Morgunblaðið - 25.02.2015, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
akkar
ök
kjur
Glæný línuýsa
Hrogn og lifur
Súr hvalur og hákarl
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Frumvarp til laga um breytingu á
lögum um Lánasjóð íslenskra náms-
manna er tekur til endurgreiðslu
lána og niðurfellingar, var fyrir ára-
mót lagt fram á Alþingi í fimmta
sinn.
Á yfirstandandi þingi og í fyrra
er einn flutningsmaður að frum-
varpinu, Sigríður Ingibjörg Inga-
dóttir, Samfylkingu, en í fyrstu þrjú
skiptin sem frumvarpið var lagt
fram, voru þrír stjórnarþingmenn
úr röðum Vinstri grænna flutnings-
menn ásamt stjórnarandstöðuþing-
mönnum Framsóknarflokksins og
Hreyfingarinnar. Lilja Mósesdóttir,
Vinstri grænum, var fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins í fyrstu
þrjú skiptin.
Sigríður Ingibjörg gerir eina
breytingu á frumvarpinu frá því
sem var í fyrra. Hún bætir inn einni
setningu í 1. grein sem er svohljóð-
andi: „Við fráfall ábyrgðarmanns
falla niður þau lán sem hann hefur
gengist í ábyrgð fyrir.“
Verði lagfært í meðförum
nefndarinnar
Sigríður Ingibjörg var í gær
spurð hvers vegna hún hefði breytt
frumvarpinu með ofangreindum
hætti og hvort hún væri að leggja til
að upphaflegur lántaki þyrfti ekki
að standa skil á láninu ef ábyrgð-
armaður lánsins félli frá:
„Það er góð spurning. Þegar ég
lagði fram frumvarpið fyrst, þá kom
það mér mjög á óvart, hversu marg-
ir höfðu samband við mig, sem voru
í vandræðum út af dánarbúum þar
sem með fylgdu lánaskuldir. Þá
gátu lántakar verið annað hvort
dánir eða horfnir, þannig að lánið
var fallið á ábyrgðarmann og þar
með úr höndum lántaka,“ sagði Sig-
ríður Ingibjörg.
Sigríði Ingibjörgu var bent á að í
breyttu frumvarpi hennar væru
engin ákvæði um það, að lántaki, ef
hann væri á lífi, ætti áfram að
standa skil á láninu. „Það er ekki
meiningin, og það þarf þá bara að
lagfæra það í nefnd, en þar er frum-
varpið til meðferðar nú. Meiningin
með breytingunni er sú, að lánið
falli niður, hafi ábyrgðin af láninu
verið fallin á ábyrgðarmann, sem
síðan fellur frá,“ sagði Sigríður
Ingibjörg.
Hún var spurð hvort þessi grein
væri ekki vanhugsuð, eins og hún er
sett fram í frumvarpinu: „Það held
ég ekki. Hún er ekki vanhugsuð, af
því hún kemur upp úr umræðu um
ábyrgðir sem fallið hafa á ábyrgð-
armenn, eins og ég sagði áðan,“
sagði Sigríður Ingibjörg.
Beitir sér ekki fyrir lagabreyt-
ingum af greiðasemi
Sigríður Ingibjörg var loks spurð
hvort þessi nýja setning í frumvarp-
inu væri til komin af greiðasemi við
Guðmund Steingrímsson, sem hefur
mótmælt því harðlega að dánarbú
fjölskyldu hans sé krafið um
greiðslur af námsláni Steingríms
Steingrímssonar, tannlæknis í
Bandaríkjunum, sem er sonur
Steingríms Hermannssonar, heit-
ins, fyrrverandi formanns Fram-
sóknarflokksins og forsætisráð-
herra, af fyrra hjónabandi.
Steingrímur Hermannsson var
ábyrgðarmaður láns Steingríms
Steingrímssonar: „Nei, svo er alls
ekki. Þegar ég lagði frumvarpið
fram fyrst, fékk ég margar fyr-
irspurnir um þetta efni og taldi því
eðlilegt að bæta þessari setningu
inn. Þetta hefur ekkert með greiða-
semi við Guðmund Steingrímsson
að gera, enda á hann ekki inni hjá
mér greiða og ég myndi ekki beita
mér fyrir lagabreytingum, til þess
að gera fólki greiða,“ sagði Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir.
Fráfall ábyrgðarmanns
Í greinargerð með frumvarpinu
um fráfall ábyrgðarmanns segir
m.a.: „Í frumvarpinu er lagt til að
við fráfall ábyrgðarmanns falli nið-
ur þau lán er hann hefur gengist í
ábyrgð fyrir. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Lánasjóði íslenskra
námsmanna voru í maí á þessu ári
þrjátíu lán í innheimtu þar sem erf-
ingjar eða dánarbú væru að greiða
af námslánum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Lánasjóðnum er um að
ræða mál þar sem aðilar hafa geng-
ist við ábyrgð og samið um uppgjör.
Ekki er að öðru leyti haldið utan
um upplýsingar um þau lán þar sem
erfingjar eða dánarbú eru greið-
endur.“
Í greinargerðinni segir jafnframt
að frumvarpið sé að mestu leyti
byggt á löggjöf á Norðurlöndunum,
en jafnframt tekið fram að þar
byggist námsaðstoðarkerfið á sam-
setningu styrkja og lána. Niðurfell-
ingarheimildir vegna veikinda, ör-
orku eða fötlunar séu fyrir hendi í
Noregi og Svíþjóð.
Lán falli niður við lát ábyrgðarmanns
„Breytingin ekki gerð af greiðasemi við Guðmund Steingrímsson,“ segir Sigríður Ingibjörg Inga-
dóttir, flutningsmaður frumvarpsins, um breytingar á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alþingi Frumvarpið sem Sigríður Ingibjörg Ingadóttir flytur nú um breyt-
ingar á lögum um niðurfellingu lána hjá LÍN er nú flutt í fimmta sinn.
Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir
Guðmundur
Steingrímsson