Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2015
inn við uppfærsluna og mér finnst ég alltaf
eiga talsvert í þessari sýningu. Ég var dans-
kafteinn (yfirdansari) í sýningunni frá upp-
hafi og 2006 var mér boðið að verða fastur
danshöfundur við sýninguna. Það starf felur í
sér allt viðhald sýningarinnar, að ráða nýja
dansara, þjálfa nýja stráka til að leika Billy
Elliot og að vera tengiliður sýningarinnar við
framleiðendur. Ég bar alla ábyrgð á því að
sýningin héldi ferskleika sínum og gæðum.
Ég var í þessu starfi í sex ár, til 2012, með
hléum. Sýningin sló í gegn og gengur enn í
London.“
Fékk enga tilnefningu
til Grímunnar
Upp úr þessu fór Lee að bjóðast að semja
dansa við sýningar í litlum leikhúsum víðs-
vegar um Bretland og svo árið 2011 fékk
hann símtal frá Bergi Þór Ingólfssyni.
„Hann sagðist hafa fundið mig á netinu og
við áttum skype-samtal. Ég var búinn að
læra tvær setningar í íslensku og ég held að
þær hafi gert útslagið,“ segir Lee Proud og
hófst þá íslenski kaflinn í lífi hans.
„Við gerðum nýja Mary Poppins-sýningu
frá grunni. Nýir dansar, sviðsmynd, búningar
og útsetningar. Okkur tókst að ná ótrúlega
miklu út úr leikurunum, sem fæstir höfðu
nokkra reynslu af dansi, hvað þá steppdansi,
sem er mjög erfiður. Umhverfið í Borgarleik-
húsinu kom mér líka á óvart, hæfileikarnir í
húsinu og getan til að gera flókna hluti til að
framkalla galdra á sviðinu er á heimsmæli-
kvarða.“
Og Mary Poppins sló í gegn. 50 þúsund
manns sáu sýninguna sem er sú vinsælasta
sem sett hefur verið upp á Íslandi til þessa.
Allir listrænir stjórnendur fengu tilnefn-
ingu til Grímuverðlauna, nema Lee. Hvað
fannst honum um það?
„Mér sárnaði það. Mér fannst fram hjá
mér gengið og skildi ekki hvers vegna ég
fékk ekki tilnefningu. Sérstaklega í ljósi þess
að dansarnir í Mary Poppins voru alger nýj-
ung í íslensku leikhúsi, eða svo er mér sagt.“
Eftir Mary Poppins fóru hjólin að snúast á
fullu hjá Lee. Hann gerði sviðshreyfingar í
Furðulegu háttalagi hunds um nótt í Borg-
arleikhúsinu og honum buðust æ stærri verk-
efni í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hápunkt-
ur ársins var án efa tilnefning til
Offie-verðlauna sem danshöfundur ársins fyr-
ir Carousel í London.
Á sama tíma tókst hann aftur á við Billy
Elliot. Og verkefnið var metnaðarfullt; að
gera alveg nýja sýningu sem styðst ekki á
neinn hátt við fyrri uppfærslur á verkinu. Nú
á Íslandi. Hvernig var fyrir hann að hitta aft-
ur þennan gamla vin sinn og fá nú að gera
sýningu frá grunni? „Fyrir hreina tilviljun
var fyrsti samlestur í Borgarleikhúsinu ná-
kvæmlega tíu árum eftir fyrsta samlestur í
London. Það kveikti hjá mér miklar tilfinn-
ingar og minningar. Mér leið vel við tilhugs-
unina um að fá að semja alveg nýja dansa í
sýningu sem ég þekki svona vel, en á sama
tíma var þetta gríðarleg áskorun.“
Í Bretlandi þótti vafamál hvort nægilega
góður piltur fyndist í hlutverk Billys, en
hvernig ætti að finna þrjá slíka á Íslandi?
„Sá sem leikur Billy þarf að geta dansað
ballett, steppað, vera góður í fimleikum,
syngja, leika, vera líkamlega sterkur, á rétt-
um aldri og hæð og geta haldið uppi þriggja
tíma leiksýningu. Sá hinn sami þarf líka að
vera andlega sterkur, því þjálfunin fyrir hlut-
verkið tekur yfir allt hans líf í marga mánuði.
Merkilegt nokk tókst það, raunar fundum við
fleiri en þrjá sem gætu leikið hlutverkið. Ís-
land er mikil hæfileikaverksmiðja. En ég bjó
að því að hafa þjálfað upp 28 stráka í þetta
hlutverk í London.“
Á æfingatímabili Billy Elliot var Lee boðið
spennandi verkefni, hinn kunni leikstjóri
Matthew White bauð honum að semja dansa
við nýja uppfærslu af söngleiknum The
Producers eftir Mel Brooks. „Þetta var tæki-
færi af slíkri stærðargráðu að ég gat ekki
annað en sagt já takk. Sýningin hefur verið á
ferðalagi um Bretland en lokaáfangastaður-
inn er West End. Ég var heppinn að hafa
mjög fært samstarfsfólk sem tók við Billy El-
liot þegar ég þurfti að fara fáeinum vikum
fyrir frumsýningu.“
En hver er munurinn á íslensku sýning-
unni og þeirri í London? „Sýningin á Íslandi
hefur marga kosti umfram uppfærsluna í
London. Hún er ferskari, danshreyfingarnar
eru erfiðari og um leið nær bíómyndinni í
raunveruleikablæ.“
Hvað langar þig að gera í framtíðinni?
„Núna er ég á leiðinni í langt frí til Mallorca,
en það sem mig dreymir um að fá að gera er
að leikstýra. Hver veit nema sá draumur
rætist.“
Morgunblaðið/Kristinn
* Fyrir hreina tilviljunvar fyrsti samlestur íBorgarleikhúsinu nákvæm-
lega tíu árum eftir fyrsta
samlestur í London. Það
kveikti hjá mér miklar til-
finningar og minningar.
Lee Proud danshöfundur hafði þjálfað 28 stráka í hlut-
verk Billy Elliot áður en hann kom hingað til lands til að
vinna að uppfærslu verksins. Við hlið hans á myndinni
er Hjörtur Viðar Sigurðarson og fyrir framan sitja
Baldvin Alan Thorarensen og Sölvi Viggósson Dýr-
fjörð. Þessir þrír ungu menn skipta með sér hlutverki
Billy Elliot á sviði Borgarleikhússins.
Magnús Geir Þórðar-
son útvarpsstjóri var
við stjórnvölinn í Borg-
arleikhúsinu þegar Lee
Proud kom til starfa í
Mary Poppins.
„Áhrif Lees á íslenskt
leikhúslíf verða seint
ofmetin. Með vinnu sinni í Mary Poppins
setti hann, að mínu mati, ný viðmið hvað
varðar dansþáttinn í íslenskum söng-
leikjauppfærslum. Áhorfendur stóðu á
öndinni yfir glæsilegum dansatriðum sem
voru viðameiri og flóknari en menn áttu
að venjast. Hann gerir miklar kröfur og
er einstaklega mikill fagmaður. Það var
lærdómsríkt fyrir okkur öll að kynnast
hans vinnubrögðum í þessari risavöxnu
sýningu. Svo er gaman að sjá á Billy Elliot
að þróunin heldur áfram. Við unnum í
nokkur ár að því að fá réttinn til að setja
Billy Elliot upp í Borgarleikhúsinu og eitt
það fyrsta sem við gerðum þegar ljóst
var að verkið færi á svið var að fá Lee til
að stýra dönsunum. Hann er enda einn
af lykilmönnum þessarar uppfærslu, líkt
og í Mary Poppins, án þess að lítið sé
gert úr frábærri vinnu á öllum póstum
sýningarinnar.“
MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON
Hefur haft mikil
áhrif á íslenskt
leikhúslíf
„Lee er mikill listamað-
ur og kemur með verð-
mæta reynslu inn í leik-
húsið hér. Maður á djúp
samtöl við hann um lögn
á persónum. Hann hefur
tekið kóreógrafíu í
söngleikjum upp á alveg
nýtt stig hér á Íslandi. Lee heldur miklum
aga og nær miklu út úr listamönnunum
sem hann vinnur með,“ segir Halldóra
Geirharðsdóttir, sem leikur ballettkenn-
arann frú Wilkinson í Billy Elliot.
HALLDÓRA
GEIRHARÐSDÓTTIR
Nær miklu út úr
listamönnum