Bókasafnið - 01.09.2009, Side 44
44
Bækur og lÍf
Karel Capek var einn af
öndvegis rithöfundum Tékka.
Tveimur árum fyrir dauða sinn
1936 skrifaði hann bókina
Salamöndrustríðið (Inwazja
jaszezurow), mikla ólíkindasögu
og ádeilurit í anda Wells,
Orwells og Vonneguts.
Bókin kom út hjá Máli og
menningu í íslenskri þýðingu
Jóhannesar úr Kötlum árið
1946 og rataði löngu síðar fyrir
mín augu og festist í minni eins
og sumar bækur gera.
Fyrir stuttu rakst ég á aðra góða bók, sú er eftir pólska
Nóbelsverðlaunahöfundinn og ljóðskáldið Wislöwu
Szymborsku. Heitir hún Brevidläsning í sænskri þýðingu
(Anders Bodegård, 1997) og er samsafn smágreina eða
bókagagnrýni um aðskiljanlegar bækur frá ýmsum
tímum. Þessar bækur gefa Szymborsku tilefni til ótrúlega
skemmtilegra vangaveltna og hugarfl ugs þó sumar þeirra
séu greinilega hrútleiðinlegar. Svona drjúpa bækur af bókum,
kannski ekki níundu hverja nótt en vonandi jafnt og þétt um
ókomna tíð.
Í Brevidläsning er að fi nna kafl a um Salamöndrustríðið
sem fylgir hér í lauslegri þýðingu minni. GH
Hvað meinarðu - of seint?
Hin fræga yfi rþyrmandi bók Capeks Salamöndrustríðið kom
út árið1936 og var skrifuð sem varnarorð mót fasisma Hitlers
sem óx þá mjög fi skur um hrygg.
Það væri hægur vandi að líta svo á að bókin sé klassískt
verk sem hafi skilað hlutverki sínu og ætti skilið að hvíla í ró
á sinni hillu með öðrum ólesnum bókum. Stílfegurðin ein og
óbeislað ímyndunarafl höfundar væri að vísu ærið tilefni til að
taka hana fram aftur. Þannig las ég bókina sjálf fyrir áratugum
síðan mér til ómældrar ánægju. Þegar ég les hana aftur nú
rennur mér kallt vatn milli skinns og hörunds. Því bókin er
afar langt frá því að vera úrelt.
Um hvað fj allar hún?
Í inngangi bókarinnar er skýrt frá því að í vík á eyju nokkurri
hafa menn uppgötvað áður óþekkta skriðdýrategund. Fyrir
tilviljun átta menn sig á að þessi góðlátlegu dýr eru í hæsta
máta námfús, þau þrífast vel á öllum breiddargráðum og sé
þeim útvegaður nægur matur og nauðsynleg verkfæri er
hægt að láta þau framkvæma fj ölmörg störf í þágu mann-
anna. Í lokakafl a bókarinnar er þar komið sögu að skriðdýrin
hafa aukið svo mátt sinn og meginn að þau hafa fyrir löngu
yfi rgefi ð strendurnar og vella nú yfi r lönd og álfur.
Miðhluta bókarinnar, milli inngangs sem gefur ekkert
í skyn um að hætta sé á ferðum og svo niðurlagsins þegar
allt er um seinan, fyllir Capek hlálegum upplýsingum af ýmsu
tagi sem gera bókina að leiftrandi í paródíu. Þar er að fi nna
fréttatilkynningar, skýrslur sérfræðinga og staðtölulegar
upplýsingar. Viðtöl, tillögur og ritdeilur. Áköll, yfi rlýsingar
og niðurstöður. Efnt er til sívaxandi fj ölda ráðstefna og
umræðuhópa á ýmsum stigum stjórnsýslunnar. Alls staðar
er fj allað um skriðdýrin og allt sem þau varðar, spjótum er
ýmist beint að þeim eða borið af þeim blak. Og það verður
smám saman æ ljósara að ógerlegt er að komast að nokkurri
sameiginlegri niðurstöðu. Upp skjóta kollinum varkárir
generálar sem vilja endilega gera salamöndrunum allt til
geðs. Um leið vex fj öldi þeirra sem er fj andans sama og eru
búnir að fá sig fullsadda af öllu tali um þessi andskotans
skriðdýr. Og auðvitað eru þeir einnig mættir á sviðið sem séð
höfðu vandamálin fyrir, sárbænt og varað við. En hvernig í
ósköpunum á að vera hægt að greina á milli þeirra sem mála
skrattann á vegginn og spámannanna sannspáu?
Heimurinn er barmafullur af óbeisluðum kröftum – og
ógerlegt að vita fyrirfram hverjir þeirra mega að skaðlausu
vakna og hverja má undir engum kringumstæðum vekja til
lífs. Milli þeirrar stundar sem of fráleitt og fl jótt væri að gefa
hættumerki og hinnar þegar allt er orðið um seinan, hlýtur
að gefast augnablik, rétta augnablikið til að afstýra ógæf unni.
Í óðagotinu líður það oftast hjá án þess að því sé gaumur
gefi nn.Og hvaða augnablik er þetta svosem? Hvernig má
greina það og grípa? Svo má spyrja og vísast er þetta ein
erfi ðasta þraut sem mannkynið glímir við.
Tilkynnist kæri herra Karel, háæruverði handanlífsskuggi,
að enn höfum við ekkert svar.
Tvær bækur
Guðrún Hannesdóttir