Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 34
34 | MORGUNBLAÐIÐ V orið er alltaf skemmti- legur og annasamur tími hjá okkur og reyndar hefst undirbúningurinn fyrir fermingarnar strax í febrúar,“ segir Sigrún Ægisdótt- ir, hárgreiðslumeistari og eigandi Hársögu á Hótel Sögu. „Þá byrj- um við fagfólkið að leggja línurnar í fermingarhártískunni, kynnum okkur hvað er nýtt og spennandi og tökum auðvitað alltaf mið af helstu tískustraumum erlendis.“ Hún segir nauðsynlegt fyrir fermingarbörnin að hafa vaðið fyr- ir neðan sig og bóka tíma í klipp- ingu og hárgreiðslu með góðum fyrirvara. „Á haustin, þegar krakkarnir eru búnir að velja fermingardaginn, panta þeir lang- oftast um leið tíma hjá okkur í fermingarklippingu og -greiðslu, enda veitir svo sannarlega ekki af.“ Meðvituð um tísku Þegar styttist í fermingarnar byrjar svo fjörið fyrir alvöru á Hársögu, að sögn Sigrúnar. „Hálf- um mánuði fyrir fermingu, eða um það bil, koma stelpurnar til okkar í prufugreiðslu. Það er nauðsyn- legt fyrir þær, bæði til að fá góð ráð og sjá útkomuna, og mik- ilvægt fyrir okkur starfsfólkið að prófa greiðslurnar því það flýtir mjög fyrir þegar stóri dagurinn rennur loks upp.“ Aðspurð segir hún ferming- arbörnin yfirleitt hafa mjög ákveðnar skoðanir á ferming- arklippingunni og -greiðslunni. „Mér finnst þau almennt vera opin og meðvituð um tísku og þau vita langoftast mjög vel hvað þau vilja, það á jafnt við um stráka og stelp- ur. Það er ákaflega gaman að vinna þetta með þeim, ræða málin, spá og spekúlera.“ Sítt eftir fermingu Einkennandi fyrir fermingar- hártískuna hjá stúlkunum í ár eru mjög grófir liðir, þykkari og stærri fléttur en áður og vafn- ingar, að sögn Sigrúnar. „Hártísk- an hjá stelpunum er að vissu leyti undir áhrifum frá hippatímabilinu. Hárskraut er vinsælt eins og áður; lifandi blóm, blómakransar og fín- gerðar perluspangir. Hjá strákun- um eru skýrar línur. Hárið er klippt snöggt í hliðum og ýmist greitt beint upp með lyftingu eða tekið vel til hliðar með geli.“ Hún segir fermingarstúlkurnar nær allar skarta síðu hári og þannig hafi það raunar verið lengi. „Það heyrir til undantekninga ef fermingarstelpa með sítt hár sest í stólinn og biður um að vera klippt stutt. Ég held þá að mér hafi mis- heyrst. Stelpurnar safna hári fram að fermingu, það er ekkert nýtt. Það sem hefur breyst er að hér áður fyrr létu þær síða hárið oft fjúka eftir ferminguna en núna halda þær miklu frekar síða hárinu, eða þannig hefur það að minnsta kosti verið síðustu árin.“ Sportlegt í sumar Spurð nánar út í vor- og sum- arhártískuna, bæði hjá konum og körlum, segir Sigrún línur og liti lofa góðu. „Öll vörumerki í hársnyrtigeiranum kynna sína sumarlínu í mars eða apríl og það er alltaf mikið tilhlökkunarefni að sjá það nýjasta frá þeim. Kvenhártískan í sumar er afar spennandi. Stutt hár og sportlegt verður mjög áberandi og nátt- úrulegt útlit allsráðandi. Margar stórstjörnur hafa ákveðið að fórna síðu lokkunum og skarta stuttu hári, þar á meðal söngkonan Beyoncé. Stjörnurnar hafa mikil áhrif í tískuheiminum og ef þær þora að láta klippa hárið stutt þá þora fleiri að stíga það stóra skref. Bob-línan verður áfram en nú er hárið styttra í hnakkann og síð- ara að framan og skipt í miðju; annars verða toppar líka áberandi í sumartískunni. Sea Salt-sprey er vinsælt í sumar, það er notað til að ýfa upp hárið og gefur sport- legt útlit og er nú fáanlegt í öllum helstu hártískumerkjum. Áhrif frá Mílanó Herratískan í sumar er sömu- leiðis fjölbreytt. Skarpar línur verða áberandi, þar sem hárið er rakað í hliðum og létt að ofan þannig að það lyftist vel upp. Jafnframt verður vinsælt að halda hárinu síðara í hliðum og leyfa því að lyftast vel upp frá enni með geli.“ Sigrún sækir að sögn hártísku- sýningar og námskeið hér heima og erlendis, bæði á vorin og haust- in. „Ég horfi fyrst og fremst til Mílanó þar sem helstu tískuhönn- uðir eru starfandi. Það er nauð- synlegt fyrir mig að fylgjast vel með því sem er að gerast úti í heimi, sækja spennandi námskeið, fá hugmyndir og útfæra minn eig- in stíl.“ Hármódel Herraskyrtur: SKYRTA Kjólar: Öxney Blóm: Blómagallerí Förðun: Eik Gísladóttir beggo@mbl.is Perlur og blóm Liðaðir lokkar, grófar flétt- ur, vafningar og fínlegt skraut einkenna hártísk- una hjá fermingar- stúlkunum en drengirnir kjósa langflestir stutt- klippt hár og stílhreint, að sögn Sigrúnar Ægisdóttur, hárgreiðslumeistara og eiganda Hársögu. Morgunblaðið/Golli Tískustraumar Sigrún Ægisdóttir, eigandi Hársögu, t.h., ásamt Eik Gísladóttur förðunarfræðingi og fermingarbörnum. ’Það heyrir til undantekningaef fermingarstelpa meðsítt hár sest í stólinn og biður um að vera klippt stutt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.