Morgunblaðið - 06.03.2015, Qupperneq 12
É
g stofnaði Sætar syndir
vegna þess að þegar sonur
minn fæddist þá vaknaði hjá
mér mikill áhugi á köku-
skreytingum, sérstaklega í
tengslum við afmælin hans,“ út-
skýrir Eva María Hallgrímsdóttir,
stofnandi og eigandi fyrirtækisins.
„Með tímanum urðu kökurnar alltaf
flóknari og viðameiri hjá mér ásamt
því að hæfileikar mínar á þessu
sviði jukust.“ Í dag er svo komið að
Sætar syndir geta státað af því að
vera eina fyrirtækið sem er með
matvælavottað eldhús og selur kök-
ur skreyttar með sykurmassa, fyrir
utan bakarí og konditorí.
„Hjá fyrirtækinu starfa snill-
ingar í skreytingagerð sem hafa
gert fyrirtækinu kleift að vaxa og
dafna frá upphafi og gaman að
segja frá því að það eru enn
skemmtilegri tímar fram-
undan hjá Sætum synd-
um,“ bætir Eva María
við.
Skreytum eftir óskum
Að sögn Evu Maríu
felst sérstaða Sætra
synda ekki síst í
því að allar kök-
urnar eru gerðar
eftir óskum hvers
og eins og því er úr-
valið endalaust.
„Við notumst
eingöngu við
hágæða hráefni
og við státum
af því að selja
kökur sem
eru í senn
sérlega
fallegar og
dásamlega
bragðgóð-
ar. Við
útbúum og
skreytum allar
kökur í samræmi við
óskir fermingarbarnsins.
Það getur til dæmis átt við litavalið
á kökunni svo hún sé í stíl við aðrar
skreytingar og litaþemað í veisl-
unni. Oft er kakan mótuð og
skreytt út frá áhugamáli eða þeim
tómstundum sem fermingarbarnið
stundar; svo sem
ákveðið boltalið,
dans og dansskór,
tónlist, málningardót
eða klæðaburður.“
Súkkulaði og
fótboltatreyjur
Aðspurð segir Eva María að fót-
boltatreyjur séu sérlega vinsælar
um þessar mundir sem og stíl-
hreinar rósakökur, enda sé það svo
að einfaldleikinn sé oft fallegastur.
„Frozen-æðið hefur verið yfirgnæf-
andi síðustu mánuði hjá yngri kyn-
slóðinni í afmælum. Súkku-
laðikökur seljast alltaf vel enda er
það bragð sem flestir vilja og við
bjóðum upp á 4 mismunandi fyll-
ingar á kökum en það er líka alltaf
hægt að koma með séróskir og við
skoðum það hverju sinni. Vinsæl-
asta fyllingin hjá okkur er hrika-
lega góð frönsk súkkulaðikaka með
sérstakri karamellu sem við búum
til.“
Litríkar fermingarkökur
Það má því með sanni segja að
möguleikarnir séu nánast óþrjót-
andi og útfærslurnar jafn margar
og fermingarbörnin þegar allt kem-
ur til alls. „Það er voða vinsælt að
fá litríkar kökur á 3-4 hæðum en
þar sem hver kaka er mótuð og
skreytt út frá hverju ferming-
arbarni fyrir sig þá
eru í raun engar ákveðnar út-
færslur vinsælli en aðrar. Litli
frændi minn er til dæmis að ferm-
ast í vor og langar hann að hafa
fermingarkökuna sína eins og
skyrtu með bindi og handlóð í kring
þar sem það að lyfta lóðum er hans
áhugamál. Fermingarkökurnar
taka mið af þeim sem fermist
hverju sinni og þannig finnst okkar
það eiga að vera.“
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Undurfagrar Allar kökurnar eru gerðar
eftir óskum hvers og eins.
Allt eftir óskum fermingarbarnsins
Það er ómissandi að hafa
myndarlega köku á borð-
um í fermingarveislunni.
Þar eru möguleikarnir nán-
ast ótæmandi, ekki síst
þegar kökugerðin Sætar
syndir er annars vegar. Þar
á bæ eru valkostirnir enda-
lausir og útkoman iðulega
ekkert minna en mögnuð.
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Fermingar