Morgunblaðið - 28.02.2015, Qupperneq 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015
Fjöltengi
nefnist
samsýning
sem verður
opnuð í
Ekkisens í
kvöld kl. 20. Tíu listamenn eiga
verk á sýningunni, en allir eiga þeir
það sameiginlegt að „vinna eftir
innsæi sem og meta sköpunarferlið
til jafns við útkomuna á verkum sín-
um,“ eins og segir í tilkynningu.
Sýnendur eru Andrea Ágústa Að-
alsteinsdóttir, Andri Björgvinsson,
Bergrún Anna Hallsteinsdóttir,
Myrra Leifsdóttir, Heiðrún G. Vikt-
orsdóttir, Hjálmar Guðmundsson,
Sara Ósk Rúnarsdóttir, Sigríður
Þóra Óðinsdóttir, Steingrímur
Gauti og Ylva Frick. Sýningin
stendur til 6. mars.
Unnið með innsæ-
ið að leiðarljósi
Fjöltengi Eitt verkanna.
Helgin verður
viðburðarík í
menningarhús-
inu Mengi. Í
kvöld kl. 21 býð-
ur Reykjavík
Dance Festival
völdum danshöf-
undum að takast
á við að skapa
sóló þar sem orð
og texti eru eini
miðillinn, undir yfirskriftinni
Speaking Solos. Annað kvöld kl. 21
munu svo tónlistarmennirnir Clau-
dio Puntin og Skúli Sverrisson
halda tónleika, spila nýtt efni og
spuna fyrir klarinett og bassa. Tón-
leikarnir eru á dagskrá Berlin X
Reykjavík tónlistarhátíðarinnar.
Sólóar, Skúli og
Claudio Puntin
Claudio Puntin
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Fyrra verkið fylgdi okkur í tíu ár
með hléum og á þeim tíma veltum
við Sigursveinn iðulega fyrir okkur
hvert hefði orðið framhaldið á lífi
tenórsins eftir þeirra samvistir og á
endanum settist ég niður við skrift-
ir,“ segir Guðmund Ólafsson höf-
undur leikritsins Annar tenór sem
frumsýnt verður í Iðnó í kvöld kl. 20.
Um er að ræða framhald á leiksýn-
ingunni Tenórinn sem Guðmundur
lék í ásamt píanóleikaranum Sig-
ursveini Magnússyni og sýnt var
rúmlega 70 sinnum víðs vegar um
landið í framhaldið af frumsýningu
verksins í Iðnó árið 2003.
Tenórinn gerðist í búningsher-
bergi tónlistarhúss örstuttu fyrir
tónleika tenórsöngvara sem verið
hafði langdvölum í útlöndum, en sýn-
ingunni lauk með því að tenórinn var
á leið inn á svið að syngja tónleikana.
„Tenórinn var ekki í besta standi
undir lok verksins þegar skilið var
við hann. Bæði var orðið ljóst að
röddin hefði eitthvað verið að svíkja
hann stundum auk þess sem ljóst
var að hjónaband hans var allt upp í
loft vegna þess að hann hafði greini-
lega misstigið sig í samskiptum sín-
um við hitt kynið. Ég fór því að velta
fyrir mér hvernig farið hefði fyrir
tenórnum og hver væri staða hans í
dag. Það má segja að niðurstaðan
hafi orðið, án þess að maður segi of
mikið, að hann flutti einn heim til Ís-
lands og hefur búið og starfað við
kennslu á Austurlandi í nokkur ár,“
segir Guðmundur og tekur fram að
forvitnilegt sé að skoða hvernig það
fari í mann sem hafi áður verið að
syngja í stórum óperuhúsum að vera
kominn í íslenskan hversdagsleika.
„Egóið er svolítið að þvælast fyrir
honum.“
Aðspurður hvort tenórinn eigi sér
fyrirmynd í íslenskum veruleika
svarar Guðmundur því neitandi.
„Tenórar eru dálítið sérstök mann-
gerð. Þeir verða að vera það. Sjálfs-
traust þeirra verður að vera til stað-
ar og þeir þurfa að þenja brjóst-
kassann svolítið vel. En ég hugsaði
tenórinn minn almennt út frá lista-
mönnum. Við erum voðalega oft svo-
lítið beiskir og bitrir, finnst aðrir fá
meiri og betri tækifæri og skiptir þá
engu hvort þeir fá í reynd góð tæki-
færi. Menn eru aldrei fullkomlega
ánægðir. Þetta var það sem kveikti
þessa hugmynd upprunalega, að
fjalla um svoleiðis manneskju,“ segir
Guðmundur og viðurkennir fúslega
að hann hafi allnokkra samúð með
tenórnum sínum og skilji hann vel.
Leitar undirleikarann uppi
Að sögn Guðmundar á tenórinn í
nýja verkinu erindi í höfuðborgina
þar sem hann leitar uppi undirleik-
ara sinn frá fyrra verki. „Þeir hafa
ekkert sést síðan þessi konsert var
haldinn sem þeir voru að undirbúa í
fyrra verkinu og það eru liðin ná-
kvæmlega, eins og núna, ellefu og
hálft ár síðan. Í seinna verkinu hitt-
ast þeir á sviðinu í Iðnó þar sem und-
irleikarinn er að undirbúa sig fyrir
tónleika kvöldsins þar sem ungur og
efnilegur tenórsöngvari ætlar að
spreyta sig. Sú staðreynd hrærir
talsvert upp í tilfinningalífi söngv-
arans,“ segir Guðmundur og tekur
fram að verkið varpi ljósi á hvernig
líf beggja mannanna sé í dag.
„Inn í atburðarásina fléttast síðan
ung kona, sem sér um tæknimál
hússins. Alheimssöngvaranum
finnst hún aðallega vera að þvælast
fyrir, en hún er afskaplega góð
stúlka sem vill allt fyrir alla gera
sem fer stundum í taugarnar á okkar
manni,“ segir Guðmundur sem líkt
og í fyrri sýningunni fer með hlut-
verk tenórsins. Sem fyrr er Sig-
ursveinn í hlutverki undirleikarans,
en með hlutverk ungu stúlkunnar
fer Aðalbjörg Þóra Árnadóttir. Leik-
stjóri uppfærslunnar er María Sig-
urðardóttir.
Sýningin stútfull af tónlist
Líkt og í fyrri sýningunni er tón-
listin áberandi í uppsetningunni nú.
„Sýningin er stútfull af tónlist, allt
frá dægurlögum til óperuaría,“ segir
Guðmundur og tekur fram að tónlist
tali ávallt sterkt til áheyrenda.
„Leikhúsgestir skemmtu sér ákaf-
lega vel á fyrri sýningunni og von-
andi gildir það líka um þessa seinni
sýningu,“ segir Guðmundur og tekur
fram að hann læði tónlistinni ávallt
áreynslulaust inn í verkið til að hún
styðji við framvinduna. Spurður
hvort leikhúsgestir megi eiga von á
frekari ævintýrum tenórsins í fram-
tíðinni svarar Guðmundur því neit-
andi. „Ég held að þetta verði bara
leikhústvenna. Tenórinn á að vísu
óuppgerðar sakir á Ítalíu, en besta
leiðin til að gera því skil væri í kvik-
mynd,“ segir Guðmundur og tekur
fram að hann dreymi um að skutla
Tenórnum aftur á svið þannig að
hægt sé að sýna sýningarnar tvær
samhliða. „Líkt og gilti með Ten-
órinn er Annar tenór settur upp í
einfaldri umgjörð sem gerir sýn-
inguna mjög ferðavæna.“ Næstu
sýningar verða 8., 12. og 20. mars.
Miðasala á midi.is.
„Egóið að þvælast fyrir“
Leikritið Annar tenór frumsýnt í Iðnó í kvöld kl. 20
Framhald á Tenórnum sem sýndur var 70 sinnum
Ljósmynd/Sigfús Már Pétursson
Söngdrama Sigursveinn Magnússon, Guðmundur Ólafsson og Aðalbjörg Þóra Árnadóttir í hlutverkum sínum.
Strengjakvartettar eftir Ludwig van
Beethoven og Oliver Kentish munu
hljóma á lokatónleikum vetrarins á
vegum Kammermúsíkklúbbsins sem
fram fara í Norðurljósasal Hörpu ann-
að kvöld kl. 19.30.
Flytjendur eru fiðluleikararnir Sig-
rún Eðvaldsdóttir og Joaquin Páll Pa-
lomares, Ásdís Valdimarsdóttir víólu-
leikari og Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari.
„Tónleikarnir eru helgaðir minn-
ingu Einars B. Pálssonar verkfræð-
ings, sem sat í stjórn Kammermúsík-
klúbbsins í áratugi. Hann hafði mikið
dálæti á strengjakvartettum Beethov-
ens og því þykir stjórn Kammermúsík-
klúbbsins við hæfi að minnast hans
með flutningi á tveimur af kvartettum
Beethovens og frumsömdum kvartetti
Olivers Kentish tileinkuðum honum,“
segir m.a. í tilkynningu.
Lokatónleikar vetrarins
Strengjakvartettar eftir Beethoven og Oliver Kentish
Hljóðfæraleikararnir Joaquin Páll Palomares, Bryndís Halla Gylfadóttir,
Sigrún Eðvaldsdóttir og Ásdís Valdimarsdóttir leika í Hörpu annað kvöld.
Söfn • Setur • Sýningar
Sunnudagur 1. mars kl. 14-16: Áttu forngrip?
Sérfræðingar greina gripi almennings.
Þriðjudagur 3. mars kl. 12: Fyrirlestur Steinunnar Kristjánsdóttur
fornleifafræðings um einsetulifnað á miðöldum
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Á veglausu hafi í Bogasal
Hvar, hver, hvað? í Myndasal
Húsin í bænum á Veggnum
Nála á Torginu
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna • Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Reykjanesbæjar
• Til sjávar og sveita,
Gunnlaugur Scheving
• Sjálfsagðir hlutir, hönnunarsaga.
• 15/15 – Konur og myndlist,
úr safneigninni.
24. janúar – 8. mars
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
KONUR STÍGA FRAM - SVIPMYNDIR 30 KVENNA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST 13.2.-10.5.2015
GÖNGUFERÐ UM SLÓÐIR ÍSLENSKRA MYNDLISTARKVENNA, sunnudag kl. 14
frá Listasafni Íslands - Birna Þórðardóttir leiðir göngu um markverða staði í Rvík
er tengjast sögu ísl. myndlistarkvenna.
A KASSEN CARNEGIE ART AWARD 2014 13.2. - 10.5. 2015
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur.
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar. IN THE CRACK OF THE LAND - Una Lorenzen
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
LISTAMAÐUR Á SÖGUSLÓÐUM
Johannes Larsen á ferð um Ísland 1927 og 1930. 31.1–22.3.2015.
ÞARFUR ARFUR OG HIRÐDRÁPUR - Þórarin Eldjárn les úr eigin verkum á sunnudag kl. 15
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17. Kaffistofan opin á sama tíma.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
Opið sunnudaga kl. 14-17.
Largo - presto
Tumi Magnússon
Neisti
Hanna Davíðsson
Síðasta sýningarhelgi
Leiðsögn
Sunnudag 1. mars kl. 15
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson
tískuhönnuðar
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is