Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 77

Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ | 77 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Fallegur fatnaður fyrir fermingarnar Str. 36-56 Slaufur hafa rutt sér til rúms svo um munar síðustu árin og því ekki seinna vænna að læra að hnýta eina slíka. Vitaskuld er það valkostur að krækja eina forhnýtta um hálsinn en það fást alltaf nokkur séntilmennskustig fyrir að hnýta hana sjálfur. Margir eru hikandi við að spreyta sig á að hnýta slaufu en það er alger óþarfi að skelfast þetta virðulega hálstau því í grunninn er slaufa hnýtt með nákvæmlega sama hætti og skór eru reimaðir. Og lætur einhver ungur herramaður með sjálfsvirðingu – í fullorðinna manna tölu – slíka smámuni vaxa sér í augum? Það held ég nú varla. 4 Þá er að sækja efri endann, sem lá áöxlinni, og leggja hann yfir neðri end- ann sem lagður var saman í lykkju. 3 Með efri endann uppi á öxl, leggiðþann neðri saman, rétt eins og um skóreimar væri að ræða. 2 Herðið lauslega og leggið efri endannúr vafningnum upp á öxl. Hann er þá ekki að þvælast fyrir meðan lykkjan er undirbúin. 1 Leggið slaufuendana í kross, rétt einsog gert er við skóreimar í upphafi þess að skór eru hnýttir. 8 Lagið slaufuna til, jafnið lengd end-anna, rétt eins og þegar lykkjur og endar á skóreimum eru lagaðar til. Þetta er nákvæmlega sami hnúturinn. 7 Veiðið endann með fingrunum og tog-ið endann varlega í gegn. Nú er þetta samasem komið. 6 Snúið efri endanum í sveig eða lykkju,eins og gert var við neðra endann á mynd 3, og smeygið þeirri lykkju í gatið sem sást á mynd 5 5 Togið efri endann sæmilega fast niðuryfir miðjuna á þeim neðri. Togið um leið helmingana á neðri endanum fram. Þá á að sjást gat sem er lykillinn að slauf- unni. Hnýtt slaufa 9 Fullkomið! Gleymið ekki að sjarmiþess að vera með hnýtta slaufu felst ekki síst í því að hún er aldrei 100% sam- hverf um miðjuna, ólíkt kræktu tilbúnu slaufunum. Það ljær henni karakter og það er herranum til hróss að skarta hnýttri slaufu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.