Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2015
* Landvernd fari í umhverfismat, til að komaí veg fyrir fyrirsjáanleg neikvæð áhrif þessabatterís á náttúruna.
Jóhannes Sigurjónsson í leiðara Skarps á Húsavík.
Landið og miðin
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
sbs@mbl.is
UM ALLT LAND
DJÚPIVOGUR
Börn á leikskólanum Bjarkatúni kættust mjög
í vikunni þegar komið var með hnísu sem þau
reynda
hei
en
var sk
hátt. Hún slefaði að þeirra sögn,
og mjúk viðkomu. Hún var með
kíkt í munninn á henni og þar var hú
þó að koma við þær. Börnunum fannst þett
áhugasöm um hnísuna. Við þökkum Jóni Ingva
sýna okkur hnísuna,“ segir á heimasíðunni.
OLUNGARVÍK
án umsóknir bárust um starf markaðs og kynningarfulltrúa-
óBolungarvíkurkaupstaðar. Bæjarráð f r í vikunni yfir umsóknirnar
og eru þær til frekari úrvinnslu hjá Capacent, að sögn bb.is.
yf markaðs- og k nningarfulltrúa Bolungarvíkurkaupstaðarr
fst góðrar færni á ýmsum sviðum.
Um er að ræða framkvæm störfum sem tengjast kynningar- og
útgáfumálum fyrir Bolunga ve mf iðlum. Í starfinu felst einnig ritstjórn á
vef Bolungarvíkurkaupstað g g j ý ga ten dum vef um, mis sérverkefni, samantektir o
skýrslugerð. Markaðs- og ngarfulltrúi er einnig ritari Menningar- og ferðamálaráðs,“ segir bb.is.
EYJAFJARÐARSV
GistiheimiliðYtra-Laugala rðardóttur, hefur hlotið verðskuldaða viðurkenningu innan greinarinnar,
segir á heimasíðu Eyjafjarð viðurkenningu frá Ferðaþjónustu bænda þar semYtra-Laugaland var valið einn af
semþremur framúrskarandi fe árið 2013. Einnig fékk gistiheimilið einkunnina 9,1 á vefsíðunni www.booking.com
byggist á umsögnum gesta uðu í gegnum vefsíðuna. Vilborg hóf undirbúning reksturs gistiheimilisins þegar hún
á eftirlaun sem hjúkrunarf og tók á móti fyrstu gestunum árið 2009, þá 72 ára. Hún hefur séð um allt sjálf s
býlismaður hennarsnýr að rekstrinum, svo se bókanir. Vilborg og sam
áttu hefur alltaf„taka á móti gestum af mö litla tungumálakunn
erlenda ferðamenn. Stöðu Í fyrra var nánast fullbókað frá m
stefnir í það sama í ár. Hv olm num, heimaba
morgunmatnum eða hlýle
Þeir fjármunir sem í dag eruveittir til uppbyggingar áinnviðum samfélagsins í
tengslum við ferðaþjónustu eru
ekki í neinu samræmi við hverju
greinin skilar,“ segir Ívar Ingi-
marsson á Egilsstöðum. Eftir
langan feril sem knattspyrnumað-
ur í Englandi snéri hann aftur á
heimaslóðir sínar eystra. Hefur
þar, eins og Morgunblaðið hefur
áður sagt frá, haslað sér völl í
ferðaþjónustu.
Skógurinn er auðlind
Ívar og Hrefna Dagbjört Arnar-
dóttir, eiginkona hans, starfrækja
nú tvö gistiheimili, það er á Tjarn-
arbraut 3 og 7 á Egilsstöðum.
Eiga jafnframt jörðina Óseyri í
Stöðvarfirði. Sinna þar skógrækt,
ásamt því að nýta húsakost að
hluta til í ferðaþjónustu. Hafa á
undanförnum árum gróðursett um
650 þúsund plöntur á jörðinni.
„Í tengslum við skógarbúskap
opnast skemmtileg tækifæri í
þjónustu við ferðafólk og heima-
menn. Skógurinn er auðlind og
það er miður hve framlög til skóg-
ræktar hafa verið skorin niður á
undanförnum árum. Í ár gróður-
setjum við ekki nema um 15 þús-
und plöntur, miðað við að 100 þús-
und plöntur þegar mest var á
árunum fyrir hrun,“ segir Ívar.
Aðalfundur Samtaka ferðaþjón-
ustunnar var haldinn á Egils-
stöðum á dögunum. Þar var fjallað
heildstætt um málefni greinari-
nnar; tækifærin og verkefnin sem
framundan eru. Sérstaklega var
horft til möguleika úti á landi.
„Styrkur Egilsstaða er staðsetn-
ing og þjónusta. Héðan er stutt til
allra átta í fjórðungnum og því
hentugur viðkomustaður fyrir
ferðamenn,“ segir Ívar. „Við erum
við hringveginn og meðal annars
stansar fólk sem kemur með Nor-
rænu til Seyðisfjarðar hér mikið.“
Nú færist aukinn þungi í þá
umræðu að gáttirnar inn í landið
með millilandaflugi þurfi að vera
fleiri. „Í því efni kemur Egils-
staðaflugvöllur, sem uppfyllir öll
skilyrði sem gerð eru til milli-
landaflugs, sterkur inn. Ég gef lít-
ið fyrir að útlendingar vilji ein-
ungis hefja ferð sína á
suðvesturhorninu. Þeir eiga hins
vegar ekki kost á öðru eins og
staðan er nú,“ segir Ívar. „Ef við
viljum að ferðaþjónustan vaxi
áfram og skili tekjum og störfum í
auknum mæli – þarf að opna aðra
gátt inn til landsins og dreifa
ferðamönnum betur um landið.“
Gert er ráð fyrir að 1,2 milljónir
ferðamanna komi til landsins 2015
og nýlegar tölur fyrir árið 2014
sýna að ferðaþjónustan skilaði
þjóðarbúinu um 300 milljörðum
króna í gjaldeyristekjum. Verði
fjölgun ferðamanna í svipuðum
taki næstu ár og verið hefur er
reiknað með að gjaldeyristekj-
urnar verði yfir 400 milljarðar árið
2017. Í því efni minnir Ívar á að
nú þurfi um einn milljarð króna á
ári næstu fimm árin til að byggja
upp innviði ferðamannastaða.
Verðmæti í húfi
„Í dag koma um 260 miljónir kr.
til ríkissjóðs með gistináttaskatti.
Þeirri upphæð ásamt einhverjum
tilfallandi viðbótar fjármunum sem
ráðherra úthlutar er nú varið til
uppbyggingar á fjölsóttum ferða-
mannastöðum sem margir liggja
undir skemmdum vegna álags.
Þetta er hvergi nærri nóg. Sé
þetta sett í samhengi, þá eru þess-
ir peningar sem settir eru til inn-
viðanna ekki nema 0,001% af
framlagi greinarinnar í þjóðar-
búið,“ segir Ívar.
Skýringu þessa telur Ívar þá að
ferðaþjónustan sé enn ekki tekin
alvarlega sem atvinna. „Ég er
nokkuð viss um að ef vel veiddist
og verðmæti væri í húfi myndi
ekki standa á því að hafnar-
aðstæða væri bætt gerðist þess
þörf. En ferðaþjónusta og upp-
bygging aðstöðu situr á hakanum.
Slíkt gerist þótt greinin sé orðin
mikilvægasti atvinnuvegur þjóð-
arinnar, en á síðasta ári urðu til
2.800 ný störf í landinu, þar af
2.700 í ferðaþjónustu.“
EGILSSTAÐIR
Ferðaþjónusta
er ekki tekin
alvarlega
TÆKIFÆRIN ERU ÚTI Á LANDI, SEGIR FERÐAÞJÓNUSTU-
FÓLK. ÍVAR INGIMARSSON Á EGILSSTÖÐUM TEKUR UNDIR
ÞAÐ. HANN VILL STYRKJA INNVIÐI SAMFÉLAGSINS Í TAKT
VIÐ AUKINN FERÐAMANNASTRAUM TIL LANDSINS.
Ívar og Hrefna
Dagbjört starfrækja
tvö gistiheimili og
kynntu starfsemina
á kaupstefnu á
Reyðarfirði nýlega.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Á Djúpavogi. Margir möguleikar eru
á Austurlandi til vaxtar og sóknar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi