Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Blekið varvart þornaðá nýjasta vopnahlés- samkomulaginu í Úkraínudeilunni þegar búið var að rjúfa það. Aðskilnaðarsinnar gripu tækifærið sem vopna- hléið veitti til þess að tryggja stöðu sína í borginni Debalt- seve, sem samkvæmt sam- komulaginu átti að vera hinum megin víglínunnar. Engu að síður héldu leiðtogar Evrópu- sambandsins í vonina um að farið yrði eftir helstu skil- málum vopnahlésins, og um helgina voru þreifingar til fangaskipta, auk þess sem lýst var yfir að flutningur þunga- vopna frá víglínunni ætti að hefjast í vikunni. Bardagar hafa tafið það og enn er óljóst hvernig fer. Það er orðið nokkuð ljóst að aðskilnaðarsinnar telja sig lítt bundna af samkomulaginu og herma nýjustu fregnir að mikill liðssafnaður eigi sér nú stað rétt við hafnarborgina Mariu- pol á strönd Svartahafsins, en hún er nú á valdi Úkraínu- stjórnar. Telur stjórnarherinn líklegt að næsta sókn aðskiln- aðarsinna muni hefjast þar, en væntanlega yrði slík aðgerð til þess að grafa endanlega vonir um að Minsk-samkomulagið geti orðið nokkur grunnur að sátt. En hvernig munu þá vestur- veldin bregðast við? John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þegar talað um að beita verði Rússa frekari efnahagsþvingunum, og Donald Tusk, forseti Evrópu- ráðsins, hefur sagst ætla að ræða við forystu Evrópusam- bandsins um það til hvaða aðgerða sé hægt að grípa. Fátt virðist hins vegar benda til þess að refsiaðgerðirnar hafi nokkurn fælingarmátt gagnvart Rússum eða hinum rússneskumælandi aðskilnaðarsinnum. Það flækir stöðuna nokkuð að gjaldmiðill Úkraínu er nú í frjálsu falli og fátt virðist geta komið í veg fyrir að efnahagur- inn bíði töluverðan hnekki, þrátt fyrir að Bandaríkin, Evr- ópusambandið, Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi veitt landinu fjárhags- aðstoð. Sú aðstoð mun stoða lítt á meðan styrjaldarástand ríkir í austurhluta landsins. Útlitið er því verulega dökkt. Höfuðsmiðir nýjasta vopna- hlésins, þau Merkel Þýska- landskanslari og Hollande Frakklandsforseti, lögðu á það áherslu í aðdragandanum, að vopnahléið væri síðasti mögu- leikinn til þess að afstýra stríði, líkt og Hollande orðaði það. Að óbreyttu virðist sem sá mögu- leiki kunni að verða að engu. Vladimir Pútín, forseti Rúss- lands, lýsti því að vísu yfir í við- tali á mánudag að hann hefði ekki áhuga á stríði og að hann teldi möguleika á að ástandið í Úkraínu yrði smám saman eðli- legt. Pútín hefur, þrátt fyrir að neita aðkomu að átökunum, mest um það að segja hvort vopnahléið heldur og friður næst á ný á svæðinu. Orð hans um friðarhorfur ættu því að vega þungt, en í ljósi reynsl- unnar er líklegt að margir vilji bíða og sjá gjörðir fylgja þess- um orðum áður en þau eru að fullu tekin trúanleg. Ár liðið frá upphafi Úkraínudeilunnar} Vopnahlé í Úkraínu fjarri því að tryggja frið HjálmarSveinsson, formaður um- hverfis- og skipu- lagsráðs Reykja- víkur, sagði á dögunum að til greina kæmi, vegna lélegs við- halds á götum borgarinnar, að breyta forgangsröðun í þágu gatnakerfisins. Bent var á það á þessum stað að í ljósi áherslna núver- andi meirihluta borgarinnar væri þetta ekki mjög trúverð- ugt og nú taka svör Dags B. Eggertssonar borgarstjóra af öll tvímæli um það. Dagur hafnar því að röng forgangs- röðun í umferðarmálum eigi þátt í hve lélegar göturnar í Reykjavík eru orðnar. Kostn- aðarsamar gatna- þrengingar til að hindra för einka- bílsins séu ekki röng forgangs- röðun heldur spari þær gatnakerfið með því að ýta fólki úr bílum sínum yfir í strætó og á reið- hjól. Þetta er út af fyrir sig sjón- armið, að leiðin til að bæta göturnar sé að þvinga fólk til að hætta að nota bílana sína. Slíkt sjónarmið á þó ekki heima í æðstu stjórn borgar- innar. Þar ættu kjörnir fulltrúar og embættismenn að leitast við að þjóna borgar- búum og greiða götu þeirra í stað þess að þvinga þá til að breyta um ferðamáta. Borgarstjóri afhjúpar sig með afstöðunni til umferðarmála} Þvingunaraðgerðir borgarinnar Í íslenskri orðabók handa skólum og al- menningi, annarri útgáfu Menningar- sjóðs 1983, má finna eftirfarandi skýr- ingu við orðið gifta: „2 gifta, -i s 1 gefa til eiginkonu: hann gifti honum dóttur sína.“ „Er konan gefin, eða gefur hún sig?“ spurði hópur kvenréttindakvenna ritstjóra væntan- legrar Íslandssögu í maímánuði 1972. Ung var ég gefin Njáli, segir í Njáls sögu og talið merki um göfuglyndi Bergþóru að hún kaus að þiggja ekki grið en láta frekar lífið með Njáli eiginmanni sínum. Látum lyndiseinkunn Bergþóru liggja á milli hluta í þessum pistli, það sem stakk í augum þegar ég las þessa frásögn fyrir á fimmta áratug er að Bergþóra var gefin Njáli. Í fyrirlestri Bríetar Bjarnhéðinsdóttur um hagi og réttindi kvenna, sem hún flutti í Reykjavík 30. des- ember 1887 og gaf út ári síðar kenndi hún kristnitökunni um það sem hún kallaði niðurlægingu kvenna. Sú skýring er vissulega ekki tæmandi, en því verður ekki neitað að hugmyndin um konur sem eign karlmanna var og er býsna lífseig í samfélögum fyrir botni Miðjarðarhafs, hvaða nafni sem þau kalla guð, sinn og með útbreiðslu trúarinnar ber- ast siðirnir: „Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þræl hans eða ambátt, uxa hans eða asna eða nokkuð það sem náungi þinn á.“ Þetta er meðal þess sem mér flaug í hug þegar ég horfði á frönsk-ísraelsku kvikmyndina Gett, sem sýnd er á Skreiðarkvikmyndahátíðinni í Regnboganum um þessar mundir. Í myndinni segir frá Vivi- ane Amsalem sem hefur óskað hefur eftir skilnaði frá eiginmanni sínum Simon. Hún var gefin honum fimmtán ára gömul en áttaði sig fljótlega á því að Simon væri ekki rétti maður- inn þó að það hafi tekið hana áratugi að óska eftir skilnaði. Hængurinn er að Simon vill ekki skilja við Viviane og undirliggjandi er í ísraels- kum lögum að eiginkonan er eign eiginmanns- ins. Fyrir vikið er hægðarleikur fyrir eigin- menn að skilja við eiginkonur sínar en annað upp á teningnum vilji kona skilja við mann sinn. Gett, sem orðið þýðir víst skilnaður á hebr- esku, er ekki heimildarmynd og ekki byggð nema að hluta á tiltekinni fyrirmynd. Það breytir því ekki að myndin er sönn, – svona er málum háttað því samkvæmt sáttmálanum, torah, getur eiginkona sótt um skilnað, en fær ekki nema eiginmaður- inn samþykki það. Áður en þú stekkur upp á nef þér, kæri lesandi, þá veit ég það vel að með tímanum hefur siðmenningin slípað mestu kvenfyrirlitninguna úr því afbrigði kristinnar trúar sem útbreiddast er hér. Það er þó enn nokkuð í land að hún sé horfin með öllu, sem birtist einna helst í ofbeldi gegn konum sem þær eru beittar af fyrrverandi og núverandi sambýlismönnum; heiðursglæpum sem eiga sér sam- svörun í heiðursglæpum Mið-Austurlanda og reyndar víð- ar. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Er konan gefin, eða gefur hún sig? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Helsta markmið samstarfsMjólkursamsölunnar ogMatís um rannsóknir ámysu er að nýta hráefni úr henni til að búa til etanól til fram- leiðslu á áfengi eða eldsneyti eða til notkunar í iðnaði. Mjólkurvodki er þekkt áfengi í fáeinum löndum. Samningur sem Matís og MS gerðu í síðasta mánuði snýst um að afla þekkingar og gera rannsóknir á hefðbundnu skyri í þeim tilgangi að afla alþjóðlegrar viðurkenningar á því sem sérstæðrar íslenskrar vöru. Rannsóknir á mysunni eru ekki síður áhugaverðar enda möguleikar á að auka mjög verðmæti hráefnisins sem er að hluta til fargað í dag. Hlutverk fyrir mjólkursykur Mikið fellur til af mysu í mjólk- ursamlögunum, einkum stóru osta- gerðarbúunum á Norðurlandi. Áður fór mikið af mysunni sem ekki var hægt að nýta í sjóinn en það hefur breyst mikið á síðustu árum. Farið er að þykkja alla mysu og búa til úr henni mysupróteinþykkni, sem notað er við framleiðslu á prótein- drykknum Hleðslu, en einnig er það endurnýtt við ostagerð og eitthvað fer í fóður. Út úr þessu kemur auka- afurð sem kölluð er mjólkursykur- vatn og vantar hlutverk fyrir, að sögn Björns S. Gunnarssonar, vöruþróun- arstjóra MS. „Það er þekkt fram- leiðsla að breyta mjólkursykrinum í vínanda en rannsóknin gengur út á að athuga hvað er hagkvæmast og hvernig hráefnið nýtist sem best,“ segir Björn. Eyjólfur Reynisson, verkefna- stjóri hjá Matís, segir unnt að nýta mjólkursykurinn til etanólfram- leiðslu með gerjun. „Þetta er aðeins flóknari sykra, tvísykra, en hefð- bundnir gersveppir vinna á en til eru gersveppir og ensím sem nota má til að gerja hana,“ segir Eyjólfur. Í rannsóknarverkefninu er lögð áhersla á að finna bestu leiðina til að gerja vökvann. Byrjað verður á rann- sóknarstofu en verkefnið síðan þróað áfram. Matís og MS hafa sótt sam- eiginlega um styrk úr Tækniþróun- arsjóði til þriggja ára til að vinna að rannsókninni. Þegar gerjunaraðferðin hefur verið fundin þarf að eima vökvann og framleiða etanól eða vínanda. Það er hægt að nota til blöndunar eða fram- leiðslu áfengra drykkja, til dæmis vodka, snafsa eða líkjöra. Til eru fyr- irmyndir í því. Nýsjálendingar nýta sína mysu til framleiðslu á alkóhóli, einnig Írar. Mjólkurvodki er þekkt afurð. Talið er að ýmis einkenni upp- runalega hráefnisins skili sér alla leið og nýtist í markaðssetningunni. Eyjólfur segist ekki hafa neina haldbæra skýringu á því hvers vegna ekki sé framleitt meira áfengi úr mysu og víðar en raun ber vitni. Tel- ur hann helst að framleiðendur þurfi að yfirstíga einhverjar tæknilegar hindranir áður en þeir geti byrjað. Dugar í 2 milljónir lítra Björn hjá MS segir að hér á landi falli til alls um 45 milljónir lítra af mysuvökva sem nefndur er RO- vökvi í mjólkuriðnaðinum. Hann má nýta til að framleiða um 2 milljónir lítra af etanóli sem getur nýst sem grunnur í ýmsar vörur. Eyjólfur segir eðlilegt að huga fyrst að því að nýta etanólið til vín- framleiðslu því þar séu mestu verð- mætin. Einnig megi nota það til framleiðslu á eldsneyti og nota í iðn- aði. Vel mætti hugsa sér að nota et- anólið sem eldsneyti á bíla Mjólkur- samsölunnar eða í annað, á meðan verið væri að þróa verðmætari not fyrir afurðina. Stefnt að framleiðslu vínanda úr mysu Morgunblaðið/Ómar Ostagerð Mysa fellur til við ostagerð alls staðar í heiminum. Misjafnt er hvernig bændum og mjólkursamlögum gengur að gera úr henni verðmæti. Mysuprótein er talið allra pró- teina heilnæmast. Þess vegna er það mikið notað í heilsuvörur ýmiskonar. Er það mest flutt inn. Próteindrykkurinn Hleðsla sem MS framleiðir er eina ís- lenska varan á þessum markaði. Björn S. Gunnarsson hjá MS segir að hægt væri að þurrka próteinduft og selja til fyrir- tækja sem gætu þá notað það í heilsudrykki og aðrar vörur. Það kosti töluvert að koma upp sér- stökum þurrklínum fyrir þetta en það sé í athugun. Sigrún Mjöll Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís, vakti athygli á hollustu mysupróteins í grein sem hún skrifaði í Bændablaðið fyrir fjórum árum. Þar kemur fram að mysuprótein og aðrir efnisþættir mysu eru í vaxandi mæli notaðir til fram- leiðslu á matvælum með sér- staka eiginleika, til dæmis megrunarvörur og íþrótta- og vaxtarræktarblöndur. Heilnæmt prótein MYSUPRÓTEIN FLUTT INN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.