Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ | 67
Þetta er önnur útgáfa af fylltu brauði
en fyllingin er aðeins meira „grand“
en í mínum fyrri uppástungum. Þetta
brauð er ofureinfalt að baka þar sem
það byggist bara á einföldum hvítum
brauðhleif sem er svo fylltur.
Það er gaman að bera þetta brauð
fram og sérstaklega spennandi að
skera fyrstu sneiðina og sjá hvernig
osturinn rennur út eins og skriða fram
á brettið. Það er í góðu lagi að það ger-
ist. Þá smyr maður bara ostinum á
hinar sneiðarnar – sem líka eru gegn-
blautar af osti.
Það er gott að bera þetta brauð
fram með hvers lags súpu.
Fyrir eitt brauð
500 g hveiti,
300 ml vatn,
3 msk. jómfrúarolía,
12 g þurrger,
1 msk. sykur,
2 tsk. salt,
3-4 msk. hunangssinnep,
10 basillauf,
150 g parmaskinka,
500 g hvítmygluostur að eigin vali
1. Vekið gerið í ylvolgu (um það bil
38°C) vatni með sykrinum.
2. Setjið hveiti í skál og blandið salti
saman við. Hellið jómfrúarolíu út í
hveitið.
3. Hellið svo gervatninu yfir og
hnoðið vandlega saman í fimm til tíu
mínútur í hrærivél.
4. Látið hefast í klukkustund.
5. Sláið loftið úr deiginu og fletjið út.
6. Setjið fyrri umferð innihaldsins á
deigið. Smyrjið fyrst hluta af hun-
angssinnepinu á botninn, rífið svo
helminginn af skinkunni yfir, því
næst basillauf og loks ostinn.
7. Smyrjið meira af hunangs-
sinnepinu á ostinn, dreifið basil-
laufum yfir og að lokum öðru lagi af
skinku.
8. Lokið deiginu vandlega, snúið
því við og pakkið undir ostinn þannig
að þyngdin af fyllingunni þétti sam-
skeytin.
Fyllt brauð með hunangssinnepi,
parmaskinku og heilum
hvítmygluosti
3. Skolið og þerrið klettasalatið og
veltið því svo upp úr nokkrum drop-
um af jómfrúarolíu. Vöðlið klettasal-
atinu saman og tyllið ofan á snittuna.
4. Notið svo sólþurrkaða tómatinn
sem lóð ofan á salatið. Festið með
tannstöngli.
Og svo ein að lokum með
dásamlegri laxamús
Þetta er afar fljótleg laxamús til
að „henda í“ þegar von er á gestum.
Ég lærði að gera hana af systur út-
gefanda míns sem heimsótti Svíþjóð
undir vorið. Músin var svo ljúffeng
að ég varð að stela uppskriftinni.
Auðvitað er það samt svo að þegar
uppskrift fer á milli manna tekur
hún einhverjum breytingum. Ég jók
aðeins við hvítlauksmagnið og
smjörið en að öðru leyti er þetta upp-
skriftin hennar.
Það er líka hægt að breyta þessari
uppskrift á þann hátt að hafa soðinn
lax í staðinn fyrir reyktan vilji maður
mýkja reykbragðið. Eða gera þver-
öfugt og magna bragðið með því að
nota taðreyktan lax – slíkt væri án
efa kynngimagnað.
Eins og ég nefndi er þetta fljótlegt
– það er hægt að ljúka við að útbúa
þetta á sama tíma og verið er að
steikja og kæla brauðið!
Fyrir 30 snittur
300 g reyktur lax,
3 litlir vorlaukar,
2 hvítlauksrif,
2 msk. mjúkt smjör,
4 msk. þeyttur rjómi,
safi úr hálfri sítrónu,
salt og pipar,
graslaukur og vorlaukstoppar
til skreytingar,
1 baguetta,
hvítlauksolía og smjör til steikingar
1. Skerið niður laxinn, setjið í mat-
vinnsluvél og tætið vel. Færið í skál.
2. Setjið vorlauk og hvítlauk sam-
an í matvinnsluvélina og maukið.
Blandið svo við laxinn.
3. Hrærið smjörinu saman við lax-
inn, hálfþeytið rjómann og blandið
honum við. Saltið og piprið.
4. Smakkið til með sítrónusafa.
5. Skerið baguettuna í þunnar
sneiðar og steikið á heitri pönnu upp
úr hvítlauksolíu og smjöri þangað til
þær eru fallega gullinbrúnar.
6. Smyrjið laxamúsinni ofan á
brauðið og skreytið með vorlauks-
toppum og graslauk.