Morgunblaðið - 21.03.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjárfestar hafa lagt fram kaup-
tilboð í Setbergslandið á mörkum
Hafnarfjarðar og Garðabæjar.
Landið er vestur af Urriðaholti á
eftirsóttum stað og er ljóst að
kaupverðið hleypur á milljörðum
króna.
Hömlur,
dótturfélag
Landsbankans, á
byggingarlóð-
irnar og hafa
fjárfestar lagt
fram kauptilboð
með fyrirvara um
fjármögnun.
Samkvæmt heim-
ildum blaðsins úr
byggingargeir-
anum er Franz Jazorski í farar-
broddi þessara fjárfesta. Ekki náð-
ist í Franz í gær.
Fram kom í samtali Morgun-
blaðsins við Gunnar Einarsson,
bæjarstjóra í Garðabæ, í nóvember
að einkaaðilar hefðu hugmyndir um
að byggja allt að 630 íbúðaeiningar
í Setbergslandinu. Áætlaði skipu-
lagsdeild sveitarfélagsins að þar
gætu búið um 2 þúsund manns.
Verktaki sem Morgunblaðið
ræddi við áætlaði að lóðaverð í Set-
bergslandi yrði 5 milljónir króna á
íbúð, eða svipað og í Urriðaholti.
Staðsetningin mjög góð
Samkvæmt því er verðmæti
byggingarlóða á svæðinu 3,2 millj-
arðar króna. Annar heimildamaður
í byggingargeiranum taldi það
verulega vanáætlað.
Hér til hliðar má sjá deiliskipu-
lagstillögu sem bar sigur úr býtum
í samkeppni um skipulag svæðisins
árið 2006. Þetta er því ekki sam-
þykkt skipulag og gæti byggðin því
tekið breytingum.
Hannes F. Sigurðsson, verk-
efnastjóri hjá Hömlum, segir
nokkra aðila hafa sýnt svæðinu
áhuga. Það komi ekki á óvart enda
sé staðsetningin mjög góð.
Hann segir tímasetninguna
ágæta. Byrjað sé að byggja skóla í
Urriðaholti sem muni nýtast fyrir
nemendur í Setbergslandi.
Eins og kortið hér á síðunni sýnir
markast svæðið af Reykjanesbraut,
Urriðakotsvatni, Elliðavatnsvegi og
Setbergshverfinu í Hafnarfirði. Það
liggur vel við samgöngum og stutt
er í þjónustu.
Óvíst um golfvöllinn
Golfklúbburinn Setberg er með
aðstöðu á svæðinu og er óvíst hvort
völlurinn mun víkja. Norður af Set-
bergslandinu er íþróttasvæði
Kaplakrika. „Við höfum unnið með
þá hugmynd að golfvöllurinn fengi
að halda sér við vatnið og hraunjað-
arinn. Það yrði þá 9 holu völlur.
Það er hins vegar ekki ljóst hvaða
hugmyndir nýir fjárfestar hafa,“
segir Hannes um framtíð vallarins.
Lagt var til í deiliskipulaginu
2006 að Urriðavatn, hrauntanginn
og votlendið umhverfis vatnið verði
friðlýst sem friðland.
Fasteignasali sem Morgunblaðið
ræddi við sagði Setbergslandið eitt
fárra byggingarsvæða sem eftir
væru í Garðabæ. Með hliðsjón af
nálægum hverfum væri viðbúið að
hverfið yrði í dýrari kantinum.
Fjárfestar kaupa Setbergslandið
Hafa lagt fram kauptilboð með fyrirvara um fjármögnun Kaupverðið hleypur á milljörðum
Hugmyndir um að byggja 630 íbúðaeiningar á svæðinu Söluverð lóða áætlað á fjórða milljarð
Ljósmynd/Greinargerð að tillögu að deiliskipulagi í október 2006
Í pípunum Rauða línan sýnir fyrirhugað byggingarsvæði í Setbergslandi.
Setbergsland
Re
yk
ja
ne
sb
ra
ut
Elliðavatnsvegur
Urriðakotsvatn
Hrauntangi
Hannes Frímann
Sigurðsson
Fyrirhuguð byggingarsvæði í Garðabæ
Urriðaholt
Svæði norðan
Akrahverfis
Garðaholt
Setbergsland
Álftanes
A) Breiðumýri
B) Kirkjubrú
C) Sveinskoti
Friggjarreitur/
Lyngás
Hnoðraholt
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Viðskiptafélagarnir Edward Mac
Gillivray Schmidt og Jónas Hagan
Guðmundsson keyptu þrjár efstu
hæðirnar á Lindargötu 37, ellefu
hæða íbúðaturni í Skuggahverfinu í
Reykjavík. Félagarnir eru búsettir í
Genf og nota allar fjórar íbúðirnar á
efstu hæðunum sem orlofsíbúðir.
Kaupin sæta tíðindum á íslensk-
um fasteignamarkaði því með íbúð-
unum er sett nýtt viðmið fyrir íburð í
fjölbýlishúsum. Þannig hefur Morg-
unblaðið heimildir fyrir því að fé-
lagarnir hafi sett minnst á annað
hundrað milljónir í húsbúnað og
hönnun og kemur það til viðbótar
einu hæsta fermetraverði landsins.
Annars vegar keypti Schmidt
íbúðir 901 og 902 en þær eru 183,3
og 173,2 fermetrar, alls 356,2 fer-
metrar. Veitti byggingarfulltrúi í
Reykjavík samþykki fyrir því að
íbúðirnar yrðu sameinaðar.
Verðið líklega yfir 500 milljónir
Hins vegar keypti Jónas Hagan
tvær efstu íbúðirnar á 10. og 11. hæð
en þær eru 209,6 og 253 fermetrar,
samtals 462,6 fermetrar.
Félagið Main ehf. keypti íbúð-
irnar fyrir hönd Jónasar Hagan en
það er í 100% eigu Principal Hold-
ings ehf. en hlutur Jónasar Hagan í
því er 64,26% og á félagið Respect
ehf. 35,74% hlut, samkvæmt fyrir-
tækjaskrá Creditinfo.
Samanlagt eru efstu þrjár hæð-
irnar 819,1 fermetri og herma heim-
ildir blaðsins að reikna megi með að
fermetrinn kosti 700 þúsund krónur.
Samkvæmt því er kaupverðið yfir
570 milljónir.
Fyrir þá upphæð mætti kaupa 28
níutíu fermetra íbúðir í Árbænum,
svo dæmi sé tekið út frá dæmigerðu
meðalverði seldra eigna í hverfinu.
Þetta kann að vera varlega áætlað
enda hafði Morgunblaðið eftir fast-
eignasala að fermetraverð á efstu
hæðum í nýjustu turnum Skugga-
hverfisins væri allt að milljón króna.
Að viðbættum kostnaði við hönn-
un og húsbúnað má því ætla að
kostnaður við íbúðirnar fjórar sé um
og yfir 700 milljónir króna.
Það undirstrikar náin tengsl
Schmidt og Jónasar Hagan að sá síð-
arnefndi skrifaði undir báða kaup-
samninga sem kaupandi. Félagið
Strendur ehf. var seljandi íbúðanna.
Kaupverðinu haldið leyndu
Hjá Sýslumanninum í Reykjavík
fengust þær upplýsingar að ekki
væri hægt að sjá kaupverð eignanna,
enda kæmi kaupverðið ekki fram í
viðaukum við kaupsamning. Það er
ekki skylt að þinglýsa viðaukum og
eru þeir því trúnaðargögn.
Slíkt er langt í frá einsdæmi en
fasteignasali sem rætt var við sagði
algengt að dýrustu einbýlishús væru
ekki auglýst heldur væri líklegra
kaupenda leitað í röðum efnafólks.
Móðir Jónasar býr í annarri efstu
íbúðinni og var útbúinn hringstigi á
milli 10. og 11. hæðar. Íbúðirnar eru
annars eins konar orlofsíbúðir eig-
enda sem eiga aðalheimili í Genf.
Þeir félagar Schmidt og Jónas
Sagan voru í hópi fjárfesta sem
fengu í haust heimild frá Fjármála-
eftirlitinu til að fara með virkan
eignarhlut í Straumi fjárfestingar-
banka. Jónas Hagan er forstjóri
Taxfree Worldwide en Schmidt er
stjórnarformaður Steinhaufen Hold-
ing ehf. Var félagið hluti af kaup-
endahópnum í Straumi.
Það félag er með sama heimilis-
fang og Principal Holdings, félag
Jónasar Hagan.
Láta innrétta dýrustu
íbúðir Íslandssögunnar
Viðskiptafélagar kaupa þrjár efstu hæðirnar í turnhýsi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lindargata 37 Þar er að finna dýr-
ustu íbúðir Íslandssögunnar.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Landsmenn bera mest traust til
Landhelgisgæslunnar af helstu
stofnunum landsins, samkvæmt nið-
urstöðum í nýjum Þjóðarpúls Gall-
up. Samtals treystir 81% Gæslunni.
Minnst traust bera landsmenn til
bankakerfisins eða 12% og næst-
minnst til Alþingis eða 18% en þess
má geta að það er 6 prósentustigum
minna en á sama tíma í fyrra.
HÍ og lögreglan ofarlega
Fjármálaeftirlitið er í þriðja sæti
neðan frá en 21% treystir því og er
embætti Umboðsmanns skuldara í
því fjórða með 28%. Þær þrjár
stofnanir sem skipuðu efstu sætin
eru þær sömu og hafa verið þar síð-
ustu ár en á eftir Landhelgisgæsl-
unni kemur lögreglan með 77%
traust og þá Háskóli Íslands með
72%.
Í frétt frá Gallup kemur fram að
þó að Landhelgisgæslan skipi efsta
sætið þá mælist traustið átta pró-
sentustigum minna en síðasta ár.
Sex af hverjum tíu bera mikið
traust til heilbrigðiskerfisins, um
43% bera mikið traust til embættis
forseta Íslands og sama hlutfall til
dómskerfisins.
Mesta hækkun á milli ára má sjá
hjá ríkissáttasemjara en traust til
hans hækkar upp í 51% eða um
þrettán prósentustig. Þátttökuhlut-
fall var 58,0% og úrtaksstærð 2.900
einstaklingar.
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Traustið á þinginu minnkaði um 6 prósentustig milli ára.
Aðeins 18% bera
traust til Alþingis
Flestir treysta Landhelgisgæslunni