Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Side 18
Mörg flugsæti í boði
*Velja má milli þriggja flugfélaga þegarhaldið er til Parísar. Bæði Icelandairog WOW fljúga til Parísar árið umkring og lenda á Charles de Gaulle-flugvelli. Transavia flýgur frá seinnihluta maí fram í byrjun september oglendir á Orly-flugvelli. Orly er nær mið-
bænum og leigubíllinn þangað því ódýrari, en CDG þykir hins
vegar bjóða upp á betri almenningssamgöngur inn í bæinn.
Ferðalög
og flakk
A
llir eru sammála um hvað
París er fögur borg og
sjarmerandi. En borgin
er ekki fullkomin, eins og
aðframkomnir japanskir ferðamenn
geta vitnað um. Japanska sendiráðið
heldur úti sérstakri neyðarlínu fyrir
ferðamenn sem hafa orðið fyrir al-
varlegu menningarsjokki þegar þeir
ferðast til draumaborgarinnar Par-
ísar og borgin reynist ekki standa
undir væntingum. „Paris syndrome“
heitir fyrirbærið og hefur verið skil-
greint af sálfræðingum enda geta
einkennin verið mjög alvarleg og
kallað á sjúkrahúsvist.
Það fyrsta sem margir ferðamenn
reka sig á er að Frakkar geta verið
ögn – tjah – hrjúfir, og þykja Par-
ísarbúar síst eftirbátar samlanda
sina í hortugheitum. Hér er þó rétt
að taka skýrt fram að ekki má al-
hæfa um svona stóran hóp fólks, en
ferðamenn ættu alltént að gæta
þess að láta það ekki koma sér úr
jafnvægi að rekast á önugan þjón á
kaffihúsi eða óhjálpsaman sölumann
í verslun.
Inn á milli er vitaskuld yndislegt
fólk sem gefur Amélie ekkert eftir í
ljúfleika.
Kampavín á toppnum
Þegar París er heimsótt eru nokkrir
viðkomustaðir sem ferðamaðurinn
má ekki missa af. Eiffel-turninn er
fyrstur á listanum, en ekki hvað.
Taka má lyftuna alla leið upp á
fyrstu og aðra „hæð“ fyrir 9 evrur,
en taka stigann fyrir 5 evrur. Ferð
alla leið upp í topp turnsins kostar
15,50 evrur. Nýlega voru gerðar
endurbætur á 1. hæð turnsins með
glergólfi og sýningarrými.
Þeir sem vilja upplifa franskan
lúxus ættu að reyna að bóka sæti,
með góðum fyrirvara, á veitinga-
staðnum Jules Verne á annarri hæð
turnsins. Veitingastaðurinn skartar
Michelin-stjörnu og verðið eftir því.
Fimm rétta matseðill kostar 190
evrur, jafnvirði um 28.000 kr. Fyrir
ódýrari lúxus má heimsækja kampa-
vínsbarinn í toppi turnsins og fá sér
eitt glas með útsýni yfir alla borg-
ina.
París er menningarborg og kallar
heimsóknin á að tekið sé hús á
Mónu Lísu í Louvre. Nútímalista-
safnið í Centre Georges Pompidou
ætti líka að vera á listanum, sem og
kvöldstund í óperunni. Óperan í
París er til húsa í tveimur bygg-
ingum, Palais Garnier og Opera Ba-
stille, og þykir með þeim fremstu í
heimi.
Gyllti þríhyrningurinn
Þeir sem vilja tolla í tískunni ættu
að taka nokkrar evrur frá fyrir
verslunarferð. Í París reka margir
fremstu hönnuðir heims sínar aðal-
verslanir. Lúxusbúðirnar er einkum
að finna á götunni Avenue Monta-
igne, sem myndar „gyllta þríhyrn-
inginn“ með Champs Elysées og
Avenue George V. Innan þríhyrn-
ingsins rekur hver lúxusverslunin
aðra. Valentino, Louis Vuitton og
Chanel bíða þar eftir þeim sem vilja
spæna upp kortaheimildina og yf-
irdráttinn.
Þar með er ferðalagið rétt að
byrja og endalaust hægt að upp-
götva eitthvað nýtt í París, hvort
sem haldið er ofan í katakomb-
urnar, prílað upp að Sacré-Coeur,
leitað að kroppinbaknum í Notre
Dame eða einfaldlega pantað rauð-
vínsglas á kósí litlum veitingastað.
Ferðalangar ættu að leyfa sér að
villast í borginni og þræða ekki ein-
göngu vinsælustu ferðamannastað-
ina, enda munúðarfull borg sem
geymir spennandi leyndarmál bak
við hvert horn.
Heimsókn til Parísar er ekki fullkomin nema komið sé við í sælkeraverslun.
Hér og þar reynast sérverslanir með osta, konfekt og vín.
ÁFANGASTAÐUR VIKUNNAR: PARÍS
Menning,
tíska og önugir
þjónar
PARÍS ER Í HÓPI FEGURSTU BORGA EN GETUR VERIÐ
ÖGN HRJÚF Á YFIRBORÐINU. LÚXUSINN ER VIÐ HVERT
FÓTMÁL ENDA KUNNA PARÍSARBÚAR AÐ NJÓTA LÍFSINS.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
París er full af frægum kennileitum
sem gaman er að heimsækja og
allir ættu að upplifa. Borgin er þó
líka þannig að gaman er að rápa
um og uppgötva óvænta hluti.
Listasöfn eins og Louvre geta virkað
yfirþyrmandi. Svo margt er að sjá og
myndi heimsóknin taka nokkra daga
ef staldrað væri við hvert einasta
verk. Gangarnir eru langir og getur
jafnvel verið auðvelt að villast.
Það hjálpar að hafa kort við hönd-
ina og svo skoða safnið eftir einföldu
kerfi, s.s. að ganga réttsælis um húsa-
kynnin, eina hæð í einu.
Síðan er allt í lagi að arka hæfilega
greitt. Ekki þarf að grannskoða hvert
einasta málverk. Prufaðu að nálgast
safnið eins og fallegan garð, þar sem
stoppað er við það sem fangar mest
augað, en ekki rýnt í hvert smæsta
laufblað.
Á netinu má oft auðveldlega finna
út hvaða verk þykja bera af á hverju
safni. Ferðalangurinn ætti ekki að láta
þessi verk framhjá sér fara, en líka
láta eigin smekk og forvitni ráða för.
Oft er kraðakið mest við heimsfrægu
verkin, en fangandi og heillandi verk
geta leynst í rólegum og næsta mann-
lausum litlum hliðarherbergjum.
EKKI STOPPA VIÐ HVERT VERK
Listin að skoða risavaxið safn