Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2015
Heilsa og hreyfing
Katrín Tanja: „Þetta er fyrsta önnin sem ég
er ekki í skóla, sem setur á mig meiri
pressu að gefa allt í hverja æfingu og passa
vel upp á mig. Ég er búin að vera mikið úti
að undanförnu þar sem þjálfarinn minn er í
Boston en það er að breytast. Ég er þó viss
um að ég mun fara aftur í nám í haust.“
Hjördís: „Þetta snýst allt um skipulag.
Ég reyni að nýta helgarnar í að sinna fjöl-
skyldu og vinum og kvöldin líka ef maður er
ekki sigraður eftir daginn. Annars eru bestu
vinir manns oft þeir sem eru mest í kring-
um manns, eins og á æfingu. Ég hef líka
eignast marga góða vini í gegnum íþróttina.
Stærsti vinahópurinn minn er á Hvamms-
tanga þannig að ég fer stundum þangað til
að anda og kem svo fersk til baka.“
Ragnheiður Sara: „Ég er í innritun hjá
Icelandair og tek að mér útköll þar. Þá fæ
ég einhvern til að leysa mig af í þjálfuninni
og fer upp á flugvöll. Svo er ég líka í fjar-
námi í sálfræði í Háskólanum á Akureyri en
bara í tveimur áföngum. Þetta snýst allt um
skipulagningu. Ég er alltaf með tölvuna með
mér þannig að ef ég á lausan klukkutíma
nota ég hann í að hlusta á einn fyrirlestur.“
Þuríður: „Þegar ég á lausan tíma gæti ég
þess að læra í stað þess að fara á Facebook.
Ég er í virkum vinahópi og gef mér tíma í
að rækta hann.“
Hvernig undirbúið þið ykkur fyrir mót?
Katrín Tanja: „Ég æfi af mun meiri ákefð
Stúlkurnar eru á leiðinni
á Evrópuleikana í crossfit
sem verða haldnir í maí.
Vantar þig yfirsýn yfir æfingarnar? Prófaðu að skrá inn alla hreyfingu dagsins á hverjum degi
inn á Fitocracy (www.fitocracy.com). Forritið veitir þér svo stig fyrir hverja æfingu sem eru
mismörg eftir kílóafjölda, fjölda endurtekninga og ákefð. þú getur borið þig saman við aðra,
gefið og þegið ráð og lesið greinar um æfingar og mataræði.
Rafræn æfingadagbók veitir yfirsýn yfir hreyfingu
Annie Mist Þórisdóttir er fyrsta og eina konan til að verða tvisvar
heimsmeistari í crossfit, sem hún varð árin 2011 og 2012. Vinni
Annie heimsleikana í ár yrði það því þriðji sigur hennar. Hún er nú
stödd í San Francisco en gaf sér tíma til að ræða við Sunnudags-
Moggann.
Hún segist almennt æfa tvisvar á dag, tvo til þrjá tíma í senn. Önn-
ur æfingin feli í sér tækni og úthald en hin styrktaræfingar og ólymp-
ískar lyftingar. Þar að auki syndir hún og hleypur reglulega og tekur
einn dag í viku til að hita upp og teygja vel fyrir átök næstu viku.
Tíu dögum fyrir Evrópuleikana eða heimsleikana breytir hún æf-
ingunum þannig að þær verða aðeins styttri og léttari. „Ég hvíli
tveimur dögum fyrir mót og tek tækniæfingu daginn fyrir það. Ég
reyni að slaka á og eyða tíma með fjölskyldunni eða kærastanum. Ég
reyni að borða eins og venjulega og breyta eins litlu og mögulegt er.“
Annie sigraði í Crossfit Open í ár og er því efst kvenna í öllum
heiminum.
„Venjulega eru mót eins og Open með tiltölulega einföldum æf-
ingum þar sem fólk hefur tíma til að jafna sig vel á milli vikna. Slíkt
hefur almennt ekki hentað mér. Einn af helstu styrkleikum mínum er
að ég jafna mig hratt á milli æfinga. Æfingarnar í keppninni í ár hent-
uðu mér samt nokkuð vel en það kom það mér mjög á óvart að mér
skyldi takast að vinna. Þetta var frábær byrjun á keppnistímabilinu,“
segir Annie.
Hún er í því óðaönn að undirbúa sig fyrir næstu Evrópuleika og
stefnir órauð á heimsleikana í júlí.
Annie er ekki í vafa þegar hún er spurð um markmið sín í íþrótt-
inni: „Ég vil vinna heimsleikana aftur. Ég vil keppa eins lengi og ég hef
gaman af þessu og hef áhuga. Ég vil hjálpa til við að miðla heilbrigðum
lífsstíl og hreyfingu. Ég er einn af eigendum CrossFit Reykjavík þann-
ig að ég veit að það mun alltaf vera hluti af lífinu taka þátt í uppbygg-
ingu og kennslu þar.“
Aðspurð hvers vegna svona margar íslenskar konur séu efnilegar í
crossfit svarar hún: „Það er erfitt að svara því en ég tel okkur hafa
mikið keppnisskap og drifkraft. Við erum ekki hræddar við að ýta
okkur áfram og við höfum trú á okkur. Íslenskar stelpur eru auk
þess með sterk gen.“
Annie Mist við heimkomuna til Íslands eftir að hafa varið titil sinn sem
Hraustasta kona veraldar árið 2012.
Morgunblaðið/Eggert
Gæti orðið heimsmeistari þrisvar