Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 58
58 | MORGUNBLAÐIÐ Fermingargjafir fyrir stráka og stelpur Mikið úrval af gjafavöru fyrir dömur og herra · Töskur · Hanskar · Seðlaveski · Ferðatöskur · Tölvutöskur · Belti · Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Léttar ferðatöskur Kortaveski úr leðri frá kr. 4.800. Nafngylling kr. 1100. Tru virtu ál kortahulstur. Kr. 7200 Kemur í veg fyrir skönnun á kortaupplýsingum. Skartgripaskrín- Lífstíðareign Sjá ítarlegar upplýsingar á www.drangey.is Í dag er hann stór og stæðileg- ur, eldklár lögfræðingur sem kallar ekki allt ömmu sína, en sú var tíð að Gísli Tryggvason var feiminn fermingardrengur, með minnimáttarkennd út af eyr- unum og tönnunum. „Fermingarmyndin sýnir vel þessar fallegu tennur. Faðir minn vildi endilega að ég brosti en sjálf- um fannst mér þessi tanngarður ekki eiga neitt erindi við almenn- ing. Hann sagði mér að brosa og ég hlýddi,“ segir Gísli. Hann man ekki nema óljóst eftir fermingardeginum, en er samt með dagsetninguna á hreinu. At- höfnin fór fram á pálmasunnudag, 27. mars 1983, í Akureyrarkirkju og var það sr. Þórhallur Höskulds- son heitinn sem fermdi. Gísli minnist þessa aldurs sem spenn- andi en líka undarlegs tímabils, enda byrjun unglingsáranna tími þar sem einstaklingurinn tekur út mikinn þroska, byrjar að mótast líkamlega, andlega og trúarlega, öðlast þroskaðri sjálfsmynd, byrjar að temja sér bæði góða ávana og ósiði og leggja grunninn að fram- tíðarnámi og störfum, að ógleymd- um kynferðislega þroskanum. Glæstur fjölmiðlaferill Veðurfarið og veislan eru löngu gleymd, en Gísli man hins vegar vel að hann fékk forláta Olympus- myndavél í fermingargjöf. „Ég hafði farið á ljósmyndanámskeið stuttu áður og fengið mikinn áhuga á ljósmyndun. Eftir ferm- inguna varð þetta mitt aðaláhuga- mál og síðar að atvinnu. Ég byrj- aði á að taka myndir fyrir skólablöðin og var svo 15-16 ára byrjaður að vinna á aðal-bæj- arblaðinu, Degi sáluga, og varð þar líka blaðamaður langt fram á háskólaár.“ Eflaust hefur myndavélin þannig átt mikinn þátt í að þroska Gísla sem einstakling og í gegnum störf sín á blaðinu komst hann í færi við fólk sem hann annars hefði ekki kynnst. Minnist hann t.d. hversu gaman honum þótti sem unglingi að mynda Sverri Hermannsson sem þá var ráð- herra. „Ég á af honum ansi góða mynd sem líklega er tekin 1985. Ljósmynd- arastarfinu fylgdi líka að ég þurfti að yfirstíga eðlislæga feimni mína og trana mér fram til að geta tekið betri myndir á opinberum sam- komum. Það kom sér svo vel síðar vegna þeirra starfa sem ég hef gegnt þótt ekki hafi ég orðið ópóli- tískur atvinnuljósmyndari eins og þá var draumurinn.“ Sannkristinn unglingur Gísli segist hafa tekið ferm- inguna mjög alvarlega og verið trúaður ungur maður. Var hann raunar svo samviskusamur og prúður, kristinn ungur drengur að hann sussaði á yngri bræður sína þegar þeir blótuðu. Þar var Björg- vin Jörgensson grunnskólakennari mikill áhrifavaldur en hann kenndi Gísla síðustu þrjú ár barnaskólans og ræddi oft um trúmál við nem- endurna. Með aldrinum minnkaði trúar- hitinn smám saman og segist Gísli hafa sagt sig úr þjóðkirkjunni þeg- ar biskupsmálið svokallaða skók samfélagið. „En ég skráði mig svo aftur í kirkjuna, hvort það var þegar ég kvæntist eða lét skíra börnin, og hef reynt að miðla kristilegu innræti til barnanna minna.“ Stressaður en snyrtilegur Fermingarmyndir þykja stund- um vandræðalegar og tískufatn- aðurinn sem fermingarbörnin klæðast á myndunum eldist misvel. Gísli virðist hafa sloppið nokkuð vel, en fyrir valinu varð einfaldur klæðnaður; svart vesti, hvít skyrta og mjótt svart bindi. Honum þótti vænt um að presturinn kom í ferm- ingarveisluna síðar um daginn og segir að séra Þórhallur hafi lagt sig fram um að koma við í ferming- arboðum og gefa ferm- ingarbörn- unum sálmabæk- ur. „En hann var greinilega ekki heill heilsu þenn- an daginn og ég vildi spyrja hann hvort nokkuð amaði að. Ég virðist hafa verið stressaður og átt erf- itt með að gera upp við mig að spyrja hvort prest- urinn væri óhress eða ekki frískur og úr varð að ég spurði hvort hann væri nokkuð ófrískur og skamm- aðist mín óskaplega fyrir mis- mælið.“ Virkari í þetta sinn Búið er að ferma elsta barn Gísla og það næstyngsta verður fermt í vor. Gísli komst létt frá síðustu fermingarveislu, bakaði kanilsnúða og leysti vel af hendi „en var þá líklega upptekinn af eigin vandamálum og ekki mjög virkur þátttakandi í þessum degi. Fæ ég vonandi að bæta úr því núna.“ ai@mbl.is Á fermingardaginn eignaðist Gísli Tryggvason forláta myndavél og það leiddi til þess að hann var á endanum farinn að taka myndir fyrir bæjarblaðið. Morgunblaðið/Kristinn Hæfileikar „Ég hafði farið á ljósmyndanámskeið stuttu áður og fengið mikinn áhuga á ljósmyndun. Eftir ferminguna varð þetta mitt aðaláhugamál og síðar að atvinnu,“ segir Gísli. „Hann sagði mér að brosa og ég hlýddi“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.