hins betra og það mun mikið mæða á honum í dag. Hann og Orri Ómars-
son mynda sterkt miðvarðapar. Bjarni Ólafur Eiríksson væri besti vinstri bakvörður Pepsi-deildarinnar ef ekki væri fyrir
Kristin Jónsson en hægri bakvarðarstaðan er meira spurningarmerki. Þá er algjört lykilatriði fyrir Val að Ingvar Þór Kale
verði með. Þótt hann geri sínar gloríur er hann góður markvörður og býr yfir mikilli reynslu.
VARNARLEIKURINN
Jónas Guðni Sævarsson, Pálmi Rafn
Pálmason og Jacob Schoop hafa
spilað flesta leiki KR og mynda
sterka miðju þar sem hlutverkaskip-
anin er á hreinu. Jónas sér um að
vinna boltann, Pálmi um að dreifa
honum og hlaupa á milli teiga og
Schoop á að skapa færin. Sá síðar-
nefndi byrjaði frábærlega en hefur
aðeins gefið eftir og hefur átt erfitt
í nokkrum leikjum upp á síðkastið.
Pálmi Rafn var gagnrýndur fyrir
spilamennsku sína framan af sumri
en er alltaf að spila betur. KR-ingar
geta lent í vandræðum ef lið liggja
til baka gegn þeim en hvorki Jónas
Guðni né Pálmi eru sérstaklega
sterkir í að stjórna leikjum.
Líkt og KR spilar Valur með þriggja
manna miðju. Haukur Páll Sigurðs-
son og Kristinn Freyr Sigurðsson
eru fastamenn á miðjunni en
misjafnt er hver þriðji maðurinn er.
Líklegast er að það verði Mathias
Schlie í dag en Daninn hefur
byrjað síðustu tvo leiki Vals. Iain
Williamson, Einar Karl Ingvarsson
og Andri Fannar Stefánsson koma
einnig til greina. Haukur Páll
er sennilega að spila sitt besta
tímabil á ferlinum og það væri
mikið áfall fyrir Val ef hann missir
af leiknum vegna meiðsla. Kristinn
Freyr var frábær í fyrri umferðinni
en hefur ekki náð sömu hæðum
það sem af er þeirri seinni.
Bjarni Guðjónsson hefur úr mörgum kostum að velja. Þorsteinn Már Ragnarsson, Hólmbert Aron Friðjónsson, Gary
Martin, Óskar Örn Hauksson, Sören Fredriksen og Almarr Ormarsson berjast um þrjár stöður en þeir hafa allir sannað
mikilvægi sitt í sumar. Óvíst er hvort Hólmbert verður með vegna meiðsla og þá er spurningin hvort Bjarni velur
Þorstein Má eða Martin sem fer ekkert í felur með óánægju sína ef hann er settur á bekkinn. Óskar Örn er sennilega
mikilvægasti sóknarmaður KR en hann er markahæsti leikmaður liðsins í sumar með tíu mörk.
Hjá Val snýst allt um Patrick Pedersen. Verður hann með? Ef ekki minnka sigurlíkur Vals mikið. Valsmenn hafa verið
bitlausir í þeim leikjuum sem hann hefur misst af. Pedersen er ekki bara góður markaskorari heldur er hann mikilvægur
í spilinu. Kristinn Ingi Halldórsson byrjar líklega sem fremsti maður ef Daninn er ekki með en spilar annars á hægri
kantinum. Sigurður Egill Lárusson á þeim vinstri getur bæði skorað og skapað mörk.
SÓKNARLEIKURINN
KR er sigursælasta fótboltafélag á Íslandi með 26 Íslandsmeistaratitla og 14 bikarmeistaratitla. KR hefur notið mikillar
velgengni á undanförnum árum og þá sérstaklega í bikarkeppninni. KR hefur unnið þrjá bikartitla á síðustu fjórum
árum og getur bætt enn einum í safnið í dag. KR-liðið sem heild býr yfir mikilli reynslu í bikarkeppninni og hún mun
eflaust nýtast vel í dag gegn Valsliði sem er ekki jafn reynt í leikjum sem þessum.
Valur hefur unnið 29 stóra titla í sögunni en aðeins tveir þeirra hafa unnist á síðustu 22 árum. Valur varð síðast bikar-
meistari árið 2005 en Bjarni Ólafur Eiríksson er sá eini sem er eftir í Valsliðinu síðan þá, auk aðstoðarþjálfarans Sigur-
björns Hreiðarssonar. Valsmenn hafa verið í miðjumoði undanfarin ár en eru loks komnir í stöðu til að landa stórum
titli. Hefðin og reynslan er frekar með liði KR og það gæti skipt sköpun í dag.
HEFÐIN OG REYNSLAN
Þjálfaraferill Bjarna byrjaði illa með Fram í fyrra og það kom mörgum á óvart að hann skyldi fá starfið hjá KR. Bjarni
hefur gert fá mistök í sumar og oft komið með góðar skiptingar sem hafa breytt gangi mála í leikjum. Hann hefur
mikla reynslu af bikarúrslitaleikjum sem leikmaður en hann á ekkert í reynsluna hjá kollega sínum hjá Val, Ólafi Jó-
hannessyni, sem er margreyndur í faginu. Leikurinn á morgun er stærsta próf Bjarna á stuttum þjálfaraferli og það
verður spennandi að sjá hvort hann standist það.
Þjálfaraferill Ólafs hófst fyrir 23 árum á Vopnafirði. Þá var Bjarni Guðjónsson aðeins þriggja ára. Ólafur hefur reynt
margt og býr yfir gríðarlega mikilli reynslu. Hann náði frábærum árangri með FH og þótt hann spili sig stundum sem
einhvern kjána er hann klárari þjálfari en flestir halda. Ólafur hefur öðlast nýtt líf í sumar og er nú á leið í sinn fjórða
bikarúrslitaleik sem þjálfari. FH tapaði 1991 og 2003 en hann stýrði Fimleikafélaginu til sigurs 2007.
ÞJÁLFARARNIR
Hvar ráðast úrslitin í Dalnum í dag?
KR og Valur mætast í úrslitaleik Borgunarbikarsins á Laugardalsvelli klukkan 16.00 í dag. Fréttablaðið ber saman liðin og veltir fyrir
sér hvar úrslitin muni ráðast í stærsta leik ársins. Í hvaða þáttum leiksins eru KR-ingar sterkari og hvar hafa Valsmenn yfi rhöndina?
MIÐJUSPILIÐ
FÓTBOLTI Bjarni Guðjónsson er ekki óvanur bikarúrslitaleikjum en hann lék fjóra slíka á
leikmannsferlinum, einn með ÍA og þrjá með KR. Í dag verður hann í öðru hlutverki, sem
þjálfari KR. „Það er að aðeins meiru að huga en þegar maður var leikmaður,“
sagði Bjarni, sem segir þá miklu bikarreynslu sem býr í KR-liðinu koma
að góðum notum í dag.
„Já, það hjálpar eitthvað aðeins en skilur ekki á milli feigs og ófeigs.
Valsliðið er feikilega öflugt; vel mannað, vel skipulagt og með góðan
þjálfara þannig að við eigum von á hörkuleik.“
Valsmenn fóru illa með KR í deildarleik liðanna 7. júní sem þeir
unnu með þremur mörkum gegn engu. En hvað lærðu KR-ingar af
þeim leik? „Við höfum þroskast talsvert sem lið síðan við spiluðum við
Val og bætt okkur í öllum þáttum leiksins. Við töpuðum leiknum 3-0 en
vorum miklu meira með boltann, sem gefur þér nákvæmlega ekki neitt.
Við gerðum dýr einstaklingsmistök sem kostuðu okkur þann leik,“ sagði
Bjarni, sem segir að KR-ingar þurfi að vera vel á verði fyrir skyndi-
sóknum Vals.
„Þeir sækja hratt á andstæðinginn og vilja komast aftur fyrir
varnir hans. Við verðum að passa skyndisóknirnar hjá þeim og vera
rétt staðsettir þegar við töpum boltanum,“ sagði Bjarni. Hann hefur
úr mörgum kostum að velja í framlínunni eins og mikið hefur rætt
um. Bjarni segir erfitt að velja byrjunarliðið á morgun: „Það er allt-
af erfitt að velja byrjunarliðið. En við gerum það samviskusamlega
og af heiðarleika gagnvart sjálfum okkur og leikmönnunum.“ - iþs
Við höfum þroskast mikið
Bjarni Guðjónsson segir KR þurfa að stoppa skyndisóknir Vals.
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson er kominn með Valsliðið í bikarúrslit á sínu fyrsta
ári sem þjálfari þess. Hann kveðst spenntur fyrir leiknum en þetta er í fjórða
sinn sem hann stýrir liði í bikarúrslitaleik. „Það ríkir mikil tilhlökkun hjá
okkur. Þetta er stór dagur og mikið undir,“ sagði Ólafur, en hvað þarf Vals-
liðið helst að varast í leik KR?
„Þetta snýst meira um að hugsa um okkur sjálfa. Við verðum að eiga topp-
leik til að vinna KR sem er eitt besta lið landsins og hefur verið að spila
vel,“ sagði Ólafur en Valur vann KR 3-0 á Vodafone-vellinum í byrjun júní.
„Við áttum fínan leik og það sýnir okkur að við getum unnið þá. En þetta
er önnur keppni og allt annað og meira undir. Sá leikur hjálpar okkur
ekki neitt.“
Mikið hefur verið rætt og ritað um meiðsli danska framherjans
Patricks Pedersen í aðdraganda leiksins. Einnig ríkir óvissa með
þátttöku Hauks Páls Sigurðssonar og Ingvar Þórs Kale. Ólafur
vonast að sjálfsögðu til að þeir verði klárir í bátana fyrir leik-
inn í dag. „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að geta stillt upp
okkar sterkasta liði og eins og staðan er í dag getum við það
ekki.“
Valsmenn hafa tapað þremur deildarleikjum í röð en hefur
þessi niðursveifla einhver áhrif á þá fyrir leikinn í dag? „Nei,“
svaraði Ólafur. „Við tókum þá ákvörðun að ýta deildinni frá
okkur og hætta að hugsa um hana og einbeita okkur bara að
bikarúrslitaleiknum,“ sagði Ólafur enn fremur. - iþs
Hugsum um okkur sjálfa
Ólafur Jóhannesson hefur áhyggjur af meiðslum lykilmanna.
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-8
0
5
0
1
5
C
8
-7
F
1
4
1
5
C
8
-7
D
D
8
1
5
C
8
-7
C
9
C
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K