Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015 Eimskip hefur samið við VHE, Kælismiðjuna Frost og Suðurverk um byggingu á 10.000 tonna frysti- geymslu á athafnasvæði félagsins í Hafnarfirði. Byggingin er teiknuð af Önnu Margréti Hauksdóttur hjá AVH arkitektum en aðrir hönnuðir og ráðgjafar eru VSB, Efla og VSÓ Ráðgjöf. Lokið á árinu Í tilkynningu frá Eimskip segir að veruleg aukning hafi orðið í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski sem kalli á aukna frystigeymslu- þjónustu. Einnig sé aukin eftir- spurn eftir vöruhótelþjónustu fyrir frystar neytendavörur. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi geymslunnar verði tilbúinn til notk- unar á þriðja ársfjórðungi og verk- inu verði að fullu lokið fyrir árslok. Auk þess er möguleiki fyrir hendi á að stækka geymsluna í áföngum um allt að 14.000 tonn til viðbótar. Ný frysti- geymsla Eimskips rís  Fyrsti áfangi í notkun í haust Frystigeymsla Teikning af nýrri frystigeymslu Eimskips. Geir Haarde, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, af- henti Barack Obama Bandaríkjaforseta, trúnaðarbréf sitt í Hvíta húsinu í fyrradag. Geir var skipaður sendi- herra í Washington frá og með seinustu áramótum. Trúnaðarbréf er sendibréf í sérstöku formi frá þjóðhöfð- ingja þess ríkis, sem sendiherra kemur frá, til þjóðhöfð- ingja þess ríkis sem tekur við sendiherranum, að því er fram kemur á vef utanríkisráðuneytisins. Afhenti Bandaríkjaforseta trúnaðarbréf Ljósmynd/Lawrence Jackson, The White House Sendiherra Obama, forseti Bandaríkjanna, tók vel á móti Geir Haarde þegar hann afhenti honum trúnaðarbréf sitt. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 36,4% í nýrri könnun MMR en fylgið mældist 34,1% í síðustu mælingu, sem lauk 29. janúar sl. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 25,5%. Næst á eftir kemur Björt framtíð með 15% stuðning og fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 14,5%. Framsóknarflokkurinn mælist með 13,1% fylgi, Vinstri græn með 12,9% og fylgi Pírata mælist 12,8%. Könnunin var gerð 13. til 19. febrúar og var heild-ar- fjöldi svarenda 975 einstak-lingar, 18 ára og eldri. 36,4% segjast styðja ríkisstjórnina Dúkarinn Óli Már • Prentlausnir • ET EHF SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING Í kvöld miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20.00 í Laugarásbíó. Allur ágóði sýningarinnar rennur til líknarmála. ÞÖKKUM STUÐNINGINN LIONS KLÚBBURINN EIR REYKJAVÍK Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Ísland www.rafstjorn.is Virkni loftræstikerfa er okkar fag! Þingsályktunartillaga um þjóðarör- yggisstefnu er nánast tilbúin en ekki liggur fyrir hvenær hún verð- ur lögð fram á Alþingi. Þetta kom fram í máli Gunnars Braga Sveinssonar ut- anríkisráðherra í umræðum í þinginu í gær þar sem hann ræddi málið við Birg- ittu Jónsdóttur, þingmann Pí- rata. Byggt yrði á tillögum þverpólitískrar þing- mannanefndar um mótun þjóðar- öryggisstefnu sem skipuð var árið 2012 í tíð síðustu ríkisstjórnar. „Ekki er gert ráð fyrir þjóðar- öryggisdeild eða auknum vald- heimildum lögreglu í þeirri stefnu enda er það kannski ekki heldur til- gangur hennar,“ sagði ráðherrann. Þá yrði einnig stefnt að stofnun þjóðaröryggisráðs í samræmi við tillögur nefndarinnar. Stofna á þjóðar- öryggisráð Gunnar Bragi Sveinsson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Árni Páll Árnason, formað- ur Samfylkingar- innar, tókust á um stjórn fisk- veiða á Alþingi í gær. Sigmundur sagði að mikil- vægt væri að leysa úr þeirri stöðu sem stjórn fisk- veiða væri í, með ákvæði í stjórnar- skrá um þjóðareign á auðlindum hafsins í kringum landið. Sagði Sig- mundur að það yrði meginstefið í vinnu sjávarútvegsráðherra við ný lög um stjórn fiskveiða. Árni Páll hafði spurt um stöðuna á þessu máli og velti því fyrir sér hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefði neitunarvald í þeim efnum og gæti þar með stöðvað frumvarpið. Sig- mundur vísaði því á bug og benti á að það sama myndi ekki endurtaka sig nú og gerðist á síðasta kjör- tímabili. Vísaði hann þar til tilrauna þáverandi ríkisstjórnar til þess að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu sem náðu ekki fram að ganga. Endurtaka ekki sama leik og síðasta ríkisstjórn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.