Morgunblaðið - 28.02.2015, Síða 44
44 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015
✝ Lilja Rögn-valdsdóttir
fæddist í Dæli í
Skíðadal 20. janúar
1918. Hún lést á
dvalarheimilinu
Dalbæ 23. janúar
2015.
Foreldrar henn-
ar voru Ingibjörg
Árnadóttir, f. 28.
júní 1888, d. 23.
ágúst 1982, frá
Dæli í Skíðadal og Rögnvaldur
Tímoteus Þórðarson, f. 15. nóv-
ember 1882, d. 26. mars 1967, frá
Hnjúki í Skíðadal.
Systkini Lilju: Árni Marinó
Rögnvaldsson, f. 5. febrúar 1909,
d. 23. september 2004, Guðlaug
Halldóra Rögnvaldsdóttir, f. 22.
nóvember 1910, d. 24. september
1980, Jón Kristinn Rögnvalds-
son, f. 26. janúar 1913, d. 4. októ-
ber 1999, Gunnar Kristmann
Rögnvaldsson, f. 16. september
1. Súsanna, f. 1946, maki Júlíus
Tryggvi Steingrímsson. Börn
þeirra eru Sigrún og Björn Ingv-
ar. Barnabörn þeirra eru sex. 2.
Rögnvaldur Skíði, f. 1949, maki
Guðríður Ólafsdóttir. Börn
þeirra eru Lilja Berglind og
Ólafur Helgi. Barnabörn þeirra
eru sex. 3. Kristinn Atli, f. 1950,
maki Halla Soffía Karlsdóttir.
Börn þeirra eru Karl Ingi og
Björn Snær. Barnbörn þeirra
eru tvö. 4. Sólborg, f. 1955, maki
Sigurður Sveinn Alfreðsson.
Börn þeirra eru Jón Ingi og Sús-
anna. Barnabörn þeirra eru tvö.
5. Soffía Ingibjörg, f. 1962, maki
Teitur Gylfason. Börn þeirra eru
Nanna og Embla Ýr. Þau eiga
eitt barnabarn.
Lilja ólst upp í Dæli í Skíðadal.
Hún var í vinnumennsku í Reyk-
holti í Borgarfirði í einn vetur.
Lilja var einn vetur í kvenna-
skólanum á Laugalandi. Árið
1945 giftist Lilja Friðbirni, þau
bjuggu á Hóli í Svarfaðardal frá
1945 til 1974. Árið 1974 fluttust
þau til Dalvíkur og vann Lilja við
ýmis störf.
Útför hennar fer fram í Dal-
víkurkirkju í dag, 28. febrúar
2015, kl. 13.30.
1915, Þórdís Rögn-
valdsdóttir, f. 5 maí
1920, d. 29. október
2014, Rögnvaldur
Rögnvaldsson, f. 29.
júní 1923, d. 7. nóv-
ember 1988, Snorri
Þór Rögnvaldsson,
f. 2 júlí 1926, d. 13.
febrúar 2008, Hörð-
ur Rögnvaldsson, f.
5. október 1928, Ár-
mann Rögnvalds-
son, f. 12. maí 1931, Auður Rögn-
valdsdóttir, f. 22. september
1934. Fóstursystir Jóhanna Hall-
grímsdóttir, f. 7. júlí 1899, d. 1.
janúar 1975.
Eiginmaður Lilju var Frið-
björn Adólf Zophoníasson, f. 22.
desember 1918, d. 27. júní 1986,
frá Hóli í Svarfaðardal, for-
eldrar hans voru Zophonías
Jónsson og Súsanna Guðmunds-
dóttir sem bæði eru látin.
Börn Lilju og Friðbjörns eru:
Okkur systur langar að minn-
ast móður okkar með nokkrum
orðum. Þegar við hugsum til
mömmu okkar, Lilju Rögnvalds-
dóttur, þá rifjast upp margar góð-
ar minningar.
Mömmu okkar þótti mjög gam-
an að syngja og dansa og má segja
að hún hafi verið að dansa fram í
andlátið því oft tók hún dansspor
eftir göngunum á Dalbæ. Á Dalbæ
er stundum spilað á harmónikku
fyrir gamla fólkið og var dansinn
vínarkrus í miklu uppáhaldi hjá
mömmu. Hún var alltaf ótrúlega
létt á fæti og meira að segja eftir
að hún veiktist reyndi hún enn að
slá taktinn.
Þegar hausta tók þótti henni
gaman að fara til berja. Mamma
var mjög fljót að tína ber, við syst-
ur vissum ávallt þegar mamma
henti sér niður á þúfu að þá væri
hún komin í ber og hún var ekki
mjög kát þegar hún sá okkur syst-
ur nálgast hennar umráðasvæði.
Mamma átti hjólhýsi sem var
staðsett í skógarreitnum við Dæli.
Það var alltaf mikil tilhlökkun
þegar fór að vora og hún sá fram á
að geta verið í sveitinni sinni. Í
reitnum var alltaf nóg við að vera
og hún var iðin við hrífuna. Æði
oft tók mamma með sér pönnu-
kökur í reitinn sem féll í góðan
jarðveg hjá yngstu afkomendun-
um.
Sérstaklega þótti mömmu gott
að sitja í sólinni en hún var dugleg
að nýta sér sólina við hvert tæki-
færi.
Á meðan hún bjó á Skíðabraut-
inni þá átti hún yndislega ná-
granna sem fylgdust vel hver með
öðrum. Æði oft var fundur hjá
mömmu, Þórdísi og Hillu eftir að
þær voru búnar að horfa á tiltek-
inn þátt í sjónvarpinu og þá var
spjallað um atburði þáttarins og
mögulega framvindu sögunnar.
Mamma hafði unun af útivist,
oft gekk hún upp til fjalla ýmist
ein eða með vinkonum sínum. Við
systkinin höfðum áhyggjur þegar
við vissum að hún var ein á göngu.
Til að tryggja að hún gæti haft
samband ef eitthvað kæmi upp á
var keyptur handa henni GSM-
sími, sem hún harðneitaði að nota
og stökk á fyrsta tækifæri sem
gafst til að gefa barnabarni sínu
símann. Tæknin var ekki hennar
sterkasta hlið og hægt að segja að
hún hafi verið með takkafælni á
háu stigi.
Mamma hafði á orði að það
væri lífsnauðsynlegt að anda að
sér útilofti ef maður ætlaði að
halda heilsu. Einnig fékk hún sér
lítið staup of koníaki á hverjum
degi í þeim tilgangi að halda heilsu
og forðast umgangspestir.
Mamma var mikil handavinnu-
kona og eftir hana liggur mikil og
falleg handavinna. Mömmu féll
sjaldan verk úr hendi og skilar
hún miklu og góðu ævistarfi.
Mamma gat ekki sinnt handa-
vinnu sinni síðustu æviárin en hún
stytti sér þá stundir við lestur.
Mamma var lágvaxin, grann-
vaxin kona. Hún var léttlynd og
brosmild en hún hafði einnig
ákveðni og skap til að koma sér
áfram í lífinu.
Farðu í friði, elsku mamma.
Soffía, Sólborg og Súsanna.
Þegar við kveðjum ömmu þá á
maður í raun erfitt með að gera
sér fyllilega grein fyrir því hversu
miklar breytingar hafa átt sér
stað á hennar 97 ára æviskeiði. Ár-
ið 1918, á fæðingarári ömmu, geis-
aði spænska veikin, Katla gaus og
hér ríkti frostaveturinn mikli. Jan-
úar 1918, fæðingarmánuður
ömmu, var enda kaldasti mánuður
á Íslandi á allri 20. öld. Íslending-
ar voru á þessum tíma ein fátæk-
asta þjóð í Evrópu. Síðan þá hefur
samfélag okkar tekið gífurlegum
breytingum sem er ekki síst að
þakka þrotlausri vinnu þeirra
kynslóða sem lifðu og störfuðu
stærstan hluta síðustu aldar. Og
þar lagði amma svo sannarlega
sitt af mörkum enda dugnaðar-
kona í alla staði.
Það var alltaf gott að koma til
ömmu enda mátti bóka að heitt
kakó væri á boðstólnum ásamt
ömmukexi auk þess sem hafra-
kexið hennar var ómissandi þegar
líða fór að jólum. Það var gaman
að spjalla við ömmu og alltaf stutt
í hláturinn. Í einni heimsókn minni
til hennar sagði hún mér frá því að
hún hefði verið að snúa dýnunni í
rúminu sínu við. Var dýnan ansi
þung og hafði það greinilega verið
talsvert verk og líklega tveggja
manna verk frekar en að smávax-
in kona á níræðisaldri væri að
glíma við þetta ein. Ekki var laust
við að það læddist fram smá
prakkaraglott á ömmu við frá-
sögnina. Var ég látinn sverja að
segja ekki nokkrum manni frá
þessu. Ég vona að hún fyrirgefi
mér þó ég uppljóstri leyndarmál-
inu nú.
Oft fékk ég það heiðurshlut-
verk að gerast einkabílstjóri
ömmu og sækja hana í sunnudags-
matinn. Mátti ég yfirleitt hafa mig
allan við að halda henni inni í bíln-
um þegar komið var upp á hlað á
Hóli og var varla búinn að leggja
bílnum þegar amma var búin að
opna bílhurðina enda ekkert hálf-
kák í boði. Að rétta ömmu hjálp-
arhönd við að fara í og úr bílnum
var líka afþakkað pent og voru
skilaboðin frá níræðri konunni
skýr um að slík aðstoð væri bara
fyrir gamalt fólk. Enda var amma
dugleg að hreyfa sig, gekk mikið
og má segja að gönguhraðinn hafi
yfirleitt jaðrað við hlaupahraða.
Mér er líka minnistætt að sitja
inni í hjólhýsi hjá ömmu í Dæl-
isreitnum, líklega fyrir vel yfir 20
árum. Elsta langömmubarn
ömmu var þá einu sinni sem oftar
búið að vera með ólæti og amma
greinilega búin að fá nóg. Greip í
buxnastreng stráksa og lagði
hann fagmannlega á gólfið í hjól-
hýsinu með nettum hælkrók á
vinstri og bað hann vinsamlegast
að haga sér skikkanlega. Mátti
þar glöggt sjá að þar fór kona sem
var fyrir löngu orðin fullnuma og
með margra ára reynslu í því að
siða til og ala upp ólátabelgi.
Þær aðstæður sem amma
fæddist og ólst upp í snemma á 20.
öldinni hafa eflaust átt mikinn þátt
í að móta hana sem persónu. Hún
var að mínu viti hörkutól andlega
sem líkamlega og finnst mér eft-
irfarandi orð úr ljóði Stephans G.
Stephanssonar eiga vel við á
kveðjustund:
Bognar aldrei – brotnar í
bylnum stóra seinast.
Elsku amma, takk fyrir sam-
veruna og allar góðu minningarn-
ar.
Megi góður guð geyma þig.
Björn Snær Atlason.
Amma hefur kvatt, þessi agn-
arsmáa og fíngerða kona sem var
alltaf svo falleg og vel til höfð. Í
litlum líkama hennar rúmaðist
stórt hjarta sem var fullt af kær-
leika og gleði til handa öllum sem
henni þótti vænt um.
Amma var glettin og skemmti-
leg kona sem hló og gerði grín í
hvert sinn er færi gafst. Í huga
hennar var vinnusemi dyggð.
Henni féll sjaldnast verk úr hendi
og heimili þeirra afa bar þess
merki. Amma var náttúrubarn.
Daglega fór hún í langa göngu-
túra, á veturna gekk hún á göngu-
skíðum og á sumrin til fjalls. „Ég
breytist bara í aumingja ef ég
hætti að hreyfa mig,“ sagði hún
gjarnan og hló. Þegar heilsan bauð
ekki lengur upp á fjallgöngur tóku
stigarnir á dvalarheimilinu við.
Amma gætti hófs í öllu en kunni
vel að meta það sem gott var. Lítið
staup af góðu koníaki gerði oft
gæfumuninn og kannski eins og
ein rommkúla, en alls ekki meira
en það.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi
að búa í sama húsi og amma og afi
fyrstu árin. Amma gætti mín á
daginn á meðan mamma vann úti
um tíma. Þá var nú glatt á hjalla
því amma var alltaf tilbúin að
Lilja
Rögnvaldsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku langamma Lilja,
við eigum eftir að sakna þín
mjög mikið en við vitum að
þér líður mjög vel og ert
búin að hitta langafa. Það
var alltaf gaman að koma í
heimsókn, leika með rauða
boltann og fá nammi.
Sigurður Ágúst Jónsson,
Sóldís Lilja Jónsdóttir.
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
Harpa Heimisdóttir
Útfararstjóri
Hrafnhildur Scheving
Útfararþjónusta
Kirkjulundur 19 • 210 Garðabær
sími 842 0204 • www.harpautfor.is
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Útfararþjónusta síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Útfararþjónusta
í 20 ár
Hinrik Valsson Svanhildur Eiríksdóttir Gísli G.Guðmundsson
Vistvænar íslenskar kistur, krossar og duftker
Hinrik: Sími 892 0748 / Gísli: Sími 482 4300
www.fylgd.is • fylgd@fylgd.is
Þjónusta allan sólarhringinn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
LÁRA CLAUSEN,
lést á Landspítalanum Hringbraut
laugardaginn 21. febrúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 6. mars kl. 13.
.
Árni S. Kristjánsson,
Sólveig E. Hólmarsdóttir, Ævar Agnarsson,
Holger P. Clausen, Halldóra Aðalsteinsdóttir,
Kristján S. Árnason, Sigurlaug Erla Gunnarsdóttir,
Ásdís Árnadóttir, Grettir Einarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
HELGA HAFSTEINSDÓTTIR,
Þrúðsölum 10,
Kópavogi,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi
laugardaginn 21. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn 3. mars kl. 13.
Sérstakar þakkir fá Friðbjörn læknir og Hjördís
hjúkrunarfræðingur, sem og allt starfsfólk 11-B á LSH,
Heimahlynningar og líknardeildarinnar í Kópavogi fyrir einstaka
umönnun og hlýju í garð Helgu og fjölskyldu.
.
Dagbjartur Hilmarsson,
Hilmar Hafsteinn Dagbjartsson,
Darri Dagur Dagbjartsson.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
ELSA ÞORVALDSDÓTTIR,
Álfheimum 62,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 22. febrúar,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3. mars
kl. 15.
.
Þorvaldur Sigurðsson, Herdís Ástráðsdóttir,
Þóra Katla Bjarnadóttir, Þórður Sigurðsson,
Ástríður Elsa Þorvaldsdóttir,
Theódóra Þorvaldsdóttir, Jóhann K. Ragnarsson,
Davíð Ingi Þorvaldsson,
Hrefna María Jónsdóttir, Ágúst Atlason,
Arnar Jónsson,
Kristján Andri Jónsson
og langömmubörn.
Elsku hjartans pabbi minn, sonur okkar,
bróðir, mágur, barnabarn og
sambýlismaður,
UNNAR INGI HEIÐARSSON,
Vallartúni 6,
Akureyri,
sem lést fimmtudaginn 19. febrúar,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. mars
kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning Benoný Inga
sonar hans, 302-13-300328, kt. 280812-2690.
.
Benoný Ingi Unnarsson,
Heiðar Rögnvaldsson,
Sigríður Jóhannesdóttir, Magnús Guðjónsson,
Íris Huld Heiðarsdóttir,
Þorsteinn Björnsson, Sigríður Ólafsdóttir,
Guðrún Helga Heiðarsdóttir, Valur Oddgeir Bjarnason,
Guðrún Helga Kjartansdóttir,
Steinunn Ósk Eyþórsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
LÝÐUR BAKKDAL BJÖRNSSON
sagnfræðingur,
Starhólma 4,
Kópavogi,
lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn 25. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
.
Guðbjörg Ósk Vídalín Óskarsdóttir,
Valgerður Birna Lýðsdóttir, Haraldur Jónasson,
Lýður Óskar Haraldsson.