Morgunblaðið - 25.02.2015, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Stockfish - evrópsk kvikmyndahátíð 2015
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Franski leikstjórinn Rachid
Bouchareb og enska leikkonan
Brenda Blethyn eru heiðursgestir
kvikmyndahátíðarinnar Stockfish
sem stendur nú yfir í Bíó Paradís.
Þrjár kvikmynda Bouchareb eru á
dagskrá hátíðarinnar og Blethyn
leikur í tveimur þeirra, London
River og Two Men in Town en
þriðja myndin er Indigénes.
Blethyn þarf vart að kynna fyrir
áhugamönnum um kvikmyndir.
Hún vakti heimsathygli fyrir
magnaðan leik sinn í kvikmynd
Mike Leigh, Secrets & Lies frá
árinu 2006 og hlaut fjölda verð-
launa og tilnefninga fyrir, m.a. til
Óskarsverðlauna. Bouchareb er
einnig margtilnefndur og -verð-
launaður fyrir kvikmyndir sínar og
hafa þrjár mynda hans verið til-
nefndar til Óskarsverðlauna.
Blethyn og Buchareb tóku þátt í
meistaraspjalli (e. masterclass) um
samband leikara og leikstjóra í
fyrradag sem stýrt var af Benedikt
Erlingssyni. Blaðamaður ræddi við
Blethyn og Bouchareb skömmu
áður en það hófst.
Efins í fyrstu
Blethyn segir samstarf þeirra
Bouchareb hafa gengið snurðu-
laust fyrir sig. „Þegar ég var beðin
um að hitta Rachid vegna kvik-
myndar sem hann ætlaði að gera
um hryðjuverkaárásirnar í Lund-
únum þekkti ég ekki verk hans og
var ekki viss um að mig langaði að
leika í kvikmynd um þetta efni,“
segir Blethyn. Henni hafi ekki lit-
ist á það að leika í dramatískri
kvikmynd um svo skelfilegan at-
burð. Umboðsmaður hennar hafi
hins vegar hvatt hana til að horfa á
myndir Bouchareb sem hún hafi
gert, horft á Little Senegal og hrif-
ist mjög af henni og tilfinninga-
næmi leikstjórans.
„Þegar ég hitti Rachid í Lund-
únum varð ljóst að ég yrði í góðum
höndum og að myndin yrði gerð af
mikilli nærgætni,“ segir Blethyn.
Spurð að því hvort hún átti sig
yfirleitt svo fljótt á því hvort hún
vilji vinna með leikstjóra segir
Blethyn það ekki alltaf vera þann-
ig. „Stundum hefur maður rangt
fyrir sér,“ segir hún og nefnir sem
dæmi stutta sjónvarpsþætti sem
hún hafi leikið í í Bandaríkjunum
sem Herbert Wise átti að leik-
stýra. Blethyn segist hafa unnið
með honum áður og það farsæl-
lega. „Á fyrsta tökudegi kom hann
að máli við mig og sagði að hann
gæti ekki unnið með þessum
Bandaríkjamönnum og væri hætt-
ur. Annar leikstjóri kom í hans
stað, hafði ekki hugmynd um hver
ég var og treysti mér engan veg-
inn. Mér finnst mjög erfitt þegar
leikstjóri treystir mér ekki, þá fer
ég bara á hlýðni-stillingu og geri
hvað sem hann segir,“ segir hún.
Beið í ár
Bouchareb segist hafa séð Bleth-
yn fyrst á hvíta tjaldinu nokkrum
árum áður en hann sóttist eftir því
að hún léki í London River. Hann
hafi verið afar hrifinn af frammi-
stöðu hennar og sé ævinlega þakk-
látur henni fyrir að hafa tekið að
sér hlutverkið, hlutverk móður
sem leitar týndrar dóttur sinnar í
kjölfar hryðjuverkanna í Lund-
únum þann 7. júlí árið 2005. Hann
hafi frestað tökum um heilt ár til
þess að Blethyn gæti leikið í
myndinni. „Já, þú gerðir það!“
skýtur Blethyn inn í, brosir sínu
blíðasta og Bouchareb hlær og
segist ekki sjá eftir því. „Þetta var
virkilega góð reynsla því Brenda
er frábær leikkona,“ segir Bouch-
areb og líkir henni við Rolls Royce.
„Það er fallegur bíll, sterkbyggður
og heillandi,“ segir Bouchareb.
„Ég vil vinna með leikurum sem
mér líður vel með. Það er eins og
að vinna í happdrætti að finna
manneskju eins og hana,“ segir
hann um Blethyn. Hún bætir því
við að gott samstarf milli leikara
og leikstjóra sé bráðnauðsynlegt
og þá ekki síst að leikarar séu
óhræddir við að biðja um leiðbein-
ingar og hjálp. Bouchareb sé til
fyrirmyndar hvað þetta varðar og
hann og leikarar myndanna
tveggja hafi ekki látið egóin flækj-
ast fyrir sér.
Bouchareb bætir við að leikari
geti verið sá besti í heimi en ef
sjálfselskan sé að trufla hann og
aðra í tökum fái hann að fjúka.
Hann vilji greinda, hæfileikaríka
leikara sem séu ekki með stæla.
„Það er óskaplega erfitt að gera
kvikmyndir og þess vegna gengur
ekki að hafa einhverjar deilur milli
manna,“ segir Bouchareb. Lífið sé
dásamlegt og alltof stutt fyrir rifr-
ildi. Blethyn tekur undir það.
Eitt af fyrirhuguðum umfjöll-
unarefnum meistaraspjallsins í
fyrradag var persónusköpun, að
hversu miklu leyti leikari og leik-
stjóri skapi persónu kvikmyndar
saman. Bouchareb og Blethyn eru
spurð að því að hversu miklu leyti
persónurnar sem Blethyn leikur í
myndum Bouchareb voru mótaðar
fyrir tökur. Bouchareb svarar því
til að þegar gæðaleikkona eins
Blethyn sé annars vegar þurfi ekki
að útskýra í þaula persónuna. „Ég
veit að persónan er Brenda Bleth-
yn,“ segir hann. Lýsingin á per-
sónunum í handritunum hafi átt
mjög vel við hana og hann hafi
treyst henni til að skila þeim á
hvíta tjaldið. Hann hafi aðeins
þurft að breyta henni útlitslega,
klippa hárið og velja viðeigandi föt.
Hörkukvendi
Persónurnar sem Blethyn leikur
í myndum Bouchareb eru æði ólík-
ar, annars vegar móðir sem leitar í
örvæntingu dóttur sinnar í London
River og hins vegar skilorðsfulltrúi
í Nýju-Mexíkó í Two Men in Town.
Blethyn er spurð að því hvort skil-
orðsfulltrúinn sé harður í horn að
taka og hún svarar því játandi.
„Hún er kona í karlaheimi og
býsna mikið hörkutól. Ég dvaldi
um tíma í Albuquerque með skil-
orðsfulltrúum. Konurnar sem
starfa við þetta þar eru líkamlega
sterkbyggðar og sú sem ég varði
mestum tíma með var lágvaxnari
en ég en stærri en ég að öllu öðru
leyti, bæði að styrk og persónu-
leika. Ég spurði hana að því hvern-
ig hún færi að því að handtaka
stóran og þrekinn karlmann og
hún spurði hvort ég vildi sjá hana
gera það,“ segir Blethyn og hlær.
Skilorðsfulltrúinn hafi hóað í risa-
vaxinn lögreglumann, knésett hann
á augabragði og spurt hann svo
hver væri nú „stóri karlinn“.
Blethyn og Bouchareb hlæja inni-
lega að þessu. „Hún notaði bara
röddina og var svo ógnvekjandi að
maðurinn átti ekki annarra kosta
völ en að hlýða henni.“
Vissi ekki hvað kvikmynd
Leigh fjallaði um
Blethyn er spurð að því hvort
rétt sé að hún hafi ekki vitað um
hvað Secrets & Lies fjallaði fyrr
en hún sá myndina. Hún segir það
rétt enda vinni leikarar ekki eftir
handriti í myndum Leigh. „Hver
leikari vinnur sjálfstætt og ræðir
ekki við hina leikarana um það
sem hann er að gera nema þegar
þeir eru að leika saman í atriði.
Þannig að þú veist ekkert um at-
riðin sem þú leikur ekki í, alls ekk-
ert. Ég vissi því ekki um hvað
myndin var fyrr en ég sá hana,“
segir Blethyn og hlær.
Að lokum eru Blethyn og Bouch-
areb spurð að því hvort þau ætli að
gera fleiri kvikmyndir saman. „Ég
vona það,“ svara þau bæði í kór.
„Gamanmynd,“ segir Bouchareb.
„Brenda er fyndin, kann að
syngja … ég þarf að fá góða hug-
mynd,“ bætir hann við. „Ég er með
hugmynd, ég skal segja þér frá
henni á eftir!“ segir Blethyn og
bæði hlæja innilega.
„Eins og að vinna í happdrætti“
Brenda Blethyn og Rachid Bouchareb eru heiðursgestir kvikmyndahátíðarinnar Stockfish
Blethyn hefur leikið í tveimur kvikmynda Bouchareb sem líkir henni við Rolls Royce
Morgunblaðið/Golli
Perluvinir Brenda Blethyn og Rachid Bouchareb eru miklir vinir og hafa átt farsælt samstarf í tveimur kvikmynd-
um. Bouchareb vill gjarnan vinna með henni aftur og segist þurfa að fá góða hugmynd að gamanmynd.
Viðtalið fór fram daginn eftir af-
hendingu Óskarsverðlaunanna og
margir Íslendingar eflaust von-
sviknir yfir því að Jóhann Jóhanns-
son skyldi ekki hljóta þau fyrir
bestu frumsömdu kvikmynda-
tónlistina, við The Theory of Eve-
rything. Blethyn og Buchareb hafa
bæði verið tilnefnd til verðlaun-
anna eftirsóttu en ekki hlotið þau
og langaði blaðamann að vita
hvort þau hefðu verið vonsvikin yf-
ir því á sínum tíma. „Ég er alltaf
vonsvikinn, jafnvel áður en ég er
tilnefndur,“ segir Buchareb og
hlær. Hann bætir því við að hann
hafi ekki orðið fyrir vonbrigðum,
hann vilji bara gera kvikmyndir.
lethyn segir það næga viður-
kenningu að hljóta tilnefningu og
því hafi hún
ekki orðið fyrir
vonbrigðum.
„Þó að einn
sigri gerir það
hina ekkert
verri,“ segir
hún. Bouchareb
bendir á að
Blethyn hafi
hlotið ekki minna merkileg verð-
laun, sem besta leikkonan á kvik-
myndahátíðinni í Cannes árið 1996
fyrir Secrets & Lies. Blethyn seg-
ist hafa verið skýjum ofar þegar
hún hlaut þau, ein af fjölmörgum
verðlaunum sem hún hefur hlotið
á ferlinum. Bouchareb hefur hlotið
þrenn verðlaun í Cannes auk fjölda
annarra.
Urðu ekki fyrir vonbrigðum
ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGARNAR
Mike Leigh
:
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fermingarblað Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 6. mars
FERMINGAR
Fermingarblaðið er
eitt af vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins og
verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni.
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 2. mars.
–– Meira fyrir lesendur