Morgunblaðið - 06.03.2015, Síða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
etta er bara búið að vera
mjög skemmtilegur tími.
Það hefur verið gaman að
undirbúa ferminguna,“ segir
Sólveig Halla Eiríksdóttir ferming-
arbarn.
Hún er elst þriggja barna Eiríks
Gunnsteinssonar hæstaréttarlög-
manns og konu hans Sigurlaugar
Bjargar Stefánsdóttur, verk-
efnastjóra hjá Ríkiskaupum.
„Þetta er fyrsta fermingin hjá
okkur hérna heima,“ segir Sólveig
Halla. „Við erum búin að velta því
heilmikið fyrir okkur hvernig við
ætlum að hafa allt í kringum ferm-
inguna.“
Hvað er þér eftirminnilegt úr und-
irbúningnum?
„Allt eiginlega. Skemmtilegast
var að kaupa fötin og undirbúa veisl-
una.“
Hvernig föt keyptir þú?
„Ég er bara búin að kaupa hvítan
kjól sem nær niður á hné og er með
búndu að ofan og síðerma. Ekta
fermingarkjóll. Ég á eftir að kaupa
skó. Ég ætla að hafa frekar einfalda
hárgreiðslu, slegið hár með svolitlum
liðum, en tveir fremstu lokkarnir
verða festir saman aftan á höfðinu.
Ég hef prófað mig áfram með
greiðsluna og mamma hefur hjálpað
mér.“
Er þetta í takt við það sem er í
tísku hjá stelpum núna?
„Já, margar ætla að vera með
krullur og einfalda greiðslu. Lang-
flestar verða í hvítum kjól, sumar þó
öðrum litum. Við erum nokkrar vin-
konur sem fermumst saman en sum-
ar fermast á öðrum tímum en ég.“
Vinkonurnar hafa talað mikið
saman um ferminguna
Hafi þið haft samráð um hvernig
þið viljið hafa ferminguna?
„Já, við erum búnar að tala mjög
mikið um ferminguna. Við erum allar
að skipuleggja veislurnar okkar og
segjum hver annarri hvernig við ætl-
um að hafa þetta. Við höfum líka rætt
um fermingarfötin og hvernig við
ætlum að vera á fermingardaginn.“
Mála stelpur sig núna fyrir ferm-
inguna?
„Já, en ekki allar. Flestar gera
það samt held ég. Ég ætla mála mig
smávegis.“
Hvernig hefur fermingarfræðslan
gengið?
„Frekar vel. Það hefur verið gam-
an. Við vorum á námskeiði í sumar
og svo fórum við í Vatnaskóg fyrir
skömmu. Við gistum eina nótt, vor-
um í fræðslutímum og fórum í leiki.
Prestarnir í Neskirkju eru tveir og
ferma okkur saman. Þeir séra Skúli
S. Ólafsson og séra Sigurvin Jóns-
son, æskulýðsprestur Neskirkju.“
Ertu trúuð?
„Já, svona nokkurn veginn. Ég bið
þó ekki bænir nema þegar ég fer í
messu. Ég hef farið í kirkju en ekki
oft nema núna fyrir ferminguna.
Sóknarkirkjan mín er Neskirkja og
þangað hef ég farið í messur.“
Hvað finnst þér merkilegast í boð-
skap kristninnar?
„Ég held að vera góð manneskja.
Kristin trú er um það að vera góð
manneskja. Ég get alveg fyrirgefið
fólki. Við höfum heyrt svo mikið og
margt í fermingarfræðslunni – en
þetta stendur upp úr.“
Ætlar að segja nokkur
orð við gestina
Ætlar þú að halda veislu?
„Já, hún verður heima hjá okkur.
Það verður boðið um sjötíu til áttatíu
manns. Ættingjar og vinir koma.
Það verða margir smáréttir á boð-
stólum og svo nokkrar kökur og
kaffi.“
Hefur þú sjálf farið í margar
fermingarveislur?
„Já, nokkrar. Flestar hjá ætt-
ingjum, þær hafa verið skemmti-
legar. Ég ætla að segja nokkur orð
við gestina mína en ekki halda langa
ræðu.“
Hvað viltu segja um gjafir?
„Mig langar helst að fá peninga.
Ég er annars ekki mjög mikið að
pæla í gjöfum. Frændfólk mitt kem-
ur frá útlöndum, það er góð gjöf að
fá þau í veisluna – persónuleg gjöf.
Við heima erum að fara að bera út
boðskort á næstunni. Það er
skemmtilegt að undirbúa þetta allt
saman.“
Hafa foreldrar þínir sagt þér frá
sinni fermingu?
„Já, þau hafa sagt mér frekar
mikið frá því þegar þau fermdust.
Fermingin mín verður held ég nokk-
uð svipuð og það sem þau hafa sagt
mér frá.“
gudrunsg@gmail.com
Morgunblaðið/Eggert
Kristin trú er
að vera góð
manneskja
Mikill undirbúningur fylgir gjarnan fermingum. Sólveig
Halla Eiríksdóttir fermist 28. mars næstkomandi frá Nes-
kirkju. Hún hlakkar að eigin sögn mjög til að fermast.
Sólveig Halla: „Ég get alveg fyrirgefið fólki. Við höfum heyrt svo
mikið og margt í fermingarfræðslunni – en þetta stendur upp úr.“
Fjölskyldan Sólveigu Höllu Eiríksdóttur hefur þótt gaman að undirbúa ferminguna með fjölskyldu og vinum.
Fyrirmynd Sólveig Halla með tveimur yngri systrum sínum.