Morgunblaðið - 21.03.2015, Page 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015
Þorfinnur Skúlason er vefstjóri hjá lyfjafyrirtækinu Alvogenen hann hefur starfað í þessum geira frá 1998. Þorfinnur eríslenskufræðingur að mennt og gaf út skemmtileg og áhuga-
verð rit á sínum tíma. „Ég hef minni tíma fyrir það núna en þetta
voru mest rit frá 18. öld. Ég gaf út ritsafn með Víkingi Kristjánssyni
leikara sem heitir Upplýsingaröldin og með Erni Hrafnkelssyni gaf
ég út nokkur rit eins og Brúðkaupssiðabók Eggerts Ólafsonar og
Leiðarvísi í ástarmálum og einnig uppeldisbók frá 18. öld. Þar eru
ýmis heilræði eins og að það eigi ekki að gefa ungbörnum brennivín,
en það virðist hafa verið gert á þessum tíma til að róa þau.“
Þorfinnur er núna að byggja upp vefi fyrir Asíuhluta Alvogen.
„Við erum komin langt með vef fyrir Taívan og svo erum við að
setja upp vef fyrir S-Kóreu. Það eru stærstu verkefnin í augnablik-
inu, en starfsemi fyrirtækisins er í 34 löndum og jafnt og þétt erum
við að byggja upp vefi fyrir starfsemina.
Utan vinnu þá er það helst að maður lesi góðar bækur, ég hef
gaman af að elda og hef verið í brauðbakstri. Svo hleyp ég svolítið,
tók þátt í Amsterdam-hálfmaraþoni síðasta október og spila golf yf-
ir sumarið og er alltaf í fótbolta svo það er heilmikið sem maður er
að djöflast í. Ég tók síðan rispu 2013 í teikningum, setti nýársheit þá
um að teikna eina mynd á dag og náði að uppfylla það í hálft ár.“
Eiginkona Þorfinns er Kristrún Halla Helgadóttir og börn þeirra
eru Embla 17 ára, Kristín 10 ára og Magnea 9 ára.
Þorfinnur Skúlason er 44 ára í dag
Hjónin Þorfinnur og Kristrún Halla, sagnfræðingur og vinnur við Ís-
lendingabók en Þorfinnur vann einnig við það verkefni í byrjun þess.
Upplýsingarmaður
í nútíma og fortíð
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Patrik
Máni Alexanders-
son fæddist 3. apríl
2014. Hann vó
4.048 g og var 51
cm langur. For-
eldrar hans eru Al-
exander Ingi Krist-
jánsson og Aníka
Rut Halldórsdóttir.
Nýr borgari
F
Kristín Jóhannesdóttir
er fædd á Siglufirði 21.
mars 1975 en ólst upp í
Örebro í Svíþjóð til 9
ára aldurs þar sem for-
eldrar hennar voru við nám. Hún
flutti þá í Garðabæinn og gekk í
Flataskóla og Garðaskóla í Garðabæ.
„Fyrsta sumarvinnan var á Hvera-
bakka á Flúðum, þar sem ég starfaði
í fjögur sumur á garðyrkjubúi hjá
Sigurði Tómassyni og Svövu Svein-
björnsdóttur. Næstu tíu sumur eftir
það var ég í Mývatnssveit, fyrst sex
sumur á Hótel Reynihlíð og síðan tvö
sumur hjá Mýflugi. Loks tóku við tvö
sumur þar sem ég aðstoðaði unnust-
ann við rekstur hestaleigu í sveitinni.
Eftir grunnskólann lá leiðin í
Menntaskólann við Hamrahlíð, þar
sem draumurinn hafði alltaf verið að
komast í kór Menntaskólans við
Hamrahlíð, og útskrifaðist sem stúd-
ent af náttúrufræðibraut vorið 1995.“
Búið á Akureyri frá 1996
Í janúar 1996 flutti Kristín norður
til Akureyrar, þar sem hún fór að
vinna í leik- og grunnskóla í nokkra
mánuði áður en hún byrjaði í grunn-
skólakennaranámi við Háskólann á
Akureyri. Ég lauk B.Ed. prófi frá
HA sumarið 1999, en þá fæddist
frumburðurinn. Eftir stutt fæðing-
arorlof fór ég að kenna, fyrst við af-
leysingar í Brekkuskóla. Haustið
2000 byrjaði ég að kenna í Lundar-
skóla, þar sem ég starfaði til sumars
2012, lengst af í kennslu, en síðustu
tvö árin sem deildarstjóri. Haustið
2012 var ég ráðin skólastjóri við Odd-
eyrarskóla á Akureyri og er því á
Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri við Oddeyrarskóla – 40 ára
Hjónin Kristín og Erlingur við útreiðar við Kotvöll á Suðurlandi þar sem þau dvelja gjarnan á sumrin.
Tónlistin alltaf verið
helsta áhugamálið
Afmælisbarnið Kristín.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta