Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Qupperneq 80
Þessu er raunar ekki hægt að svara
nema skoða frekar aldursdreifingu
grafanna. Það eru einkum börn á fyrsta
aldursári (Barn 1) sem eru grafin við
suðurhlið kirknanna og umhverfis þær.
Þegar flokkurinn Barn 2 er skoðaður
hefur orðið breyting og börnin eru þá
grafin nokkuð jafnt í kringum kirkjuna.
Sú dreifing er svipuð fyrir flokkinn
Barn 3 en erfiðara er að draga ályktanir
um flokkinn Barn 4. Stór hluti
legstæðanna þar er ógreinanlegur. Þegar
kemur að flokknum Barn 5 virðast
legstæði þeirra vera fjærst kirkjunni.
Einn flokkur sker sig þó úr öðrum hvað
staðsetningu varðar en það flokkurinn
Fyrirburar. Grafir þeirra finnast aðeins
norðanmegin í kirkjugörðunum, nálægt
eða inni í kirkjunum. Þetta gefur tilefni
til vangaveltna um það hvort að viðhorf
til óskírðra og andvana fæddra barna
hafi verið mildara þegar nær dró
siðaskiptum en á 12. og 13. öld þegar
lagabálkar þar að lútandi voru skrifaðir.
Rannsóknir hafa ekki sýnt fram á hvort
að andvana fædd börn og óskírð hafi
verið grafin utan kirkjugarðs hérlendis á
kaþólskum tíma.
Það eru undantekningar frá þessu
sem mögulega geta sýnt fram á stöðu
þeirra sem einstaklinga. Í allt eru fimm
börn grafin inni í kirkjum, þar af eitt í
kórnum. Í öðrum fimm tilvikum eru
börn sett ofan í grafir annarra. Börn
hafa einnig í þremur tilfellum verið
grafin tvö og þrjú saman. Hvort þetta
stjórnist af t.d. ættartengslum eða vegna
atbeina barnanna sjálfra er erfitt að
segja til um nema með frekari
rannsóknum.
Þegar þessar niðurstöður eru dregnar
saman í stuttu máli má segja að
fyrirburar skeri sig frá greftrun annarra
barna. Þeir virðast aðeins vera grafnir í
norðurhluta kirkjugarðanna á meðan
staðsetning annarra aldurshópa er
dreifðari. Hér má mögulega greina eitt
þrep í lífshlaupi barnanna og þá að þau __________
80
Þegar á unga aldri lifi ég enn
Fyrirburi Barn fætt fyrir tímann
Barn 1 Barn undir eins árs
Barn 2 1 - 3 ára
Barn 3 4 - 7 ára
Barn 4 8 - 12 ára
Barn 5 13 - 16 ára
Fjöldi Hlutfall
Fyrirburar 7 5%
Barn 1 74 56%
Barn 2 15 11%
Barn 3 11 8%
Barn 4 10 7%
Barn 5 8 6%
Ógreinanlegt 9 7%
Samtals 134 100%
Tafla 2. Flokkun grafanna innan
gagnagrunnsins.
Tafla 3. Dreifing beinagrindanna eftir
flokkum.
sem fæddust fyrir tímann hafi öðlast
ákveðna stöðu. Börn á fyrsta aldursári
(Barn 1) eru yfirleitt grafin sunnan,
vestan eða umhverfis kirkjuna og
kemur sú skipting fram innan allra
rannsóknarstaðanna. Eftir því sem
börnin eldast virðast legstæði þeirra
færast fjær henni. Eflaust koma margir
félagslegir þættir þarna við sögu en
heimsmynd þessa tíma var þar líkast til
stór þáttur.
Samhljómur virðist vera milli texta í
Grágás og fornleifanna. Ef rétt er að
börn hafi verið fermd á aldrinum 6-12
ára og jafnvel fyrr, getur fermingin hafa
skapað annað þrep í lífshlaupi og –ferli
barnanna og þau kannski talin fullorðin
eftir það. Þetta gæti einnig útskýrt af
hverju sum yngri barnanna eru grafin í
fjarlægð frá kirkjunni, þar sem
ritheimildir geta þess að börn undir 6
ára hafi verið fermd.7
Kistur
Í allt voru 46 börn af 134 jörðuð í
kistum í kirkjugörðunum níu. Þessi tala
gefur ekki margt til kynna um
heildarkistunotkun innan kirkju-
garðanna. Í sumum tilvikum gæti hafa
verið um fleiri kistur að ræða en þær
ekki varðveist. Einnig getur verið að
aðeins hluti kirkjugarðs hafi verið
rannsakaður eða varðveisla á kistum
innan hans slæm. Því gæti kistu-
notkunin verið mun almennari á flestum
rannsóknarstaðanna nema Keldudal og
Skeljastöðum þar sem uppgreftri er
lokið. Jafnframt hefur það áhrif að ekki
liggur fyrir mikil vitneskja um
kistunotkun hérlendis á kaþólskum
tíma, hvernig henni var háttað og
hverjir voru helst grafnir í kistum.
Þegar litið er á allar grafirnar innan
gagnagrunnsins kemur í ljós að rúmur
þriðjungur barnanna hlaut greftrun í
kistum. Kistunotkunin er mest hjá
börnum á fyrsta ári (Barn 1) og mjög
svipuð innan flokkanna Fyrirburar og
Barn 2. Áhugavert er að börn í
flokkunum Barn 3 og Barn 4 finnast
ekki jarðsett í kistum og einungis einn
einstaklingur sem tilheyrir flokknum
Barn 5. Meira virðist því hafa verið lagt
í greftrun yngri barnanna í kirkju-
görðunum níu ef litið er á kistur sem
íburð. Viðhorf til andvana fæddra barna
getur hafa mildast með tímanum. Engu
að síður er erfitt að segja til um hvað
gerði það að verkum að börn fengu
greftrun í kistu og sérstaklega er
áhugavert að skoða það útfrá gerenda-
kenningunni. Hvað lá á bak við að
tæpur helmingur yngri barna fékk kistu
og hvað stjórnaði því er ekki vitað.
Mögulega getur það verið atbeini
barnanna sjálfra, samfélagsstaða þeirra,
tíska, framboð á timbri eða reglur.
Stærra úrtak þarf til þess að hægt sé að
draga ályktanir um kistunotkun eldri
barna, ein kista segir alls ekki mikið.
Það virðist ekki vera hægt að nota
kistur til þess að svara markmiði
þessarar rannsóknar. Það vantar frekari
rannsóknir á kistunum sjálfum, svo að
niðurstöðurnar verði marktækar.
Notkunin virðist nefnilega vera mest
þar sem skipulagðar fornleifarannsóknir
__________
81
Ragnheiður Gló Gylfadóttir
7Svo virðist sem
Guðmundur Arason
hafi hlotið blessun
biskups um
ársgamall og
ritheimildir geta
þess að Þorgils
skarði hafi verið
fermdur tveggja ára
(Sigurður Líndal
1974, bls. 281;
Gunnar F.
Guðmundsson
2000, bls. 273-274).