Morgunblaðið - 21.03.2015, Page 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015
Sýning á veflistaverkum Ásgerðar
Búadóttur verður opnuð í Galleríi
Fold við Rauðarárstíg í dag. „Á
sýningunni er m.a. síðasta vegg-
klæðið sem Ásgerður gerði. Þetta
er abstrakt-verk byggt á línum og
formum ofið úr ull og hrosshárum
en auk verksins eru sýndar skissur
og vinnuteikningar af verkinu sem
gefur einstaka sýn á vinnuferli
listamannsins,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu.
Ásgerður fæddist í Borgarnesi 4.
desember 1920. Hún stundaði fram-
haldsnám við Konunglegu listaaka-
demíuna í Kaupmannahöfn árin
1946-49.
„Ásgerður var án efa markverð-
asti veflistamaður þjóðarinnar á 20.
öld. Alls urðu einkasýningar Ás-
gerðar 15 talsins og hún tók þátt í
um 70 samsýningum hér á landi
sem erlendis,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu. Ásgerður lést árið 2014. Sýn-
ingin stendur til 12. apríl.
Veflistaverk
Ásgerðar
Verk Ofið úr ull og hrosshári.
Hljómsveitakeppnin Músíktilraunir
hefst í Hörpu á sunnudagskvöld, en
þetta er í 33. sinn sem keppnin er
haldin. 39 hljómsveitir taka þátt í
keppninni að þessu sinni, tíu sveitir
keppa sunudagskvöld frá kl. 19.30
og síðan verður keppninni haldið
áfram á sama tíma næstkomandi
mánudags-, þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld, en úrslitin verða
laugardaginn 28. mars kl. 17.
Í undanúrslitum velur salur eina
hljómsveit en dómnefnd aðra. Dóm-
nefndin er skipuð undirrituðum,
Árna Matthíassyni, og þeim Agli
Tómassyni, Ásu Dýradóttur, Gunn-
ari Gunnarssyni, Hildi Guðnýju Þór-
hallsdóttur, Kristjáni Kristjánssyni
og Ragnheiði Eiríksdóttur.
Tilraunirnar voru fyrst haldnar
1982 og í gegnum tíðina hafa helstu
verðlaun verið hljóðverstímar.
Fyrstu verðlaun í tilraununum að
þessu sinni eru tuttugu hljóðvers-
tímar í hljóðverinu Sundlauginni
með hljóðmanni, en einnig fær sig-
ursveitin 50.000 kr. peningagjöf frá
Senu, gjafabréf frá Icelandair í Evr-
ópuferð til að spila á vegum Stage
Europe Network sem Hitt Húsið er
aðili að, að spila á Iceland Airwaves
og að koma fram á tónlistarhátíðinni
Aldrei fór ég suður 2015, flug og
gisting innifalið, tuttugu þúsund
króna úttekt frá 12 Tónum og styrk
úr Minningarsjóði Péturs Kristjáns-
sonar.
Sú hljómsveit sem lendir í öðru
sæti fær líka hljóðverstíma, tuttugu
tíma í Stúdíó Paradís ásamt hljóð-
manni, fær að spila á Iceland
Airwaves og fimmtán þúsund króna
úttekt frá 12 Tónum.
Verðlaun fyrir þriðja sæti eru
tuttugu hljóðverstímar í Aldingarð-
inum ásamt hljóðmanni og tíu þús-
und króna úttekt frá 12 Tónum.
Hljómsveit fólksins fær upp-
tökutæki frá Tónastöðinni, tuttugu
þúsund króna úttekt frá Smekk-
leysu, plötubúð og að spila í beinni í
Popplandi á Rás 2.
Tónastöðin verðlaunar svo gítar-
leikara, bassaleikara, hljómborðs-
leikara og trommuleikara Músíktil-
rauna 2015 með þrjátíu þúsund
króna úttekt í versluninni. Rafheili
Músíktilrauna fær líka þrjátíu þús-
und króna úttekt frá Tónastöðinni
og mix og masteringu frá Möller Re-
cords.
Söngvari Músíktilrauna fær
SHURE Beta 58 hljóðnema frá
Hljóðfærahúsinu.
Forlagið veitir bókagjöf sem
viðurkenningu fyrir textagerð á ís-
lensku og árs áskrift að snara.is.
Auk þeirra hljómsveita sem getið
er hér til hliðar koma fram Elgar úr
Reykjavík; Ívar Hannes Pétursson,
Eiður Tjörvi Pálsson, Dagur Leó
Pálsson og Danival Heide Sævars-
son, Distort City úr Mosfellsbæ og
víðar; Samúel Ásgeirsson, Axel
Markús Ólafsson, Ögmundur Kára-
son og Hreggviður Emil Eðvarðsson
og Áhryf úr Kópavogi; Þorgeir
Björnsson, Huginn Goði Kolbeins-
son og Sindri Franz Pálsson.
arnim@mbl.is
Músíktilraunir 2015
Vára úr Kópavogi Sigurpáll Viggo Snorrason, Guðjón
Sveinsson, Bjarni Daníel Þorvaldsson, Bjarni Þorleifs-
son og Dagur Reykdal Halldórsson.
Deffice úr Kópavogi Patrekur Einar Sæmundsen,
Sigursteinn Pálsson Enos, Halldór Pétur Gunnarsson,
Greipur Garðarsson og Snorri Haraldur Hjálmarsson.
Tramps úr Reykjavík Kristinn Godfrey Guðnason, Fannar Pálsson, Kristján
Pétur Jónsson, Katrín Björg Hjálmarsdóttir og Alex Pétur Ólafsson.
Par-Ðar af Suðurnesjum Arnar Ingólfsson, Kristjón Freyr Hjaltested,
Viktor Atli Gunnarsson, Eyþór Eyjólfsson og Sævar Helgi Jóhannsson.
Yolo af Akranesi Kristján Alexander Kristjánsson og
Halldór Logi Sigurðarson.
Epik úr Reykjavík Hljómsveitina skipa þau Friðgeir Óli Bjarnason, Aron
Can Gultekin og Bríet Ísis Elfar.
Gummi Hebb úr Reykjavík Eða bara Guðmundur Her-
bertsson.
Hljómsveita-
keppnin Músíktil-
raunir hefst í
Norðurljósasal
Hörpu á sunnudag
Söfn • Setur • Sýningar
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Á veglausu hafi í Bogasal
Hvar, hver, hvað? í Myndasal
Húsin í bænum á Veggnum
Íslenskir gullsmiðir - ný verk og skartgripahönnun á frímerkjum
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Reykjanesbæjar
• Til sjávar og sveita,
Gunnlaugur Scheving
• Sjálfsagðir hlutir, hönnunarsaga.
• 15/15 – Konur og myndlist,
úr safneigninni.
24. janúar – 26. apríl
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
KONUR STÍGA FRAM - SVIPMYNDIR 30 KVENNA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST
13.2.-10.5.2015
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 í fylgd Rakelar Pétursdóttur safnafræðings
A KASSEN CARNEGIE ART AWARD 2014 13.2. - 10.5. 2015
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
IN THE CRACK OF THE LAND - Una Lorenzen
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
LISTAMAÐUR Á SÖGUSLÓÐUM
Johannes Larsen á ferð um Ísland 1927 og 1930. 31.1–22.3.2015.
SUNNUDAGSDAGSKRÁ kl. 15: KVIKMYND um Íslandsferðir Johannesar Larsen &
Dönsk og íslensk sönglög í flutningi Kristjönu Arngímsdóttur og Kristjáns
Eldjárns Hjartarsonar. SÍÐASTA SÝNINGARHELGI!
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17. Kaffistofan opin á sama tíma.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
Opið sunnudaga kl. 14-17.
Largo - presto
Tumi Magnússon
Síðasta sýningarhelgi
Opið 12-17,
fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is,
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson tískuhönnuðar
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Ný sýning
ÁMUNDI: