Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Side 26
Heimili
og hönnun
Vinátta í Anarkíu
*Listamennirnir Helena Aðalsteinsdóttir og Logi LeóGunnarsson opna samsýningu í Anarkíu listasal, Hamra-borg 3, hinn 11. apríl kl. 16. Sýningin fjallar um form-fræði, efniskost og útkomu en þar vinna listamennirnirmikið með skúlptúra. Í verkum sínum gerir Helena til að mynda tilraunirmeð hlutverk hluta en hún vinnur aðallega með skúlptúr,
vídeó og hljóð. Logi vinnur aðallega með skúlptúr, hljóð
og myndbandsmiðilinn.
H
eimilisstíllinn einkennist af góðri blöndu af sterkum
litum, við og svörtum og segir Una stílinn í áttina að
„midcentury modern“.
Una og Björn segja mikilvægast við innréttingu
heimilisins að það virki fyrir fólkið sem þar býr og sé bæði heim-
ilislegt og skemmtilegt.
„Í vinnunni er ég náttúrlega umkringd alls konar innanbúð-
arefni frá IKEA, annars er það eins og flestir Pinterest og þessi
helstu skandinavísku húsbúnaðartímarit,“ útskýrir Una og bætir
við að bækur veiti einnig mikinn innblástur við innréttingu heim-
ilisins.
Frá borðstofunni er útgengt á rúmgóðar svalir þar sem fjöl-
skyldan nýtur sín á sumrin.
Aðspurð hvað sé á óskalistanum fyrir heimilið segist parið
langa til að taka baðherbergið í gegn.
„Það er löngu kominn tími á það og okkur langar að taka bað-
herbergið í gegn. Annars er ég svolítið spennt fyrir borði sem
Ilse Crawford hannaði fyrir IKEA og kemur í búðir í haust.“
Stofan er rúmgóð og sérstaklega
hlýleg. Una og Björn hafa gaman
af því að breyta til og skipta
reglulega um áklæði á sófanum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
BJÖRT ÍBÚÐ Í BREIÐHOLTI
Sterkir litir og
skemmtileg stemning
Gangurinn er skemmtilega innréttaður. Notaleg uppröðun í svefnherberginu. Skemmtilegur viðarveggur sem Björn setti upp.
UNA ÓLÖF GYLFADÓTTIR, VERSLUNARRÝMIS- OG ÚTSTILLINGAHÖNNUÐUR
HJÁ IKEA, OG BJÖRN RAGNAR LÁRUSSON, BYGGINGATÆKNIFRÆÐINGUR HJÁ
ÞJÓÐSKRÁ ÍSLANDS, BÚA Í FALLEGA INRRÉTTAÐRI ÍBÚÐ Í BREIÐHOLTI ÁSAMT
BÖRNUM SÍNUM, HRAFNKELI MÁNA, ELLEFU ÁRA, OG HAFDÍSI BIRTU, SEX ÁRA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Herbergi Hafdísar Birtu er skvísulegt.