Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ | 55
Flott föt fyrir
öll tækifæri
opið til kl. 21 í kvöld
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Þ
að fylgir því að verða unglingur að þurfa að læra réttu
handtökiní eldhúsinu. Tíminn líður hratt og fyrr en var-
ið er litla barnið flogið úr hreiðrinu, og þarf þá að geta
bakað sínar eigin kökur, og eldað sín eigin lambalæri.
Ekki gengur að hringja í mömmu eða pabba í hvert skipti
sem þarf að rúlla sushi eða kreista sítrónu, og þaðan af síður er
í lagi að ungmennið stelist í eldhúsáhaldasafnið hjá foreldr-
unum þegar þarf að matreiða.
Þess vegna er gráupplagt að nota ferminguna til að gefa
fyrstu eldhúsáhöldin. Restin getur svo komið þegar brúð-
kaupsdagurinn rennur upp.
Og hvað þarf svo fermingarbarnið helst að eignast?
ai@mbl.is
Safaríkir borgarar
Það má t.d. byrja á sterkbyggðri
hamborgarapressu. Þetta þarfa
áhald er ekki til í öllum eldhúsum og
unglinga eiga víst að þekkja fátt
betra en hamborgara.
Nú getur unglingurinn dundað
sér við alls kyns tilraunir með nauta-
hakk, krydd og annað gotterí til að
blanda hinn fullkomna hamborgara.
Hamborgarapressan kostar 4.200
á Kokka.is
Byrjað að safna í eldhúsið
Fínar sneiðar
Að finna góðan ostahníf
getur verið furðusnúið.
Osturinn er samt svo mik-
ilvægur þáttur í mataræði
Íslendinga að þetta tæki
má ekki vanta, og kemur
sér vel þegar flutt er að
heiman. Þessi ostaskeri
hér til hliðar, frá þýska
framleiðandanum
WMF, er byggður til
að endast, og er líka
ekki fyrirferðarmikill
svo hann passar vel
ofan í ferðatöskuna
þegar haldið er af
stað út í heim í
nám.
WMF Profi Plus
ostaskerinn kost-
ar 92 pund á
Amazon.co.uk.
Ráðist á korkinn
Vandaður tappatogari endist lengi og nýt-
ist vel. Ganga flestir unglingar í gegnum
tímabil þar sem þeir læra að hafa áfengi um
hönd, og kemur tappatogari og flöskuopnari
þá í góðar þarfir.
Smám saman víkur bjórinn væntanlega
fyrir víninu og verður þá að ná korknum út
hratt og vel.
Jafnast þá fátt á við Baltaz tappatogarann
sem kostar 15.759 kr hjá Kokka.is
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift