Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015 Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta var 22,8 milljarðar króna á síðasta ári, sem er svipuð afkoma og árið á undan þegar hagnaðurinn var 23,1 milljarður króna. Arðsemi eigin fjár var 12,8% á árinu 2014 og hef- ur farið lækkandi í samanburði við 14,7% árið 2013 og 17,2% árið 2012. Eigið fé bankans hækkaði yfir árið um 18,2 milljarða króna og var í árslok 185,5 milljarðar króna. Eig- infjárhlutfall bankans var 29,6% í samanburði við 28,4% í lok ársins á undan. Rekstrarkostnaður lækkar Hreinar vaxtatekjur hafa lækkað á milli ára um 4,7%. Þær voru 27,1 milljarður króna í samanburði við 28,4 milljarða árið 2013. Vaxtamun- ur var 3% í samanburði við 3,4% árið á undan og búast stjórnendur bankans við því að vaxtamunur verði í kringum það stig til lengri tíma. Hreinar þóknanatekjur hækkuðu um 10% á milli ára, þær voru 11,5 milljarðar króna á árinu í samanburði við 10,4 milljarða árið á undan. Hækkunin er að mestu rak- in til viðskiptabankasviðs og dótt- urfélaga bankans. Rekstrarkostnaður var 26,4 millj- arðar og lækkaði um tæpa 2,5 milljarða frá árinu á undan þegar kostnaðurinn var 28,9 milljarðar króna. Kostnaðarhlutfall bankans var 57,7% og er svipað og var árið á undan þegar hlutfallið var 58,5%, þ.e.a.s. rekstrarkostnaður sem hlut- fall af tekjum að undanskildum bankaskatti og einskiptiskostnaði. Markmið stjórnenda er að ná kostnaðarhlutfalli undir 55%. Bankaskattur á síðasta ári nam 2,4 milljörðum króna. Hlutfall vanskila umfram 90 daga hefur lækkað nokkuð, það var 2,5% í samanburði við 4% árið 2013. Heildareignir bankans voru metnar 911 milljarðar króna í árslok og hafa þær hækkað um 45 milljarða frá árinu á undan þegar þær voru 866 milljarðar króna. Ný lán á árinu námu 165 milljörðum króna sem er um 80% aukning frá árinu á undan og er mesti útlánavöxtur frá stofnun bankans. Útibú Íslandsbanka eru 18 tals- ins og 1.206 starfsmenn eru innan samstæðunnar. Stjórnarmönnum var fækkað úr 9 í 7 á árinu og voru stjórnarlaun 48,4 milljónir króna. Forstjóri og átta framkvæmda- stjórar fengu 264,5 milljónir króna í laun og árangurstengdar greiðslur. Starfsmönnum fækkað Í tilkynningu frá Íslandsbanka er haft eftir Birnu Einarsdóttur bankastjóra að árið 2014 hafi verið gott ár í rekstri Íslandsbanka. „Við höfum unnið markvisst að því að styrkja grunnreksturinn með kostnaðaraðhaldi og tekjuvexti. Hagræðingaraðgerðir hafa skilað árangri en kostnaður af reglulegri starfsemi lækkaði um 2% milli ára, sem er um 4% raunlækkun. Meðal aðgerða sem gripið hefur verið til eru sameiningar útibúa, endurnýj- un samninga við birgja auk þess sem starfsmönnum hefur fækkað um 240 frá nóvember 2011.“ Þá segir Birna að góður árangur hafi náðst í að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans og að hann sé nú stærsti útgefandi sértryggðra skuldabréfa hér á landi. Hagnaður Íslandsbanka um 23 milljarðar annað árið í röð  80% aukning í nýjum útlánum  Hagræðingaraðgerðir hafa skilað sér Morgunblaðið/Ómar Íslandsbanki Birna Einarsdóttir bankastjóri segir að árið 2014 hafi verið gott ár í rekstri Íslandsbanka með kostnaðaraðhaldi og vexti í tekjum. Hagnaður Arion banka nam 28,7 milljörðum króna á síðasta ári, en var við 12,7 milljarðar króna á árinu á undan. Arðsemi eigin fjár var 18,6% en hún var 9,2% árið 2013. Hagnaður af aflagðri starfsemi nam 6,8 milljörðum króna og er stærstur hluti hans tilkominn af sölu á 18,8% hlut í HB Granda. Fyrir átti Arion banki 31% hlut og var eign- arhlutur bankans í HB Granda flutt- ur undir verðbréfaeign í kjölfar skráningar félagsins í apríl og tekur virðisbreytingum undir hreinum fjármunartekjum, en þær námu 6,5 milljörðum króna á árinu 2014. Hreinar vaxtatekjur héldust svip- aðar á milli ára og námu 24,2 millj- örðum króna, en við 23,8 milljörðum árið 2013. Vaxtamunur af meðal- stöðu vaxtaberandi eigna nam 2,8% á síðasta ári en var 2,9% á árinu á undan. Þrátt fyrir áhrif minni verð- bólgu á verðtryggðar eignir var vaxtamunur því svipaður á milli ára, sem bankinn segir skýrast af lægri fjármagnskostnaði með virkari lausafjárstýringu. Hreinar þóknanatekjur jukust um tæp 19% milli ára og námu 13,3 milljörðum króna á árinu 2014. Aukningin er að sögn bankans að mestu tilkomin vegna hærri þókn- anatekna af greiðslukortum og af auknum umsvifum á fjárfestingar- bankasviði. Hrein virðisbreyting nam 2,1 milljarði króna Laun og launatengd gjöld hækk- uðu um 3% á milli ára og annar rekstrarkostnaður hækkaði um 10%. Heildareignir Arion banka námu 933,7 milljörðum króna í árslok, eig- ið fé var 162,2 milljarðar og eig- infjárhlutfall bankans var 26,3%. Stöðugleiki í rekstri „Regluleg starfsemi bankans gekk vel og afkoma var umfram væntingar á öllum helstu tekjusvið- um,“ segir Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri í afkomutilkynningu. Óreglulegir liðir hafi einnig haft já- kvæð áhrif á afkomuna og þá fyrst og fremst sala á hlut í HB Granda og jákvæðar virðisbreytingar. „Við höfum gert ráð fyrir því á undanförnum árum að vaxtamunur bankans myndi lækka, sem hann hefur gert um 0,6 prósentustig, úr 3,4% í 2,8%, á tveggja ára tímabili. Því höfum við lagt áherslu á að auka þóknanatekjur á öllum sviðum bankans,“ segir Höskuldur. Jafn- framt bendir hann á að áhrifa óreglulegra liða muni gæta í minna mæli á næstu misserum, góður stöð- ugleiki sé í rekstri bankans og úr- vinnsluverkefnum sem tengjast hruninu fækki ár frá ári. Arion skilar 28,7 milljarða hagnaði  Sala og skráning HB Granda hafði umtalsverð áhrif á afkomu síðasta árs Morgunblaðið/Eggert Arion Höskuldur segir áherslu lagða á að auka þóknanatekjur. ● Væntingavísitala Gallup hækkaði um 9,7 stig á milli mánaða og mælist nú 91,5 stig. Í greiningu Íslandsbanka segir að svo virðist því sem brún íslenskra neytenda sé eitthvað léttari nú en und- anfarna mánuði. Þetta er fimmta hæsta gildi sem hún hefur náð frá því í apríl 2008 þótt enn séu fleiri svartsýnir en bjartsýnir á ástand og horfur í efna- hags- og atvinnumálum.Hækkunina nú er hægt að rekja til minnkandi svart- sýni kvenna því væntingar karla standa nánast í stað. Í greiningunni kemur fram að þrátt fyrir þessa jákvæðu hreyfingu er væntingavísitalan enn nokkuð frá 100 stiga jafnvæginu sem markar jafnvægi á milli bjartsýni og svartsýni neytenda á stöðu og horfur í efnahags- og atvinnumálum. Á síðast- liðnum 7 árum hefur vísitalan þrívegis náð 100 stigunum. Dregur úr svartsýni neytenda milli mánaða ● Fjármálaráð- herrar evrusvæð- isins framlengdu í gær lánafyrir- greiðslu gagnvart Grikkjum um fjóra mánuði. Var það gert eftir að grísk stjórnvöld lögðu fram bindandi áætlun um hvernig þau hygðust bregðast við skuldavanda ríkisins. Til- lögurnar sem lagðar voru fram fela m.a. í sér aukna eftirfylgni við innheimtu skatta, niðurskurð í ríkisrekstri og markvissari aðgerðir gegn spillingu. Til- lögurnar ganga lengra en ríkisstjórn Grikklands hafði áður lýst sig reiðubúna til að skrifa upp á. Nú þurfa löggjafarþing nokkurra þeirra ríkja sem aðild eiga að evrunni að leggja blessun sína yfir sam- komulagið, þar á meðal Bundestag í Þýskalandi, en þar verða atkvæði greidd um samkomulagið á föstudag. Grikkir fá lengri frest Alexis Tsipras forsætisráðherra. Stuttar fréttir…                                     !"  !#  # #$$ !% $   # %#"% ! # &'()* (+(       ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5   $"  $!!   ! #$ !# !  " %"!" $! "  $%"  $%"   # !### "$  ! %# $!  "%! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á VERKFÆRI MEISTARANS Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899Netfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.