Morgunblaðið - 06.03.2015, Page 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Enska í Englandi fyrir 13-16 ára
• 2 kennsluvikur (7.6.-19.6.) í Kent School of English
• Íslenskir hópstjórar með í för allan tímann
• Skráning í síma 891 7576 og erlaara@gmail.com
Nánari upplýsingar á
www.enskafyriralla.is
pabbi kunnu að halda stílhrein og
falleg matarboð. Réttunum var ekki
hrúgað á borðið en samt nóg af mat;
heitur matur og ein til tvær kökur á
eftir með kaffinu. Allt var búið til
heima, roastbeefið látið marínerast í
kryddlegi nokkra daga á undan, og
svo kom kokkur á heimilið til að vera
mömmu innan handar í veislunni.“
Upp úr stóð þennan dag að besta
æskuvinkona Ásdísar, Stefanía Stef-
ánsdóttir, fékk að koma alla leið
norður frá Reykjavík til að taka þátt
í stóra deginum, og Ásdís var að
sama skapi send suður þegar vinkon-
an fermdist.
Hætt komin með Carmen
Fermingardagurinn hófst
snemma því ekki kom annað til
greina en að gera veglega ferming-
arhárgreiðslu. Hárgreiðslukona kom
á staðinn og „hún var svo djörf að
setja í mig Carmen-rúllur, í þetta
síða og óvenjuþykka hár, og þegar
kom að því að losa rúllurnar hafði
eitthvað flækst. Á tímabili var hætta
Þ
ó svo að glæstur fyr-
irsætuferill hafi verið rétt
handan við hornið var Ásdís
María Franklín, ótrúlegt en
satt, í óttalegum vandræðum með
sjálfa sig sem unglingur. „Ég var
þarna að detta inn í þennan kafla í
lífinu þegar sjálfstraustið minnkar.
Ég var frekar ósátt með sjálfa mig
og læddist meðfram veggjum í skól-
anum. Ekki hjálpaði til að ég var enn
frekar smávaxin í samanburði við
hinar stelpurnar, tók ekki vaxt-
arkipp fyrr en ári síðar, og fannst
nefið mitt stórt og í engu samræmi
við restina af líkamanum,“ segir hún.
„Það fylgir þessum árum óhjá-
kvæmilega að þurfa að læra að sætt-
ast við hvernig maður er, þroskast
og finna sjálfan sig sem maneskju.“
Í góðu yfirlæti erlendis
Ásdís er í dag búsett í Noregi með
eiginmanni sínum og þremur börn-
um þeirra. Þar settist fjölskyldan að
fyrir fjórum árum og bjó fyrstu þrjú
árin í Stafangri, en síðar í Fredrik-
stad austar í landinu. „Við ákváðum
að flytja til að vera nær ættingjum
og vinum sem við eigum í Svíþjóð og
Osló. Í Stafangri fundum við að
vegalengdirnar gátu verið fulllangar
til að rækta sambandið við þetta
fólk.“
Ásdís segir lengi hafa staðið til að
flytja til Skandinavíu. „Við vorum
með þessa hugmynd í maganum í tíu
ár, vorum að spá í að fara á meðan ég
var enn í námi í lyjafræði, en svo
langaði mig að byrja á því að starfa
fyrst á Íslandi í nokkur ár. Ég hafði
unnið sem lyfjafræðigur á Íslandi í
fjögur ár þegar við pökkuðum saman
og héldum af stað. Við hugsuðum
sem svo að það yrði áhættunnar virði
að segja upp vinnunni og láta slag
standa, annars myndum við sjá eftir
því á elliheimilinu að hafa ekki drifið
okkur.“
Margar veislur á sama stað
Fermingardagurinn var 16. apríl
1992 og fermdist Ásdís í Akureyr-
arkirkju. Ásdís segir minningarnar
frá deginum ekki alveg ljósar, því
yngri systur hennar og börn móð-
ursysturinnar í Svíþjóð létu einnig
ferma sig á Akureyri og var veislan
þá haldin á heimilinu. „Þess vegna
veit ég ekki alveg með vissu hvaða
minningar eru úr minni veislu og
hvaða minningar úr fermingarveislu
annarra.“
Ásdís man eftir góðu veðri og
flottum veitingum. „Mamma og
á að ég yrði of sein í kirkjuna og
þurfti þrjár konur til að losa síðustu
rúllurnar.“
Fermingarfötin voru hvít frá toppi
til táar. „Ég var í hvítum skóm, ljós-
um sokkabuxum og hvítum stutt-
buxum yfir. Að ofan klæddist ég ein-
hvers konar hvítri jakkapeysu sem
náði rétt niður fyrir brjóst, og tók
svo við hvítt net sem hékk niður á
læri eins og kjóll.“
Húsgögnin entust
Minnist Ásdís þess ekki að jafn-
aldrar hennar hafi lagt mikla áherslu
á fermingargjafirnar. „Ég fékk bara
passlega mikið af alls konar gjöfum;
mikið af hálsfestum og eitthvað af
peningum í umslagi. Frá foreldrum
mínum fékk ég ný húsgögn í her-
bergið mitt,“ segir hún. „Þessi hús-
gögn fylgdu mér lengi og þegar við
fluttum út til Noregs tók systir mín
við bókahillunni. Hún ákvað reyndar
að uppfæra mubluna og skipti út
hvítum hillunum fyrir mahóníhillur.“
ai@mbl.is
Smávaxin og
læddist með-
fram veggjum
Fagmaður Ásdís að störfum í apótekinu í Noregi, þar sem hún býr nú með eiginmanni og þremur börnum
Huggó Smekklegt veisluborð.
Engill Fermingarbarnið var í hvítu
frá toppi til táar.
Frami Frá fyrirsætuárunum, sem
voru handan við hornið.Stolt Foreldrarnir alsælir og fermingarbarnið blosir blítt.
Á fermingardaginn klæddist Ásdís María Franklín hvítu
frá toppi til táar. Litlu munaði að hárgreiðslan setti strik í
reikninginn þegar Carmen-rúllurnar festust.
Rúllur Hárið var til vandræða.