Morgunblaðið - 06.03.2015, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 06.03.2015, Qupperneq 40
F ermingarskreytingarnar í ár eru nokkuð frábrugðnar því sem verið hefur; naumhyggj- an er að víkja og rómantíkin að taka við þar sem náttúrulegt hrá- efni og fersk blóm fá notið sín,“ seg- ir María Másdóttir, eigandi Blóma- hönnunar í Listhúsinu í Laugardal. „Litirnir í skreytingum eru hreinir og bjartir, en jafnframt eru róm- antískir pastellitir áberandi.“ María segir lifandi blóm í aðal- hlutverki í fermingarskreytingum og þannig hafi þróunin raunar verið síð- ustu árin. „Íslensk blóm verða æ vinsælli og það er auðvitað afar ánægjulegt; rósir, silkivöndur og gerberur, þessi blóm henta til dæm- is mjög vel. Það er alltaf best að vinna með ferskt hráefni, íslensku blómin eru falleg og endingargóð og möguleikarnir í skreytingum óþrjót- andi.“ Ballettskórnir Aðspurð kveðst María alltaf hlakka til fermingarundirbúnings- ins, það sé skemmtilegur tími og ánægjulegt að hitta unga fólkið. „Það er svo gaman að útbúa ferm- ingarskreytingarnar. Langoftast koma unglingarnir með foreldrum sínum til okkar í blómabúðina og hafa ákveðnar skoðanir á því hvern- ig þeir vilja hafa hlutina. Það er ávallt mikil eftirvænting á meðal fermingarbarnanna, enda stór dagur og mikil gleðistund framundan hjá þeim. Allir eru einbeittir og glaðir og ákveðnir í að gera fermingardag- inn sérstakan og eftirminnilegan.“ Að sögn Maríu kjósa margir ung- lingar skreytingar með persónulegu yfirbragði, þar sem skírskotað er til bernskunnar eða jafnvel tóm- stundaiðkunar. „Þá spyrjum við fermingarbörnin út í áhugamálin og fáum til dæmis að nota myndir, fyrstu skóna, handboltann, ball- ettskóna eða annað úr þeirra eigu í skreytingarnar. Persónulegar ferm- ingarskreytingar vekja alltaf mikla lukku og þær eru oft hafðar á sér- borði, til dæmis með gestabókinni, þar sem þær fá að njóta sín.“ Blómaskúlptúrinn Hún segir að ýmsu að hyggja þeg- ar fermingarskreytingar eru annars vegar. „Umgjörðin skiptir höf- uðmáli. Ef fermingarveislan er hald- in í sal er mikilvægt fyrir okkur starfsfólk Blómahönnunar að skoða húsnæðið vel. Sama á við um veislur sem haldnar eru í heimahúsi, þá kíkjum við í heimsókn til að fá góða tilfinningu fyrir því hvað passar best. Við val á blómategundum tök- um við svo mið af aðstæðum og velj- um vasa og annað undirlag eftir því hvar skreytingin verður staðsett. Við lánum blómavasa og undirlag með öllum okkar skreytingum og svo er því bara skilað þegar blómin visna. Það er mjög gaman að hanna skreytingar inn í ákveðið rými og við eigum fjölbreytt úrval af vösum, sem passa fyrir mismunandi staðsetn- ingar og ólíkar blómategundir. Þó að við notum íslensk blóm eins og kostur er pöntum við líka inn blóm frá Hollandi og getum nánast útvegað hvaða blómategund sem er, í takt við óskir viðskiptavina. Lif- andi blóm eru eins og áður sagði langvinsælust en þó er alltaf eitt- hvað um þurrkaðar ferming- arskreytingar, í bland við hitt. Í þurrkuðu skreytingarnar veljum við til dæmis mosa, bambus, strá og greinar. Það er gaman að nota þetta efni með lifandi blómum, skreyting- arnar tengjast þá svolítið villtri náttúrunni og eru jafnvel eins og skúlptúr,“ segir María, sem er menntuð bæði í myndlist og blóma- skreytingum. Hárskrautið Lifandi blóm eru ekki aðeins vin- sæl á fermingarveisluborðið, þau eru mikilvægur partur af hárskrauti fermingarstúlkna og ennfremur oft notuð í pakkaskreytingar, að sögn Maríu. „Lifandi blóm í hárið eru alltaf í tísku, það ræðast yfirleitt af hárlengd, klæðnaði og auðvitað smekk hvort fermingarstelpurnar velja að fara þá leið. Við útbúum alls kyns hárskraut úr lifandi blómum. Sumar stelpur vilja náttúrulegt útlit og velja lítil, látlaus blóm, til dæmis grófa statiku eða brúðarslör, á með- an aðrar kjósa rómantískara yf- irbragð og meira áberandi hár- skraut, svo sem silkivönd eða orkídeur. Miklu máli skiptir að velja réttu blómin í hárið því þau þola misvel ís- lenskt veðurfar, rigningu, rok og jafnvel frost. Við vinnum allt hár- skraut í samvinnu við hárgreiðslu- stofur fermingarstúlknanna, enda fer það alveg eftir greiðslunni hverju sinni hvernig best er að festa blómin í hárið. Pakkarnir Svo pökkum við mikið inn ferm- ingargjöfum, það er auðvitað enn skemmtilegra að gefa pakka sem er fallega skreyttur og mér finnst allt- af gaman að fá það verkefni. Við notum til dæmis fersk blóm, þurrk- uð strá, víra og fallega borða utan um gjafirnar. Allt sem snýr að fermingunni er ánægjulegt og í mínum huga eru það forréttindi að fá að taka þátt í þessum stóra og mikilvæga degi með fermingarbörnunum og fjöl- skyldum þeirra. Þannig er ég í hvert sinn þakklát fyrir að fá að leggja mitt af mörkum til þess að ferming- ardagurinn verði ógleymanlegur, þar sem ilmandi, yndisleg blóm gegna lykilhlutverki.“ beggo@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Séróskir „Það er svo gaman að útbúa fermingarskreytingarnar; lang- oftast koma unglingarnir með foreldrum sínum til okkar í blómabúðina og hafa ákveðnar skoðanir á því hvernig þeir vilja hafa hlutina,“ segir María Másdóttir, eigandi Blómahönnunar. Ilmandi og yndisleg Naumhyggjan er á und- anhaldi í fermingarskreyt- ingum og rómantíkin að ryðja sér til rúms þar sem lifandi blóm eru í aðalhlutverki, segir María Másdóttir, eigandi Blómahönnunar í Listhúsinu í Laugardal. ’Íslensk blóm verðaæ vinsælli og það erafar ánægjulegt 40 | MORGUNBLAÐIÐ • ABS hörð skel • 360° hjólabúnaður • Passa ofan í hvora aðra • Vandaðar töskur Verslanir ! Nýtískulegar og vandaðar töskurTilvaldar fermingargjafir Blaze Top quality ferðatöskusett, ljósblátt eða dökkbleikt þrjár í setti. www.danco.is Heildsöludreifing
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.