Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Blaðsíða 21
12.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
BURTMEÐMÚSARÚLNLIÐ
Eitt algengasta vandamálið meðal tölvunotenda – bæði barna og fullorðinna
Léttir álagi af viðkvæmum
sinaskeiðum úlnliðsins
Minnkar og fyrirbyggir spennu í hendi,
handlegg, öxlumog hálsi
duopad.is
Náttúruleg staða með DuoPadSlæm staða handleggs
Meðmæli sjúkraþjálfara
léttur og þægilegur
ÚLNLIÐSPÚÐI
aðeins 4 gr.
Fæst á www.duopad.is – fjárfesting gegn músararmi
DuoPad fylgir hreyfingum
handleggsins í staðinn fyrir að
allur líkaminn þurfi að aðlagast
stuðningi sem liggur á borðinu.
1
2
3
4
EINKENNI MÚSARÚLNLIÐS
Aukinn stirðleiki í hálsi og axlasvæði,
síðar seiðingur út í handlegg.
Verkur upp handlegg að olnbogameð
vanlíðan og sársauka.
Verkurinn verður ólíðandi og stöðugur
í olnboga, úlnliðumog öxlum. Stífleiki í
hálsi getur verið viðvarandi.
Fólk getur orðið ófært um að nota
tölvumús og jafnvel óvinnufært.
S
umarið 2013 lagði ég leið mína til Ír-
lands í því skyni að leita uppi heim-
kynni Mýrkjartans konungs föður
Melkorku sem um getur í Laxdælu.
Saga hennar og Ólafs pá sonar þeirra Mel-
korku og Höskuldar Dala-Kollssonar hefur
legið mér á huga nú um nokkurt árabil, og
það af því að mér hefur boðið í grun að þar
gæti leynst lykill að írskum áhrifum á ís-
lenska menningu.
Lyklarnir eru fleiri en einn sem fólgnir
eru í fornum bókum okkar en eitt megin-
atriðið í sögu þeirra mæðgina og samferða-
fólks þeirra er í hverju Ólafi bregður frá
öðrum höfðingjum á sinni tíð, en hann lifir
fram yfir kristnitökuna. Um þetta hef ég
viljað fjalla nokkuð og gerði skil á mynddisk-
inum Melkorka – rætur íslenskar menningar
sem út kom hjá Sögusafninu 2009. Þar er
saga þeirra mæðgina rakin að nokkru og lát-
ið fylgja með fróðleiksefni um þeirra samtíð
og menningu.
Sumarið 2011 bauð ég ásamt Dalamönnum
upp á söguferð um Laxárdal með samkomu í
Hjarðarholtskirkju að ferðalokum. Um
hundrað manns fóru þessa ferð á einkabílum
sínum og var gerður stans á helstu sögustöð-
um. Heimafólk annaðist tónlistarflutning í
kirkjunni og okkur öllum sem tókum þátt í
þessari dagskrá verður hún ógleymanleg.
Ég þóttist svo í áframhaldandi grúski hafa
fundið út ýmislegt um Mýrkjartan konung,
m.a. að hann hafi verið konungur í Ailech
sem er Donegal-fylki í dag á norðanverðu Ír-
landi. Hann hafi verið af mikilli valdaætt og
frækinn herforingi, kallaður leðurstakkur
vegna búnaðar síns og manna í herförum.
Til er fornt virki á litlu fjalli upp af Derry
sem kallast Grianán of Ailech og er ætt-
arvígi Ailechríkis um aldir og einmitt þá sem
þær sögur gerast er þetta varða. Þangað var
för því einarðlega stefnt. Á sólbjörtum degi í
ágúst 2013 ókum við upp að virkinu þar sem
það gnæfði á fjallstoppinum. Það reyndist
vera víðast um 7 metra hátt á vegginn hlaðið
af grjóti í fimmtíu metra víðan hring. Í múr-
unum voru svolitlar vistarverur en innra
nægt rými fyrir nokkur hús sem þó sá ekki
stað lengur.
Þaðan er fögur útsýn yfir grasgefið, öldótt
héraðið og til norðurs gefur að líta tvo firði
og allmikið fjall á milli. Ferðalangnum þótti
smella saman sögurnar og hann hafa fundið
heimkynni konungsdótturinnar sem ratað
hafði inn í sögur Íslendinga og heillað hann
svo mjög.
Virkið innan múranna.
Grianán-virkið er tilkomumikið.
Höfundurinn, Jakob Ágúst Hjálmarsson prestur í virkinu í Ailechríki sem nú kallast Donegal-fylki.
HEIMKYNNI ÆTTMENNA MÝRKJARTANS KONUNGS
Á slóðir Melkorku
JAKOB ÁGÚST HJÁLMARSSON PRESTUR LÝSIR FÖR SINNI TIL ÍRLANDS
Á SLÓÐIR MÝRKJARTANS OG MELKORKU SEM KOMA FYRIR Í LAXDÆLU.
Á VEFNUM WWW.JAKOBAGUST.IS ER AÐ FINNA SÖGU MÝRKJARTANS
OG ÆTTMENNA HANS SEM JAKOB HEFUR SKRÁÐ.
Það er ekki alltaf einfalt að finna
hentuga svefnstellingu í flugvél.
Plássið er takmarkað og stundum
virðist vera sama hvernig maður
snýr sér, það er aldrei þægilegt að
sofna sitjandi í flugvélarsæti.
Margir hafa reynt að finna lausn á
þessu vandamáli og nú hefur flug-
vélaframleiðandinn Boeing sótt um
einkaleyfi á nýrri lausn við svefn-
vanda flugfarþega.
Um er að ræða nokkurs konar
púða sem er fyrir framan farþegann
þannig að hann þarf að halla sér
fram til að njóta stuðnings frá púð-
anum. Farþeginn setur höfuðið inn
um nokkurs konar gat efst á púð-
anum sem er þannig útbúið að
hægt er að anda gegnum það. Púð-
inn veitir stuðning bæði við höfuð
og bringu og hugmyndin er að far-
þegar eigi að geta notið slökunar
og steinsofnað á púðanum. Svo er
bara alveg eftir að koma í ljós
hversu þægilegt verður að sofa
framhallandi í flugvél.
Stuðningspúði frá Boeing er hugsaður svo að flugfarþegar geti notið svefns í
flugvél án þess að þurfa að bylta sér og leita að þægilegri stellingu.
Bíum bíum bamba …
NÝR BÚNAÐUR AUÐVELDAR SVEFN Í FLUGI