Morgunblaðið - 28.02.2015, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 28.02.2015, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015 Vistfugl alinn við kjör aðstæður aukið rými ogútisvæði. Hrein afurð íslensk framleiðsla óerfðabreytt fóður. T A K T IK /4 3 3 1 /f e b 1 5 AFP Flugvélar í listflugi á „logandi föstudagskvöldi“ á al- þjóðlegri flugsýningu sem haldin er á tveggja ára fresti á Avalon-flugvelli í grennd við Melbourne í Ástralíu. Áætlað er að um 180.000 manns hafi mætt á sýninguna þegar hún var opin almenningi. Á sýningunni voru m.a. flugvélar úr flugher Ástralíu og Bandaríkjanna. Listflug á logandi föstudagskvöldi Lögreglan í Noregi hefur handtekið múlla Krekar, umdeildan íslamista, eftir að hann fór lofsamlegum orðum um árásina á byggingu háðsritsins Charlie Hebdo í París. Lögreglan segir að hann hafi verið í sambandi við hryðjuverkasamtök íslamista, Ríki íslams, og hvatt ungt fólk til að ganga til liðs við þau í Sýrlandi og Írak. Krekar neitar því að hann tengist samtökunum en kveðst standa við orð sín um árásina á byggingu Char- lie Hebdo vegna skopmynda blaðsins af Múhameð spámanni. „Þeir sem teikna skopmyndir af Múhameð verða að deyja,“ sagði Krekar í við- tali sem norska ríkissjónvarpið sýndi á miðvikudaginn var. „Ég er augljós- lega ánægður með það sem gerðist í París,“ sagði hann og kvaðst líta á árásarmennina sem „hetjur“. Tólf menn biðu bana í árásinni á bygg- ingu Charlie Hebdo og fimm til við- bótar í tveimur öðrum skotárásum íslamista í París í janúar. Talinn ógna öryggi Noregs Að sögn norska ríkisúvarpsins vill lögreglan halda Krekar í gæsluvarð- haldi í fjórar vikur fyrir að hvetja til manndrápa. Krekar, réttu nafni Naj- meddine Faraj Ahmad, er Kúrdi frá Norður-Írak og var á meðal svo- nefndra kvótaflóttamanna sem komu til Noregs árið 1991. Norsk yfirvöld fyrirskipuðu árið 2003 að honum yrði vísað úr landi fyrir að ógna öryggi Noregs, en ekki hefur verið hægt að framfylgja fyrirmæl- unum vegna laga sem banna brott- vísun flóttamanna til landa þar sem þeir eiga á hættu að verða teknir af lífi. Hann var dæmdur í tveggja ára og tíu mánaða fangelsi árið 2010 fyr- ir að hóta Ernu Solberg forsætisráð- herra og þremur Kúrdum lífláti. bogi@mbl.is Múlla Krekar handtekinn fyrir að hvetja til drápa  Norska lögreglan bendlar hann við Ríki íslams Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þýska þingið samþykkti í gær áform um að framlengja fjárhagsaðstoð Evrópusambandsins við Grikkland með miklum meirihluta atkvæða þrátt fyrir efasemdir meðal Þjóð- verja um að landið endurgreiði skuldir sínar. 542 þingmenn studdu samkomulag Grikkja og lánar- drottna þeirra um að aðstoðin yrði framlengd um fjóra mánuði. 32 þing- menn greiddu atkvæði á móti því og þrettán sátu hjá. Nokkrir þingmenn sögðust vera efins um samkomulagið og efa- semdaraddir hafa hljómað í þýskum fjölmiðlum. Til að mynda birti Bild, söluhæsta dagblað Þýskalands, frétt með flennifyrirsögninni „NEI!“ og undirfyrirsögninni „Ekki fleiri millj- arða handa fégráðugum Grikkjum!“ Talið er að margir þingmannanna hafi talið sig eiga einskis annars úr- kosti en að fallast á samkomulagið þar sem upplausn evrusvæðisins gæti reynst kostnaðarsamari fyrir Þjóðverja en aðstoðin við Grikki og grafið undan trausti á evrunni, að sögn fréttaskýranda BBC. Grikkir hlíti skilmálunum Wolfgang Schäuble, fjármálaráð- herra Þýskalands, viðurkenndi í ræðu á þinginu að ekki hefði verið auðvelt fyrir hann að fallast á sam- komulagið um framlenginguna en hvatti samt þingmennina til að sam- þykkja það. „Við, og sérstaklega við Þjóðverjar, eigum þá aðeins góða framtíð fyrir höndum á 21. öldinni ef evrópski samruninn ber árangur og ef við stöndum saman í Evrópu,“ sagði hann. Schäuble bætti við að í samkomu- laginu fælist ekki að „fleiri milljörð- um“ yrði dælt í Grikkland eða að skilmálum aðstoðarinnar yrði breytt, heldur væri markmiðið að „fá meiri tíma til að ljúka farsællega“ viðræðum um framkvæmd fjárhags- aðstoðarinnar sem samið var um árið 2012. „Grundvöllur beiðnarinnar sem ég hef lagt fyrir þýska þingið er loforð grísku ríkisstjórnarinnar um að fullnægja skilmálum aðstoðarinn- ar, án fyrirvara og án undantekn- inga.“ Syriza, Bandalag róttækra vinstriflokka, komst til valda í þing- kosningum í Grikklandi 25. janúar eftir að hafa lofað að knýja lánar- drottnana til að breyta skilmálum aðstoðarinnar og afskrifa stóran hluta lánanna. Lánardrottnarnir – Evrópusambandið, Evrópski seðla- bankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn – höfnuðu þessu en samþykktu að framlengja aðstoðina um fjóra mánuði til að halda viðræðunum áfram á grundvelli málamiðlunar- tillagna sem gríska stjórnin lagði fram í vikunni sem leið. Sagði já þrátt fyrir efasemdir  Þýska þingið féllst á samkomu- lag við Grikki AFP Óeirðir Anarkistar mótmæltu sam- komulaginu í Aþenu í fyrrakvöld. Sökuð um svik » Tilslakanir nýju stjórnar- innar í Grikklandi í viðræðun- um við Evrópusambandið hafa verið gagnrýndar innan stjórnarflokksins Syriza. » Leiðtogi Syriza, Alexis Tsip- ras forsætisráðherra, hefur varið tilslakanirnar en nokkrir frammámanna flokksins hafa sakað stjórnina um kosn- ingasvik. Celeste og Morné Nurse hafa endurheimt dóttur sína, 17 árum eftir að henni var rænt af fæðingar- deild sjúkrahúss í Höfðaborg í Suður-Afríku. Hin 17 ára gamla Zephany vingaðist við stúlku sem reyndist alsystir hennar, en þegar faðir stúlknanna sá líkindin með þeim hafði hann umsvifalaust sam- band við lögreglu. Zephany var rænt úr örmum sof- andi móður sinnar, aðeins þremur dögum eftir að hún fæddist. For- eldrar hennar gáfu aldrei upp von- ina um að sjá dóttur sína aftur, og hafa haldið upp á afmælisdaginn hennar í 17 ár. Zephany á þrjú yngri systkin. Í ljós hefur komið að stúlkan ólst upp skammt frá heimili Nurse- fjölskyldunnar, en grunaði aldrei að hún tilheyrði henni. Í síðasta mánuði hóf systir hennar, Cassidy Nurse, nám við sama skóla og Zephany og þær urðu vinkonur. Þegar Morné sá hversu líkar dóttir hans og vinkona hennar voru hafði hann samband við lögreglu. DNA-prófanir leiddu í ljós að Zep- hany var dóttir hans og Celeste. Konan sem rændi Zephany og ól hana upp var þá fangelsuð og birt var ákæra á hendur henni í gær. Talið er að hún sé um 50 ára gömul og eigi ekki önnur börn, að sögn suðurafrískra fjölmiðla. Celeste hitti elstu dóttur sína í fyrsta sinn í fyrradag. SUÐUR-AFRÍKA Endurheimtu dóttur sína eftir 17 ár Yfirvöld í hollenska bænum Pur- merend hafa hvatt íbúa hans til að vopnast regnhlífum þegar þeir eru úti við á kvöldin vegna dular- fullrar hrinu árása uglu sem hef- ur hrellt bæjarbúana. Síðustu þrjár vikur hefur uglan ráðist á tugi íbúa bæjarins og mörg fórn- arlambanna hafa þurft að fá að- hlynningu á sjúkrahúsi. Á dög- unum réðst hún til að mynda á tvo menn sem voru á íþróttaæfingu og sauma þurfti sex sár á höfði annars þeirra. Íþróttafélag bæj- arins hefur aflýst öllum æfingum þar til öryggi borgaranna hefur verið tryggt. Uglan hefur einnig ráðist að minnsta kosti fimmtán sinn- um á íbúa heimilis fyrir fatlað fólk í bænum. „Það heyrist ekki í uglunni áður en hún gerir árás,“ sagði einn íbúanna. „Klærnar eru hvass- beittar.“ Uglan er af tegund sem nefnist úfur á íslensku. HOLLAND Þessi úfur er ekki sökudólgurinn. Ugla veldur skelfingu með tugum árása

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.