Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Síða 15
mjög til að tíðkast. Klifur og transitus
yfir hús skal öldungis aftekin, því það
var í fyrri tíð undir stórt straff fyrir
boðið, - gangi þeir um göng og dyr, en
ei á húsum uppi” (Jón Helgason 1936,
bls. 87).
Svefnstofa skólapilta og
helstu gripaflokkar
Uppgröfturinn sumarið 2002 leiddi í
ljós hús í norðausturhluta bygginga-
samstæðunnar í Skálholti. Húsið var
túlkað sem svefnstofa skólapilta eftir
uppdrætti frá fyrri hluta 18. aldar en
uppgröfturinn hafði sýnt að hann er
nokkuð nákvæmur (sjá mynd 3,
svefnstofan er merkt „Dormitory“).
Hluti hússins hafði skemmst vegna
hlöðu sem byggð var árið 1902 og stóð
á þessum sama stað. Þrátt fyrir það gáfu
varðveitt jarðlög góða mynd af útliti og
viðhaldi þess. Húsið var, líkt og aðrar
byggingar á svæðinu, byggt úr torfi og
grjóti. Veggirnir voru gerðir úr
tvöföldum grjóthleðslum með torf- eða
moldarkjarna og gólfið var moldargólf.
Þurrt torf var reglulega lagt í gólfið til
að þurrka það upp og jafna, en hellulagt
ræsi var undir því. Húsið sneri austur og
vestur. Það var um 10 m langt og um
3,5 m breitt. Það tengdist skólastofunni
með mjóum gangi til austurs og
aðalgöngunum til vesturs, sem lágu að
undirganginum til kirkju til norðurs og
annarra herbergja, s.s. borðstofunnar, til
suðurs.
Úttektir voru reglulega gerðar á
byggingunum í Skálholti og eru nokkrar
úttektir af svefnstofunni varðveittar.
Árið 1674 var hún í góðu ástandi með
átta rúmum við hvorn langvegg (Bps. A
VII/1). Árið 1698 var herbergið
nýuppgert með tíu lokrekkjum (Bps. A
VII/3). Herbergið var svipað árið 1744
en þá var þó ekki minnst á lokrekkjur.
Veggirnir bak við rúmin voru hins
vegar sagðir vera viðarklæddir og
viðarbekkir framan við rúmin. Þá voru
fimm stoðir í stofunni og þakið úr
hellum sem lágu ofan á grenigrind
(Bps. A VII/3). Svefnstofan hafði
Skólapiltar í Skálholti
__________
14
Tafla 1. Fundarstaður algengustu gripaflokka
Leirkers-
brot
Glerbrot
úr ílátum
Krítarpípu-
brot
Rúðugler Naglar Vefnaður
Gólflög 60% 38% 47% 58% 71% 88%
Ræsis-
fylling
21% 20% 29% 23% 14% 0,2%
Önnur
lög
19% 42% 24% 19% 15% 11,8%
Alls 100% 100% 100% 100% 100% 100%
hrörnað mikið frá því árið 1698, þegar
hún var nýbyggð, því 1744 er hún sögð
hvorki vind- né regnheld og ástandið
virðist einungis hafa versnað. Úttektir
frá árunum 1759 (Bps. A VII/3) og
1764 (Bps. A VII/4) lýsa báðar
svefnstofunni í mjög slæmu ástandi.
Jarðlögin í svefnstofunni voru grafin
upp hvert fyrir sig. Áður en þau voru
grafin í burtu var hvert lag teiknað í
mælikvarðanum 1:20 og laginu lýst auk
þess sem hæð þess var mæld. Þá voru
öll lög, sem talið er að hafi myndast
þegar herbergið var í notkun, sigtuð í
sigti með 4 mm möskvum. Auk þess
voru gólflög grafin upp í 1x1 m reitum
til þess að fylgjast með því hvar í
herberginu hver gripur fannst.
Jarðlögunum úr svefnstofunni var skipt
í fjögur byggingarskeið (e. phase).
Hvert skeið samanstóð af að minnsta
kosti einu gólflagi, einu lagi af torfi,
sem var lagt til að þurrka og jafna
gólfið, sem og ýmsum öðrum
jarðlögum tengdum viðhaldi
herbergisins. Engin allsherjarendur-
bygging á herberginu fór fram á þeim
150 árum sem uppgröfturinn spannar,
þ.e. frá u.þ.b. 1630/50 – 1784, og
herbergið virðist hafa haldið stærð sinni
og útliti að mestu leyti þó að ýmsar
viðgerðir, svo sem endurbygging
einstakra veggja, hafi verið gerðar. Það
fellur vel að heimildunum úr
úttektunum. Skeiðin fjögur, sem
jarðlögin skiptast í, eru frá því á miðri
17. öld og þar til skólinn var fluttur til
Reykjavíkur eftir Suðurlandsskjálftann
árið 1784. Erfitt er að tímasetja hvert
skeið sérstaklega en þau spanna um það
bil sinn fjórðunginn hvert af þessum
150 árum, þ.e. um 35 ár.
Fundasafnið frá skeiði I saman-
stendur af ýmsum leirkerabrotum, m.a.
úr rauðum jarðleir og steinleir sem ekki
reyndist unnt að greina frekar fyrir utan
Frechen steinleirsbrot sem kemur frá
Þýskalandi. Í skeiði I fundust einnig
brot úr tinglerjuðum leir sem að öllum
líkindum eru úr diskum eða skálum frá
Hollandi. Aðrar gerðir funda frá þessu
skeiði eru glerbrot úr ílátum,
krítarpípubrot og brot úr eldtinnu. Þá
fundust sex perlur og 11 hnappar í
jarðlögum frá skeiði I. Fjöldi
steinleirsbrota jókst á skeiði II og í því
fundust einnig kínversk postulínsbrot,
rauðum jarðleirsbrotum fækkaði hins
vegar á þessu skeiði. Mun fleiri
glerbrot úr ílátum fundust í jarðlögum
frá skeiði II en skeiði I, alls fundust
163 brot samanborið við 13 brot frá
skeiði I. Einnig fannst mun meira af
krítarpípubrotum og eldtinnubrotum.
Alls fundust 37 hnappar í jarðlögunum
sem tilheyra skeiði II og 13 perlur.
Meira fannst af öllum tegundum
leirkera, jarðleir, steinleir,
tinglerjuðum leir og postulíni á skeiði
III en skeiði II sem og glerbrotum úr
ílátum og krítarpípum. Í jarðlögum frá
skeiði III fundust 43 hnappar og 10
perlur. Fjöldi kínverskra postulínsbrota
jókst umtalsvert á skeiði IV en minna
fannst af öllum öðrum
leirkerategundum. Fjöldi glerbrota úr
ílátum jókst lítillega en
krítarpípubrotum fækkaði. Í jarðlögum
sem tilheyra skeiði IV fundust 29
hnappar og þrjár perlur. Í töflu 1 má sjá
Ágústa Edwald
__________
15