Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Qupperneq 60
rannsóknarstaðir sem hér verða notaðir
eru Haffjarðarey á Mýrum, Hella á
Árskógarströnd, Hof í Hjaltadal,
Hofstaðir í Mývatnssveit, Keldudalur á
Hegranesi, Skeljastaðir í Þjórsárdal,
Skriðuklaustur í Fljótsdal, Stóraborg
undir Eyjafjöllum og Þórarinsstaðir í
Seyðisfirði.
Viðhorf til barna eru ólík á hverjum
tíma og því hægt að rannsaka
barnsgrafir út frá félagslegu sjónarhorni
samhliða líffræðilegum greiningum. Til
þess að greina félagslega þáttinn verður
hér unnið eftir gerendakenningunni
(e. agency theory). Verður litið á börn
sem gerendur (e. agents) og að þau
móti tilveru sína, félagsleg tengsl og
athafnir sem slíkir. Börn eru þannig
skoðuð sem mismunandi gerendur allt
eftir því hvar í lífsferlinu þau eru stödd.
Gerendakenningin innan fornleifa-
fræði er tilraun til þess að greina atbeina
(e. agency)1 einstaklinga og rekja
vísbendingar um skipulag þeirra innan
fornra eða nýrra samfélaga (Dornan
2005, bls. 309). Gott er að líta á
gerendakenninguna sem rauðan þráð í
gegnum greinina til þess að forðast
fyrirfram ákveðnar hugmyndir um börn
og sjá þannig áhrif þeirra sem
einstaklinga og gerenda á samfélag sitt.
Þegar rannsóknin að baki
greinarinnar var gerð höfðu samtals
fundist 134 barnsgrafir á þeim níu
stöðum sem hægt er að tengja við
kaþólskan tíma.2 Einungis var notast
við barnsgrafir sem hafa fundist innan
kirkjugarðanna og innbyrðis afstaða
þeirra var skýr. Þónokkuð safn
lausfundinna3 beina úr barns-
beinagrindum er auk þess varðveitt en
ákveðið var að taka þau ekki með í
þessu verkefni vegna þess að samhengi
var ekki þekkt. Sumir kirkjugarðanna
voru í notkun jafnt fyrir og eftir
siðaskipti og því gætu yngri grafir hafa
slæðst með í úrtak rannsóknarinnar.
Hvað varðar skilgreiningu á því hvað
telst barnsgröf, voru mörkin sett við
lífaldurinn 16 ára sem byggir á
hugmyndum um börn í Grágás. Í þeim
tilvikum þar sem mannabeinafræðingar
hafa skoðað beinasafnið voru niður-
stöður þeirra teknar til greina en þegar
svo var ekki, var stuðst við greiningar
fornleifafræðinganna sjálfra.
Til þess að leita svara við markmiði
rannsóknarinnar var ákveðið að gera
gagnagrunn4 yfir þær barnsgrafir sem
teknar voru til umfjöllunar, bæði vegna
þess að rannsóknargögnin eru ólík og í
margvíslegu formi, auk þess sem
aðgengi að þeim er einnig misjafnt.
Tilgangur hans er jafnframt að auðvelda
greiningu ákveðinna þrepa innan
lífshlaups íslenskra miðaldabarna. Horft
var framhjá samanburði milli einstakra
kirkjugarða og einblínt á grafirnar
sjálfar og hvaða upplýsingar þær gefa.
Inn í gagnagrunninn voru færð 25 atriði
sem tekin eru fyrir í hér og varða
barnsgrafirnar (sjá töflu 1).
Hér verður byrjað á almennri
umfjöllun um hugtökin börn og bernsku
til þess að sýna hversu víðtæk og
breytileg þau eru. Með umfjöllun um
þróun barnafornleifafræði er kynntur
skilningur á áhrifum hennar innan
__________
60
Þegar á unga aldri lifi ég enn
1 Þegar talað er um
atbeina er verið að
vísa til getu
einstaklinga til þess
að taka ákvarðanir
og hafa stjórn á lífi
og hegðun sinni.
2 Hér er miðað við
fjölda árið 2008.
Fornleifarannsóknir
hafa haldið áfram á
Hofstöðum og
Skriðuklaustri síðan
þá.
3 Með lausfundnum
beinum er átt við
bein sem fundist
hafa utan
kirkjugarðs og í
grafarfyllingum.
Vegna þess að
tilviljanakenndir og
takmarkaðir
beinafundir gefa
ekki heildstæða
mynd af
greftrunarsiðum og
lýðfræði, þjónuðu
þau ekki tilgangi í
þessari rannsókn.
4 Gagnagrunnurinn
fylgir MA
ritgerðinni, sem
greinin byggir á, á
geisladiski.
__________
61
Ragnheiður Gló Gylfadóttir
Skráð atriði Skilgreining Skráð atriði Skilgreining
ID Númer innan gagnagrunns Kista Tekið fram ef svo er.
Staður Rannsóknarstaður Aðbúnaður
grafar
Kol, steinar, torf,
líkklæði, spænir
o.s.frv.
Uppgraftarnúmer Númer fengið á
rannsóknarstað
Margföld gröf Ef tveir eða fleiri
voru jarðsettir í
sömu gröf.
Fyrirburi Í grafarfyllingu Ef kista var staðsett í
fyllingu annarrar
grafar.
Barn 1 0-12 mán Minningarmörk Steinar, krossar o.s.
frv.
Barn 2 1-3 ára Staðsetning
innan
kirkjugarðs
Kirkjugarðinum
skipt í fernt, SV, SA,
NV og NA.
Barn 3 4-7 ára Nánari
staðsetning
Hvar nákvæmlega
gröfin er.
Barn 4 8-12 ára Tímabil Frá hvaða tímabili er
kirkjugarðurinn.
Barn 5 13-16 Kolefnisgreining
Lífaldursgreining
beinasérfræðings
Tekið fram ef svo er. Gripir
Stelling líkamans Á bakinu, hliðinni o.s.frv. Kyn
Stelling handa Notaðar til þess að sjá
breytileika milli grafa en
ekki til að aldursgreina
Athugasemdir
Aldur Samantekt á þeim flokkum
sem voru gerðir innan
gagnagrunnsins. Tilgang-
urinn var að auðvelda
vinnslu innan hans.
Tafla 1. Atriði sem tekin voru til athugunar innan gagnagrunnsins.