Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Mér varð á um daginn að
hoppa upp í vitlausan stræt-
isvagn í Ártúnsbrekkunni
þar sem nokkrir vagnar
tímajafna. Þegar ég áttaði
mig á því spurði ég bílstjór-
ann hvar ég gæti náð öðrum
vagni sem flytti mig nær
áfangastað, hann svaraði því
fljótt og vel og bauð mér líka
skiptimiða svo ég þyrfti ekki
að borga í næsta vagni, sem
hann hefði þó ekki þurft að
gera. Þetta kalla ég góða
þjónustu, takk fyrir mig.
Ánægður farþegi.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Almennilegur bílstjóri
Samgöngur Það má láta hugann reika í strætó.
Fyrir um 80 árum
myndaðist af náttúr-
unnar hendi rof í garð-
inn framan við Haga-
vatn sunnan
Langjökuls og þannig
lækkaði vatnsborð
vatnsins um tugi metra.
Í kjölfarið hófst mikill
uppblástur úr hinum
uppþornaða vatnsbotni
og grunnvatnsstaða
svæðisins lækkaði sem ýtti undir
frekara landrof. Hugmyndir um að
stífla þetta rof í garðinn komu því
fyrst fram hjá landeigendum og síðan
Landgræðslu ríkisins, en hún hafði
áður staðið fyrir sambærilegri fram-
kvæmd við Sandvatn.
Breytingar á vatnsborði
Í fyrri hugmyndum um Haga-
vatnsvirkjun var virkjunin útfærð
sem toppaflsvirkjun með allt að 35
MW aflgetu. Hugmyndin var þá að
nýta virkjunina til að jafna út dag-
sveiflur í raforkunotkun og koma
þannig með raforkuframleiðslu inn á
netið þegar álagið var mest en stöðva
vinnslu þess á milli. Ef virkjunin
hefði verið útfærð sem toppaflsstöð
þá hefði slíkur rekstur haft í för með
sér óreglulegan niðurdrátt á vatns-
borði Hagavatns. Þegar félagið Ís-
lensk vatnsorka kom að verkefninu
var ákveðið að breyta hönnun virkj-
unarinnar yfir í jafnrennslisvirkjun,
þ.e. rennsli virkunarinnar er jafnt og
engar sveiflur í niðurdrætti Haga-
vatns.
Þetta breytir þó ekki þeirri stað-
reynd að nær öll vötn á hálendinu
leggur á veturna þegar ár, lækir og
yfirborðsvatn breytast í ís. Þetta mun
líka gerast í Hagavatni. Þegar vatnið
leggur á haustin þá myndast íshella á
vatninu en vatnið undir íshellunni
dregst niður yfir vetrarmánuðina.
Gert er ráð fyrir að íshellan liggi yfir
veturinn á þeim stað sem vatnið var
að hausti þó að vatnsborðið dragist
niður. Að vori hlýnar síðan og ísinn
breytist aftur í vatn og heldur yfir-
borðinu röku meðan hann bráðnar.
Þegar allur snjór og ís á
hálendinu hefur breyst í
vatn þá nær vatnsborð
Hagavatns aftur fyrri
hæð fljótlega eftir að
snjóa leysir.
Þessi útfærsla á
Hagavatnsvirkjun mun
þannig koma í veg fyrir
dægursveiflur í nið-
urdrætti Hagavatns.
Árssveiflur verða hins
vegar í lónhæð eins og
öllum stöðuvötnum á
hálendinu þegar vatn
breytist í ís og er þeim lýst í skýrslu
verkfræðistofunnar Mannvits. Áhrif
endurheimtar Hagavatns í fyrra horf
á gróður og sandfok verða þannig já-
kvæð þar sem sandleirur frá fyrra
vatnsborði munu aftur hverfa undir
vatn og grunnvatnsborð á svæðinu
mun hækka.
Rannsóknir og skýrslur
Orkuveita Reykjavíkur fékk upp-
haflega úthlutað rannsóknarleyfi
þann 1. apríl 2007 til athugana á
virkjunarvalkosti við Hagavatn sunn-
an Langjökuls. Á síðustu árum hafa
farið fram á svæðinu umfangsmiklar
rannsóknir, sem ná m.a. til útfærslu
virkjunarhugmynda, mats á helstu
umhverfisáhrifum, arðsemi og flest-
um þeim þáttum sem tengjast slíkri
framkvæmd.
Íslensk vatnsorka hefur haldið
áfram rannsóknum á verkefninu um
Hagavatnsvirkjun sem hafa nú staðið
yfir í átta ár. Fyrir liggja tugir grein-
argerða og skýrslna um alla þá um-
hverfisþætti sem skipta máli við slíka
framkvæmd. Mikil áhersla hefur ver-
ið lögð á að útfæra virkjunina í sam-
ráði við sveitarfélagið, landeigendur
og aðra sem hlut eiga að máli. Þessi
rannsóknarvinna hefur síðan leitt til
endurbóta á útfærslu virkjunar-
hugmyndanna með það í huga að
auka hin jákvæðu áhrif.
Orkuafhending úr Hagavatns-
virkjun verður með jarðstreng frá
virkjuninni niður í Haukadal og það-
an inn á dreifikerfið á Flúðum, mun
það samkvæmt fyrirliggjandi áliti
Landsnets auka öryggi orkuafhend-
ingar á Suðurlandi og mögulegt er að
raforkan nýtist í héraði til notkunar
hjá garðyrkjubændum við afhending-
arstað.
Sem kunnugt er starfrækir Ferða-
félag Íslands ferðaskála við Haga-
vatn. Íslensk vatnsorka hefur átt í
viðræðum við Ferðafélag Íslands um
hugmyndir sem snúa að endurnýjun
skálans og að nýr skáli yrði bæði með
rafmagni og fullkominni hreinlæt-
isaðstöðu og opinn almenningi. Svæð-
ið umhverfis Langjökul er mjög vin-
sælt útivistarsvæði, sérstaklega á
veturna, og sótt heim af fleiri þúsund
ferðamönnum. Á öllu svæðinu er
samt engin hreinlætisaðstaða og er
viðbúið að umhverfisáhrif þess að
fleiri þúsund ferðamenn skuli hafa
aðgang að hreinlætisaðstöðu muni
verða jákvæð.
Önnur umhverfisáhrif
Ein mesta umhverfisógn jarðarbúa
stafar að útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda og hlýnun jarðar. Hlýnun
jarðar, hækkun sjávar og tíðari felli-
bylir hafa haft gríðarleg áhrif á stór-
an hluta jarðarbúa og uppbygging
virkjana án útblásturs er eitt af
helstu baráttumálum umhverfissinna
um víða veröld. Mikilvægt er að Ís-
lendingar taki þátt í þessu með skyn-
samri nýtingu landsins og þar er hug-
myndin um rammaáætlun mjög góð
þar sem hugmyndir um virkj-
anavalkosti eru bornar saman og
ákveðnir valkostir valdir úr til frekari
skoðunar. Frekara mat virkjana-
valkostanna fylgir síðan í kjölfarið
með umhverfismati eins og lög gera
ráð fyrir.
Hagavatnsvirkjun –
Jákvæð umhverfisáhrif
Eftir Eirík
Bragason »Útfærslu Haga-
vatnsvirkjunar var
breytt úr toppaflsstöð
yfir í jafnrennslisvirkj-
un en við það verða um-
hverfisáhrifin mun já-
kvæðari.
Eiríkur Bragason
Höfundur er verkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar vatnsorku
hf.
Ég fer í verslun og
geri góð kaup. Ég segi
frá viðskiptunum ef
aðrir vilja nýta sér það
sem í boði er. Þetta
gera flestir og þykir al-
veg sjálfsagt mál. Eng-
ir amast við því að ég
segist hafa keypt hlut
á góðu verði eða sakar
mig um að ég sé að
reka áróður fyrir
versluninni, heldur þakka fyrir veitt-
ar upplýsingar.
Ég fer í kirkju, þar sem boðað er
að Jesús Kristur hafi dáið á krossi,
vegna synda minna, til að ég megi
eiga eilíft líf. Ég fer með bæn í þess-
um dúr: „Drottinn Jesús, ég iðrast
synda minna og bið þig að hreinsa
hjarta mitt og koma inn í líf mitt.“
Það tekur 5 sek. að fara með bænina.
Ég finn að eitthvað hefur gerst innra
með mér sem hefur góð áhrif á mig.
Ég segi öðrum frá þessu. Sumir
hlusta hljóðir á frásögn mína og fara
að tala um eitthvað annað. Aðrir
bregðast þannig við að þeir gera grín
að upplifun minni. Nokkrir bregðast
reiðir við og segjast engu trúa eða þá
einhverju allt öðru og saka mig um
trúaráróður. Ég skil ekki neitt í
neinu, var bara að segja frá að góðir
hlutir hefðu hent mig, sem stæðu
öðrum til boða. Nokkrir hlusta með
athygli á frásögn mína og vilja sjálfir
fá að upplifa það sama og ég. Þeir já-
kvæðu gleðja hjarta mitt en ég get
ekki þekkt þá úr fyrirfram.
Tvær góðar fréttir eru hér sagðar,
önnur varðar veraldleg gæði en hin
varðar andleg gæði.
Um veraldlegu gæðin sameinast
allir. Þjóðerni, litarháttur, trúar-
viðhorf valda þar ekki deilum.
Mammon er viðurkenndur „frelsari“
og ein trú ríkir um mikilvægi budd-
unnar. Öðru máli gegnir um sálu-
hjálpina, þar eru ólík viðhorf. Biblían
kennir að Jesús Kristur hafi komið í
heiminn til að frelsa sálir frá syndum
og forða þeim frá glötun. Nú skyldi
maður halda að fólk tæki svona frétt
með fögnuði enda er talað um fagn-
aðarerindið í því sambandi, en það er
allur gangur á því eins og fram hefur
komið.
Kristna trú er ekki hægt að kenna,
hún er gjöf Guðs Biblíunnar til
manna. Enginn háskóli getur kennt
trú. Hægt er að kenna fræðin sem
tengjast trúnni en þau eru einskis
virði til sáluhjálpar. Kristin trú er
gjöf sem hver einstaklingur verður
að þiggja af skapara sínum. Kristnir
menn segja frá trú sinni og vitna um
sína trúarreynslu. Þeirra skylda er
að gera það til að allir eigi möguleika
á að þiggja gjöfina miklu (stóra vinn-
inginn), hjálpræði Jesú Krists. Eng-
inn þiggur stærri gjöf en líf þess sem
dó á krossi vegna mín/þín. Blóðið
sem Jesús úthellti er eina „lyfið“ sem
megnar að hreinsa hjarta syndugs
manns. „Synd er að þér trúið ekki á
mig,“ segir Jesús. Hann segir það
vegna þess að þeir sem hafna gjöf-
inni deyja í synd og glatast. Glötunin
er eitthvað svo hryllileg að Guð Bibl-
íunnar átti það eitt úrræði að senda
son sinn í dauðann öðr-
um til bjargar. Öllum er
gefin frjáls vilji til að
þiggja eða hafna góðu
gjöfinni og útilokað er
að þvinga kristna trú
upp á einn eða neinn.
Það er ótrúlegt að til
skuli vera félög, jafnvel
á ríkisstyrkjum, sem
hafa það á stefnuskrá
sinni að vinna gegn því
að Guðs orð sé boðað til
sáluhjálpar. Enn ótrú-
legra er að til skuli vera
vígðir prestar sem virðast ekki
höndla þá skyldu að boða hjálpræðið
í Jesú og átta sig ekki á um hvað
kristni snýst. „Krossinn“ er sáðkorn
kristninnar og þarf að skjóta rótum í
hjörtum fólks til að kristnin vaxi.
Sumir prestar og guðfræðingar villa
um fyrir almenningi með því að boða
eitthvað allt annað. Ljúga því t.d. að
Biblían og Kóraninn eigi eitthvað
sameiginlegt. Biblían boðar Jesú
sem frelsara manna frá syndum og
sem Guð kristinna manna. Kóraninn
niðurlægir Jesú og gerir hann að
spámanni óæðri Múhameð. Í Nígeríu
rænir Allah kristnum barnaskóla-
stúlkum í hundraða tali og lætur
múslimsku mannræningjana, nauðg-
arana og morðingjana, neyða upp á
þær trú sinni og gera þær að kynlífs-
þrælum. Viðbjóðurinn er takmarka-
laus en fjölmenningarvellan á Vest-
urlöndum reynir að gera gott úr
þessu og trúboðar hennar segja jafn-
vel að ekki séu þeir kristnu betri og
þjóna þannig Allah í raun. Það getur
ekkert gert illsku góða, síst af öllu
fölsk góðvild.
En það eru ekki bara „mínus
prestar“ sem tala eins og hver vill
heyra sem bregðast. Allir sem telja
sig kristna eiga að segja frá góðu
fréttunum og hafa þrá til þess, ann-
ars er eitthvað að trúnni sem þarf að
blása lífi í með bæn, lestri orðsins og
kirkjusókn hjá plús prestum.
„Drottinn Jesús ég iðrast synda
minna og bið þig að hreinsa hjarta
mitt og koma inn í líf mitt.“ Þessi
bæn, sem hægt er að fara með í
mörgum myndum ef innihaldið skilar
sér, er kölluð hjálpræðisbæn. Sé
hjálpræðisbænin beðin af einlægni
er það sú bæn sem Guð heyrir alltaf.
Sá sem þiggur góðu fréttirnar eign-
ast hlutdeild í þeim og öðlast eilíft líf
á himnum með Jesú Kristi. Sú bless-
un og skylda fylgir þeirri gjöf að
segja öðrum frá góðu fréttunum.
Andkristnir áróðursmenn sem
hindra frjálst vitnisburða frelsi krist-
inna manna oftúlka trúfrelsislög á
kostnað laga um málfrelsi. Það er af-
leitt þegar áhrifa þeirra gætir á al-
þingi í borgar- og bæjarstjórnum og
hjá fjölmiðlum. Maður spyr sig, er
góð frétt trúboð?
Ég bið Íslendingum Guðs friðar.
Er góð frétt trúboð?
Eftir Ársæl
Þórðarson
Ársæll Þórðarson
»Mammon er viður-
kenndur „frelsari“
og ein trú ríkir um
mikilvægi buddunnar.
Höfundur er húsasmiður.