Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ | 53
ERFERMINGÁDÖFINNI?
Með Póstinum getur þú gert undirbúninginn einfaldari,
skipulagðari og skemmtilegri.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-0
1
9
5
Póstlistinnminnheldur utan um heimilisföng boðsgestanna á þægilegan hátt. Hann
er á postur.is og því alltaf hægt að breyta honum og bæta við. Einnig er hægt að
fá útprentaða límmiða til að líma á umslögin.
Kortinmín eru einföld og þægileg leið til þess að gera persónuleg og flott boðskort.
Frímerkinmín eru svo punkturinn yfir i-ið. Sérhönnuð frímerki fyrir einstakan viðburð.
Skeytinmínmeð ljósmynd eru persónuleg og skemmtileg leið til að senda
fermingarbarninu hamingjuóskir.
SKEYT
I
Elsku Þ
orsteinn
okkar
Við sen
dum þé
r innileg
ar ham
ingjuós
kirmeð
ferming
ardagin
n.
Megi þé
r farnas
t vel í fr
amtíðin
ni.
Dóri og
Lauga
Ferming
Þér/ykk
ur er bo
ðið
í fermin
guna m
ína þan
n 5. ma
í 2015.
Athöf-
nin fer
fram í
Digran
eskirkj
u
klukka
n 11.00
. Að he
nni lok
inni
verður
boðið ti
l veislu
í safna
ðarheim
ilinu.
Hlakka
til að s
já ykku
r öll.
Kíktu inn á postur.is/fermingar og skoðaðu hvað hentar þér
Við fermingaraldur eru ungmenni
tilbúin að axla meiri ábyrgð.
Það er vel skiljanlegt að for-
eldrar treysti sér ekki til að verða
við ítrekuðum óskum um heim-
ilishund meðan börnin eru ung,
enda krakkarnir varla færir um að
hjálpa til við dýrahaldið. En nú er
kannski orðið óhætt að bæta við
fjórfættum heimilismeðlimi með
dillandi skott og blautt nef.
Hví ekki að gefa hund í ferming-
argjöf?
Að hafa hund á heimilinu er af-
skapalega gaman og gerir vistar-
verurnar óneitanlega hlýlegri að
eiga þar loðinn vin sem sníkir klór
á bak við eyrun og þykir gaman að
hlaupa á eftir bolta.
En rannsóknir hafa líka sýnt
fram á að hundar geta haft mjög
jákvæð áhrif á andlega og líkam-
lega heilsu eigandans. Í tilviki
barna og unglinga hefur verið sýnt
fram á að hundurinn bætir and-
lega líðan og eflir sjálfstraustið.
Enginn er einmana ef hann á
hund, og stór og mjúk eyrun eru
meira en tilbúin að hlusta á ung-
linginn kvarta yfir raunum tán-
ingsáranna, hvort sem krakkarnir
í skólanum eru leiðinlegir eða illa
gengur að fá sæta stelpu eða strák
til að sýna áhuga.
Agi og regla
Svo kallar hundurinn á að það sé
ögn meiri regla á heimilishaldinu,
enda þarf voffi að komast út til að
pissa, ryksuga þarf hárin reglu-
lega og ekki sniðugt að hafa mat-
arleifar eða smáhluti í reiðileysi
hér og þar ef hundurinn getur náð
til þeirra.
Þessi agi og regla smitar vafalít-
ið út frá sér til annarra þátta dag-
legs lífs, og hver veit nema her-
bergið verði allt í einu snyrtilegt,
rúmið uppábúið og heimavinnan
leyst af mikilli festu.
Best af öllu er svo kannski að
hundahaldið kallar á reglulega
göngutúra. Með hund á heimilinu
má toga unglinginn frá tölvuskján-
um, svo hann storknar ekki alveg
úr sólar- og hreyfingarleysi. Gang-
an kemur blóðinu af stað og sólin
gefur frísklegt útlit.
Sniðugast er að finna heim-
ilslausan hund, t.d. hjá Dýrahjálp,
frekar en að eltast við sæta litla
hvolpa. Fullorðnu hundarnir eru
búnir að ganga í gegnum mest
krefjandi æviskeiðið, venja sig af
helstu ósiðunum og búnir að
þroska persónuleikann.
Nóg er af hundum í heimilisleit,
af öllum stærðum og gerðum, og
hægt að finna einmitt rétta vininn
sem kallar á hreyfingu og félags-
skap í samræmi við þarfir nýja
eigandans.
ai@mbl.is
Er ekki
kominn
tími á
hund?
Morgunblaðið/Ómar
Kríli Smáhundar kalla ekki á svo mikið umstang. Þrír sætir.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Vinur Ómótstæðilegt augnaráð.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Uppeldi Að ættleiða fullorðinn hund hefur ótalmarga kosti.