Morgunblaðið - 28.02.2015, Síða 4

Morgunblaðið - 28.02.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015 „Nú er mjólkin alveg búin hjá okk- ur, líka það sem við áttum í frysti,“ sagði Linda Guðmundsdóttir, úti- bússtjóri Kaupfélags Steingríms- fjarðar í Norðurfirði, þegar rætt var við hana fyrir hádegi í gær. Fluginu var aflýst í gær og því varð bið á að mjólk, grænmeti og nýmeti bærust norður í Árnes- hrepp, að póstinum ógleymdum. Linda var þá að hamast við að moka snjó af planinu við kaup- félagið og bensínstöðina, en dregið hafði í skafla um nóttina. Hún sagði að áhlaupið í vikunni hefði verið talsvert, en þó ekki eins slæmt og fólk hefði reiknað með. Mokað var innan sveitar í gær, en oft hefur verið meiri snjór í Árnes- hreppi. „Tíðin hefur verið leiðinleg í vetur og flug oft fallið niður þess vegna,“ segir Linda. „Nokkrum sinnum hefur vantað mjólk og grænmeti, en enginn skortur verið á öðrum vörum. Ég á yfirleitt mjólk og rjóma í frysti og svo G- mjólk og kaffirjóma, þannig að það er alltaf hægt að bjarga sér. Þegar veðrið er svona er ósköp lítið við því að gera þó svo að mjólkin klár- ist,“ segir Linda. Opið er í kaup- félaginu eftir hádegi fjóra daga vikunnar, en vörur hefur hún ekki fengið frá því í vikubyrjun. Linda er frá Finnbogastöðum og dvelur nú veturlangt í Árneshreppi í fyrsta skipti í tæplega 20 ár, eða frá því að hún var 14 ára. Þá fór hún að heiman til að ljúka grunn- skólanámi. Mörg sumur hefur hún dvalið heima í sveitinni og öll vor til að aðstoða við sauðburð. Sex börn eru í skólanum að Finnbogastöðum og kennir Linda tónmennt og rekur einnig lítinn tónlistarskóla þar sem börn og fullorðnir geta mætt í einka- kennslu. Hún segir að tveir eldri íbúar hafi viljað læra á hljóðfæri og gripið tækifærið þegar það gafst í vetur. Lítið við því að gera þótt mjólkin klárist Ljósmynd/Elín Agla Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Frá áramótum hafa flugsam- göngur gengið erfiðlega norður í Árneshrepp á Ströndum og oft hefur þurft að fresta eða aflýsa flugi. Ásgeir Örn Þorsteinsson, markaðsstjóri Ernis, segir að frá áramótum hafi tíðarfarið ver- ið einstaklega erfitt. Í gær þurfti að fresta flugi til dagsins í dag þar sem bremuskilyrði voru ófull- nægjandi á flugvellinum á Gjögri. Ásgeir segir að í vetur hafi þessu flugi verið sinnt með flug- vél frá Mýflugi með sæti fyrir átta farþega. Í vikunni hafi komið upp millibilsástand og Mýflug geti ekki sinnt þessu flugi út vet- urinn. Því hafi verið leitað ann- arra leiða og niðurstaðan sé sú að þessu flugi verði að mestu sinnt með 19 farþega vélum Ernis á næstunni. Verið er að gera flug- vél sem Ernir á, og er sambæri- leg þeirri sem Mýflug notaði, til- búna í þetta verkefni. „Við munum reyna að nota þessar stærri vélar okkar á næst- unni eins og framast er kostur og aðstæður leyfa, en þá þurfa bremsuaðstæður að vera í góðu lagi,“ segir Ásgeir. Aðspurður hvort til hafi staðið að nota eins hreyfils vélar í flug á Gjögur til að brúa bilið, segir Ásgeir að ýmsir möguleikar hafi verið skoð- aðir. Eins hreyfils vélar, sem að- eins séu notaðar í sjónflugi, séu ekki góður kostur. Fyrir neðan allar hellur „Samgöngur hingað eru fyrir neðan allar hellur,“ segir Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti Árnes- hrepps og hótelhaldari í Djúpa- vík. Hún segir að vegna veðurs hafi flug oft verið fellt niður í vet- ur, en einnig hafi flug fallið niður vegna þess að flugvélarnar hafi verið uppteknar í öðrum verk- efnum. Hún segir að heyrst hafi að nota eigi eins hreyfils vélar í verkefnið á næstu vikum og segir slíkt með öllu óboðlegt. Þá gagnrýnir hún einnig að ekki skuli mokað landleiðina í Ár- neshrepp á tímabilinu frá 5. jan- úar til 20. mars. Í vetur hafi ekki verið mikill snjór á leiðinni þó svo að bætt hafi í í vikunni. Erfitt með samgöngur norður í Árneshrepp  Flugi oft frest- að eða fellt niður  Mokað 20. mars Frá Gjögurflugvelli. Frumvarp um smásölu áfengis var afgreitt úr allsherjar- og mennta- málanefnd Alþingis í gær og fer nú til 2. umræðu á þingi. Þrátt fyrir að meirihluti hafi verið fyrir því að af- greiða frumvarpið úr nefndinni stóðu aðeins þrír nefndarmenn af níu að meirihlutaálitinu og þar af að- eins tveir aðalmenn. Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar sem situr í nefndinni, hafði áður lýst því yfir að hann myndi sitja hjá við afgreiðslu máls- ins í nefndinni. Hann breytti þeirri afstöðu sinni á fundi nefndarinnar í gær og greiddi at- kvæði með því að frumvarpið hlyti þinglega meðferð. Hann hefur þó lýst því yfir að hann styðji ekki frumvarpið. Háð skilyrðum Frumvarpið var lagt fyrir þingið nú í vetur og felur í sér að heimilt verður að selja áfengi í versl- unum. Verður heimildin ekki bundin við bjór og léttvín, heldur verður öll áfengissala leyfð að ýmsum skil- yrðum uppfylltum. Skilyrðin snúa meðal annars að sölutímanum því ekki verður heimilt að selja áfengi eftir klukkan 20. Þá verður áfengið selt í afmörkuðu rými innan verslana og sá sem afgreiðir þarf að hafa náð tilskildum aldri. Leyfin eru einnig háð samþykki viðkomandi sveitarfé- laga. Þá verða einnig gerðar kröfur um frágang áfengis í versluninni, svo sem lagergeymslu og örygg- iskröfur til þess að sporna við þjófn- aði. Áfengisfrumvarpið úr nefnd Páll Valur Björnsson  Aðeins þrír þingmenn af níu standa að meirihlutaálitinu Í Norðurfirði Gunnsteinn Gíslason og Linda við kaupfélagið í gær. Kaupum bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is 17,1% tíundubekkinga í grunnskóla hefur reykt rafsígarettur einhvern tímann um ævina. Í níunda bekk er hlutfallið 12,1% og 7% í áttunda bekk. Þetta kemur fram í könnun Rann- sókna og greininga við Háskólann í Reykjavík, sem hafa gert árlega könnun á vímuefnanotkun ungmenna í efstu bekkjum grunnskóla frá 1999. Könnunin var gerð 3.-5. febrúar sl. en í ár voru ungmennin í fyrsta sinn spurð um notkun rafsígaretta. Að þessu sinni var einnig spurt um svokallað tóbakslíki í fyrsta sinn. 9% tíundubekkinga sögðust hafa notað tóbakslíki einhvern tímann um æv- ina, 5% níundubekkinga og 2,6% átt- undubekkinga. Alls tóku 10.440 ung- menni þátt í könnuninni, en það samsvarar 83% svarhlutfalli. Dregur úr munntóbaksnotkun Að sögn Jóns Sigfússonar, fram- kvæmdastjóra Rannsókna og grein- inga, hefur dregið úr vímuefnaneyslu ungmenna ár frá ári. Nú sé svo komið að áfengisneysla og reykingar ung- menna séu minni á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum og Bandaríkjunum. Þetta segir Jón m.a. að þakka skipu- lögðu íþrótta- og tómstundastarfi og bættum samskiptum foreldra og barna. Sé eingöngu horft á 10. bekk, kem- ur í ljós að árið 1997 sögðust 61% tí- undubekkinga hafa prófað að reykja sígarettu(r) einhvern tímann um æv- ina. Í ár var hlutfallið 15%. Þá sögð- ust 21% tíundubekkinga stunda dag- legar reykingar árið 1997, en 3% nú. Hvað varðar munntóbaksnotkun hefur hún dregist mjög saman hjá piltum síðustu ár, en árið 2003 sögð- ust 31% drengja í tíundabekk hafa prófað að nota munntóbak, en í ár var hlutfallið 10%. Í níundabekk hefur hlutfallið lækkað úr 19% í 7% á sama tíma. Hlutfall stúlkna í tíundabekk sem hefur prófað munntóbak er nærri því óbreytt frá 2003, þá sögðust 9% hafa notað munntóbak einhvern tímann um ævina, en 8% nú. Á þessu tímabili var hlutfallið hæst árið 2012, 11%, en lægst árið eftir, eða 4%. Færri en 2% prófað hörð efni Hlutfall ungmenna sem hefur próf- að amfetamín, kókaín, E-töflur og sveppi er í öllum tilfellum undir 2%, en nokkuð fleiri hafa prófað hass og marjúana. 33% tíundubekkinga segjast í dag hafa prófað að neyta áfengis einhvern tímann um ævina, en hlutfallið var 82% árið 1997. 5% tíundubekkinga sögðust hafa orðið ölvuð einu sinni eða oftar síðustu 30 daga, en 38% árið 1997. Niðurstöður könnunarinnar verða birtar í næstu viku. AFP Fikt Nærri fimmtungur 15 ára gamalla barna hefur prófað rafsígarettur. 17% hafa próf- að rafsígarettur  Fleiri tíundubekkingar hafa prófað rafrettur en venjulegar sígarettur „Við höfðum heyrt að það væri verið að fikta með rafsígarettur en ég hefði haldið að þetta væri minna,“ segir Jón um niður- stöðurnar. „En það er eitt sem skiptir kannski líka máli í þessu og það er að við vitum ekki hvað það er sem þau nota í rafsíga- rettunum, hvort þetta er eitt- hvað með nikótíni eða ekki,“ bætir hann við. Hann segir erfitt að greina hvort um hættulega þróun sé að ræða, þar sem ekki sé vitað hvað er í þessum rafrettum sem krakkarnir eru að fikta með. Jón segir að niðurstöðurnar verði greindar niður á sveitar- félög og skóla, en að því loknu verði e.t.v. hægt að kanna um hvað er að ræða. Óvíst hvað um er að ræða RAFRETTUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.