Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 26

Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi | Opið virka daga 10-18, laugard. 11-15 Fermingar 2015 É g fermist 29. maí með skóla- systkinum mínum úr Kópa- vogsskóla og krökkum úr Álfhólsskóla,“ segir Ari Elí- as Arnalds fermingarbarn. Hvernig hefur fermingarfræðslan gengið? „Hún er mjög fín. Prestarnir eru báðir góðir og skemmtilegir og fermingarbókin er mjög skemmti- leg með allskonar verkefnum. Svo hef ég farið í messur með þeim krökkum sem ég fermist með. Flestallt í messunum er frekar eft- irminnilegt. Fyrirgefningin er merkileg, um hana er ýmislegt sagt í fermingarbókinni. Boðskapurinn er góður. Dæmisögurnar hafa dálít- il áhrif á mann, allavega mig.“ Ertu trúaður? „Já, ég er frekar trúaður. Ekki samt með neina ofsatrú. Ég bið stundum bænir, en ekki á hverju kvöldi. Ég hef heldur ekki lent í neinu slæmu af því ég er svo ungur og hef því ekki þurft á bænum til Guðs að halda sérstaklega.“ Hvaða hugmyndir gerir þú þér um fermingardaginn? „Ég hlakka til fermingardagsins, ég held samt að dagurinn verði svo- lítið skrítinn. Ég verð í fyrsta skipti frá því ég man eftir mér sjálfur með stóra veislu. Þetta verður fín veisla. En ég er samt ekki að fara að bjóða mjög mörgum,“ segir Ari. Veislan verður heima Hvernig ætlar þú að hafa veisluna? „Ég ætla að hafa hana heima hjá mér og bjóða aðallega ættingjum. Mjög nánum ættingjum, mest frændum og frænkum. Ég á mjög stóra fjölskyldu, systkinabörn við mig eru fjórtán og þau koma öll nema ein frænka sem er í útlönd- um. Svo koma systkini mömmu sem eru fimm og stjúpföður míns, Styrmis Gunnarssonar. Þau eru ekki eins mörg. Líklega verða í veislunni milli fjörutíu og sextíu manns.“ Og hvað hefur þú hugsað þér að bjóða upp á? „Það verður mikill matur en það er eftir að skipuleggja betur mat- seðilinn. Svo ætlum við stjúppabbi minn að spila Fifa-leik, sem er tölvuleikur. Það gerum við oft og þá er mikil keppni. Systir mín Guðrún Sigríður ætlar að spila á píanó fyrir gestina, ég held að hún verði með dálítið erfið lög. Ég býst líka við að einhver haldi ræðu. Ég þekki engan sérstaklega náinn sem hefur nýlega fermst nema Flóka Sigurjónsson frænda minn, sem fermdist borg- aralegri fermingu fyrir tveimur ár- um. Hann hélt líka veislu heima hjá sér. Á næstu þremur árum verða fermingar í fjölskyldunni, næst fermist Einar Benedikt Guð- laugsson og svo Gunna systir og Helgi Hrafnsson árið þar á eftir.“ Ertu búinn að fá þér fermingarföt? „Ég keypti mér flott vesti og blá- an jakka og svo keypti ég mér kakí- buxur grágular. Ég keypti mér loks strigaskó sem heita Vans og eru mjög flottir, dálítið í stíl við jakk- ann.“ Hvernig eru föt vina þinna sem fermast með þér? „Þeir ætla flestir að vera í jakka- fötum. Ég veit ekkert um hverju stelpurnar ætla að vera í. En ég veit að þær eru mjög spenntar að kaupa fermingarföt. Ég hef heyrt þær tala um það.“ Ferðir til útlanda í tísku Hvað með gjafir? „Ég vil helst fá peninga. Það vilja held ég flestir. Einnig eru ferðir til útlanda í tísku núna. Ég fer með pabba mínum Eyþóri Arnalds til Manchester á fótboltaleik, það er fermingargjöfin frá honum og fjöl- skyldu hans.“ Finnst þér fermingin breyta miklu í lífi þínu? „Nei, mér finnst ég ekkert endi- lega verða fullorðnari. Ég held að maður verði bara hægt og rólega fullorðinn, það gerist ekki strax. Margir sem fermast halda að þeir fullorðnist bara út af fermingunni, það held ég ekki. Mér virðast ekki allir sem fermast vera sérstaklega kristnir. Þeir hafa aðrar „ástæður“ fyrir fermingunni held ég.“ Ferðu oft í kirkju? „Ég fór mjög oft í kirkju með Gunnu systur og mömmu minni, hún heitir Móeiður Júníusdóttir og er guðfræðingur, en núna fer ég sjaldnar. Ég fer samt alltaf í þær messur sem ég á að fara í. En ég hef annars mikið að gera í skól- anum og svo er ég að læra á píanó. Ég er líka að læra jiu jitsu, sem sjálfsvarnaríþrótt. Einnig á ég líka marga vini og hitti frændur mína oft. Lokaorð mín tengjast ekki kristinni trú – ég er betri en Styrm- ir stjúpfaðir minn í Fifa, þó hann vinni mig stundum.“ gudrunsg@gmail.com Ekki með neina ofsatrú Fermingin hefur löngum verið stór stund í lífi unglinga. Ari Elías Arnalds er einn úr fjölmennum hópi ferming- arbarna séra Gunnars Sigurjónssonar og séra Magnúsar Björns Björnssonar í Digraneskirkju. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fermingardagurinn „Ég hlakka til fermingardagsins, ég held samt að dagurinn verði svolítið skrítinn. Ég verð í fyrsta skipti frá því ég man eftir mér sjálfur með stóra veislu,“ segir Ari Elías Arnalds. ’Margir sem fermasthalda að þeir full-orðnist bara út af ferm-ingunni, það held ég ekki.Mér virðast ekki allir sem fermast vera sérstaklega kristnir. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.