Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ Enska í Englandi fyrir 13-16 ára • 2 kennsluvikur (7.6.-19.6.) í Kent School of English • Íslenskir hópstjórar með í för allan tímann • Skráning í síma 891 7576 og erlaara@gmail.com Nánari upplýsingar á www.enskafyriralla.is pabbi kunnu að halda stílhrein og falleg matarboð. Réttunum var ekki hrúgað á borðið en samt nóg af mat; heitur matur og ein til tvær kökur á eftir með kaffinu. Allt var búið til heima, roastbeefið látið marínerast í kryddlegi nokkra daga á undan, og svo kom kokkur á heimilið til að vera mömmu innan handar í veislunni.“ Upp úr stóð þennan dag að besta æskuvinkona Ásdísar, Stefanía Stef- ánsdóttir, fékk að koma alla leið norður frá Reykjavík til að taka þátt í stóra deginum, og Ásdís var að sama skapi send suður þegar vinkon- an fermdist. Hætt komin með Carmen Fermingardagurinn hófst snemma því ekki kom annað til greina en að gera veglega ferming- arhárgreiðslu. Hárgreiðslukona kom á staðinn og „hún var svo djörf að setja í mig Carmen-rúllur, í þetta síða og óvenjuþykka hár, og þegar kom að því að losa rúllurnar hafði eitthvað flækst. Á tímabili var hætta Þ ó svo að glæstur fyr- irsætuferill hafi verið rétt handan við hornið var Ásdís María Franklín, ótrúlegt en satt, í óttalegum vandræðum með sjálfa sig sem unglingur. „Ég var þarna að detta inn í þennan kafla í lífinu þegar sjálfstraustið minnkar. Ég var frekar ósátt með sjálfa mig og læddist meðfram veggjum í skól- anum. Ekki hjálpaði til að ég var enn frekar smávaxin í samanburði við hinar stelpurnar, tók ekki vaxt- arkipp fyrr en ári síðar, og fannst nefið mitt stórt og í engu samræmi við restina af líkamanum,“ segir hún. „Það fylgir þessum árum óhjá- kvæmilega að þurfa að læra að sætt- ast við hvernig maður er, þroskast og finna sjálfan sig sem maneskju.“ Í góðu yfirlæti erlendis Ásdís er í dag búsett í Noregi með eiginmanni sínum og þremur börn- um þeirra. Þar settist fjölskyldan að fyrir fjórum árum og bjó fyrstu þrjú árin í Stafangri, en síðar í Fredrik- stad austar í landinu. „Við ákváðum að flytja til að vera nær ættingjum og vinum sem við eigum í Svíþjóð og Osló. Í Stafangri fundum við að vegalengdirnar gátu verið fulllangar til að rækta sambandið við þetta fólk.“ Ásdís segir lengi hafa staðið til að flytja til Skandinavíu. „Við vorum með þessa hugmynd í maganum í tíu ár, vorum að spá í að fara á meðan ég var enn í námi í lyjafræði, en svo langaði mig að byrja á því að starfa fyrst á Íslandi í nokkur ár. Ég hafði unnið sem lyfjafræðigur á Íslandi í fjögur ár þegar við pökkuðum saman og héldum af stað. Við hugsuðum sem svo að það yrði áhættunnar virði að segja upp vinnunni og láta slag standa, annars myndum við sjá eftir því á elliheimilinu að hafa ekki drifið okkur.“ Margar veislur á sama stað Fermingardagurinn var 16. apríl 1992 og fermdist Ásdís í Akureyr- arkirkju. Ásdís segir minningarnar frá deginum ekki alveg ljósar, því yngri systur hennar og börn móð- ursysturinnar í Svíþjóð létu einnig ferma sig á Akureyri og var veislan þá haldin á heimilinu. „Þess vegna veit ég ekki alveg með vissu hvaða minningar eru úr minni veislu og hvaða minningar úr fermingarveislu annarra.“ Ásdís man eftir góðu veðri og flottum veitingum. „Mamma og á að ég yrði of sein í kirkjuna og þurfti þrjár konur til að losa síðustu rúllurnar.“ Fermingarfötin voru hvít frá toppi til táar. „Ég var í hvítum skóm, ljós- um sokkabuxum og hvítum stutt- buxum yfir. Að ofan klæddist ég ein- hvers konar hvítri jakkapeysu sem náði rétt niður fyrir brjóst, og tók svo við hvítt net sem hékk niður á læri eins og kjóll.“ Húsgögnin entust Minnist Ásdís þess ekki að jafn- aldrar hennar hafi lagt mikla áherslu á fermingargjafirnar. „Ég fékk bara passlega mikið af alls konar gjöfum; mikið af hálsfestum og eitthvað af peningum í umslagi. Frá foreldrum mínum fékk ég ný húsgögn í her- bergið mitt,“ segir hún. „Þessi hús- gögn fylgdu mér lengi og þegar við fluttum út til Noregs tók systir mín við bókahillunni. Hún ákvað reyndar að uppfæra mubluna og skipti út hvítum hillunum fyrir mahóníhillur.“ ai@mbl.is Smávaxin og læddist með- fram veggjum Fagmaður Ásdís að störfum í apótekinu í Noregi, þar sem hún býr nú með eiginmanni og þremur börnum Huggó Smekklegt veisluborð. Engill Fermingarbarnið var í hvítu frá toppi til táar. Frami Frá fyrirsætuárunum, sem voru handan við hornið.Stolt Foreldrarnir alsælir og fermingarbarnið blosir blítt. Á fermingardaginn klæddist Ásdís María Franklín hvítu frá toppi til táar. Litlu munaði að hárgreiðslan setti strik í reikninginn þegar Carmen-rúllurnar festust. Rúllur Hárið var til vandræða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.