Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 71

Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ | 71 Anna Stefánsdóttir sér um saumanámskeiðin í Föndru og getur leiðbeint þeim sem ætla að kaupa kjólaefni en mun meira er heima- saumað á fermingarstúlkurnar, mæður þeirra og ömmur, en ferm- ingardrengina. „Við erum með öll helstu sníðablöðin og svo dönsku Onion-sniðin,“ en silkisatínið og blúndan sem Föndra selur hentar sérstaklega vel fyrir þau. Anna segir ljósa blúndukjóla, vanalega off- white og pastelliti, vinsælasta í heimasaumuðum ferm- ingarkjólum þetta árið. Tími er oft af skorn- um skammti í ferm- ingarundirbún- ingnum en þær Anna og Björg segja það ekki þurfa að taka óþarflega langan tíma að gera allt sjálf(ur). „Það er reyndar erfitt að segja, eftir því hvað á að gera og fyrir hve stóra veislu, en það tekur vanalega t.d. eina kvöld- stund að gera boðskortin. Saumaskapurinn getur tekið mis- jafnan tíma eftir því hvað er verið að sauma en við skulum gera ráð fyrir svona tveimur kvöldstundum í ein- faldan kjól.“ Þessar kvöldstundir geta náttúrlega nýst betur ef fjöl- skyldan hjálpast að og skemmtir sér við hagnýtt föndur frekar en sjón- varpsgláp og þannig er allt í senn hægt að spara kostnað, eyða tíma saman og búa til góðar minningar við fermingarundirbúninginn, og af- raksturinn verður einstakar og per- sónulegar skreytingar og fatnaður eftir höfði hvers og eins. Þær segja þó að það sé meira um að stúlkur taki þátt í að föndra eða sauma fyrir ferminguna sína en strákarnir hafi oft ákveðnar skoð- anir á hvernig eigi að skreyta fyrir veisluna og vilji vera með í ráðum. Algengt sé að fjölskyldur komi sam- an í verslunina til að skoða og velja skreytiefni. Skart, hár- og skóskraut Þótt hægt sé að kaupa tilbúnar skreyttar hárspangir og spennur segir Björg mjög auðvelt að búa til sitt eigið hárskraut með því að festa blóm og perlur á spangir og spennur sem Föndra hefur til sölu. Þá sé mikið um að fólk búi til skartgripi fyrir ferminguna, annaðhvort fyrir fermingarbörnin til að bera við at- höfnina eða til að gefa sem gjöf. „Það er hægt að búa til mjög fallega skartgripi, bæði úr stein- um og perlum, og oft er festur málmkross við. Einnig er vin- sælt að mála tré- perlur og búa til hálsfestar úr þeim.“ Og þá er enn fremur orðið vin- sælt að skreyta fermingarskóna sér- staklega og tryggja þannig að eng- inn annar klæðist eins skóm, svona fyrir þá sem vilja alls ekki fylgja tískustraumum heldur skapa og sýna sinn eigin stíl á fermingardag- inn. „Já, við seljum sérstaka leð- urmálningu sem hægt er að nota á skó, og svo er mikið verið að líma glimmer á skóna til að breyta þeim aðeins.“ Það er því ljóst að með góðu ímyndunarafli geta fermingarbarnið og aðstandendur þess útbúið al- gjörlega einstakan dag með per- sónulegum blæ og dýrmætum minn- ingum og minjagripum. Og sennilega skemmt sér stórvel í leið- inni við undirbúninginn, jafnvel upp- götvað dulda listræna hæfileika! ingibjorgrosa@gmail.com Úrval Þeir sem vilja föndra sjálfir við boðskort og skreytingar geta fundið ýmislegt skemmtilegt í Föndru. Eftirminnilegt Með góðu ímyndunarafli geta fermingarbarnið og aðstandendur þess útbúið einstakan dag með persónulegum blæ og dýrmætum minningum og minjagripum. fOrEldRaR mUNið 20% afsláttur gegn framvísun fermingarbréfsins 99999 Fallegar fermingarvörur oPið Til 21 ölL kVölD

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.