Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2015
Bækur
Þ
ótt breski rithöfundurinn David
Nicholls hafi notið velgengni með
verk sína heimafyrir sló hann í
gegn um heim allan með þriðju
bók sinni, One Day, sem seldist
metsölu um allan heim, ekki síst eftir að
gerð var eftir henni vinsæl kvikmynd sam-
nefnd. Það vakti svo aftur athygli á Nicholls
þegar óútkomin bók hans, Us, var tilnefnd til
bresku Booker-verðlaunanna, sem eru helstu
bókmenntaverðlaun Bretlands, enda þykir
það saga til næsta bæjar þegar metsöluhöf-
undur kemst á lista
með mörgum af
helstu rithöfundum
enskrar tungu. One
Day kom út á ís-
lensku undir heitinu
Einn dagur á sínum
tíma og fyrir stuttu
gaf bókaútgáfan
Bjartur Us út og
kallast Við í íslenskri
þýðingu.
Í viðtali við David
Nicholls fyrir stuttu
nefndi ég við hann að
ég hefði orðið hissa
þegar ég sá að Við
hafði verið tilnefnd
til Booker-verð-
launanna, þótt ég sé
á því eftir lestur bók-
arinnar að hún hafi
vissulega átt heima á
langlistanum. Hann
svarar því svo að
vissulega hafi það
komið honum á óvart
og ekki bara honum. „Almennt lítur fólk svo
á að sé maður að skrifa skemmtilegar bæk-
ur, bækur sem fjalla aðallega um samskipti
fólks, ást, hjónaband, fjölskyldu, þá sé maður
ekki að skrifa nógu alvarlegar bækur. Ég er
ekkert reiður vegna þessa eða beiskur – það
er erfitt að skrifa ástarsögu, til að mynda, án
þess að verða væminn og það er erfitt að
skrifa um hversdagslíf án þess að verða
hversdagslegur – en ég varð hissa og himin-
lifandi í senn. Það er mikill heiður að komast
í þennan félagsskap og ég var einmitt að
reyna að skrifa bók sem væri öðruvísi og
betri en ég hafði áður gert. Ég er mjög stolt-
ur af Okkur og það er mér mikils virði að
hafa komist á listann þótt hann hafi vissulega
verið mjög langur.“
Harmræn hetja
Aðalpersóna bókarinnar Við er Douglas Pet-
ersen, harmræn hetja sem á mjög erfitt með
mannleg samskipti og þá sérstaklega við
fólkið sem hann elskar eftir að hann áttar sig
á því að það elskar hann ekki. Nicholls segir
aðalvanda Petersens ótta hans við að vera
einn, enda elski hann konu sína, þótt hjóna-
bandið hafi eiginlega leyst upp í leiðindi og
leti, og son sinn, en sú ást birtist ekki sem
stuðningur, hvatning og kærleikur, heldur
sem stjórnlyndi, kvíði og gremja. „Þegar
hann stendur síðan frammi fyrir því að missa
þau bæði sama sumarið ákveður hann að
kippa öllu í liðinn og bókin spyr: Er það um
seinan? Getur maður breytt sjálfum sér í
grundvallaratriðum?“
– Bókin er fyndin og í raun skemmtilesn-
ing, þó með dapurlegu ívafi. Lagðir þú upp
með gamansögu, eða gripu persónurnar til
eigin ráða?
„Ég ætlaði að hafa bókina eins fyndna og
mér væri frekast unnt og líka mjög dapur-
lega, því þetta tvennt fer oft einkar vel sam-
an að mínu mati. Örvænting er þrungin
kímni þegar við stöndum frammi fyrir því að
hlutir fara ekki eins og við ætluðum.
Douglas er líka þannig persóna að hann
gerir gys að sjálfum sér, er meðvitaður um
galla sína, og það og löngun hans til að
breyta rétt er það sem gerir hann að við-
kunnanlegri sögupersónu. Svo vildi líka
þannig til á meðan ég var að skrifa bókina að
faðir minn lést og ég held að eitthvað af
þeirri sorg og eftirsjá sem ég upplifði hafi
skilað sér í söguna.“
Upphaf, ekki endir
Þeir sem lásu Einn dag eða sáu kvikmyndina
muna eflaust eftir áhrifamiklu atviki undir
lok hennar sem er eitt af lykilatriðum bókar
og myndar. Það varð meira að segja til þess
að fólk greip andann á lofti í kvikmynda-
húsum, en er fyrir vikið líka nánast það eina
sem margir muna eftir sem ég hef rætt við
um bókina og myndina. Ég rek þetta fyrir
Nicholls, en bendi honum á að fyrir mér séu
Einn dagur og Við áþekkar að því leyti að
þær eru ekki bækur um endalok heldur bæk-
ur um nýtt upphaf. Hann lýsir ánægju sinni
með þessa hraðsoðnu greiningu þótt hann
segist ekki vilja gefa of mikið upp um Okkur,
„en svo vill til að ég er ekki mjög klár í að
skrifa hamingjurík sögulok, en að því sögðu
þá skrifa ég ekki sorgleg sögulok að mínu
viti. Ég reyni að haga málum svo að lesand-
anum finnist sem það sé eitthvert framhald,
að lífið haldi áfram …“
Júpíter springur
David Nicholl hóf rithöfundarferil sinn sem
handritshöfundur og segir að það hafi eðli-
lega haft ákveðin áhrif á sig þegar hann tók
að skrifa skáldsögur. Það sé miklu flóknara
að skrifa handrit fyrir sjónvarpsþátt en að
skrifa skáldsögu og kalli á mun meiri skipu-
lagningu og mun meiri nákvæmni í vinnu-
brögðum og þegar unnið er upp úr skáld-
verki, eins og hann hefur oft gert, þá kalli
það á niðurskurð á textanum án þess þó að
glata einkennum sögunnar.
„Það gefur miklu meira frelsi að skrifa
skáldsögu enda get ég skrifað „flaug geim-
veranna springur og sprengir Júpíter“ og
það er bara svört tákn á blaði – enginn spyr
hvort það sé nauðsynlegt að sprengja Júpít-
er. Í skáldsögu hefur maður líka beinan að-
gang að tilfinningum og hugsunum. Í hand-
riti er setningin „hún fann til sorgar sem
lituð var eftirsjá og vonarneista“ gagnslaus –
maður þarf að finna leið til að sýna þessar
tilfinningar.“
Sinn eigin tannlæknir
Í ljósi þess að Nicholls skrifaði sjálfur hand-
ritið að kvikmyndinni Einn dagur kviknar sú
spurning hvort það hafi ekki reynst honum
erfitt að skera svo niður í bókinni að hentaði
fyrir kvikmynd og hann jánkar því, það hafi
verið afskaplega snúið. „Hver mínúta í kvik-
mynd er dýr og þar sem maður greiðir ekki
kostnaðinn sjálfur þarf handritshöfundur að
hlusta á aðra sem er fínt en líka svekkjandi.
Það tók miklu lengri tíma að skrifa þau
um það bil þrjátíu uppköst að handritinu en
það tók að skrifa bókina sjálfa. Þar við bæt-
ist að rithöfundar hafa ekki þá hlutlægni og
þá fjarlægð sem þarf til að geta skorið mis-
kunnarlaust niður. Þetta er í raun áþekkt því
og að reyna að vera sinn eigin tannlæknir;
maður sér ekki almennilega hvað maður er
að gera og reynir um leið að forðast sársauk-
ann. Vissulega eru á því undantekningar, en
almennt er rétt, að mínu mati, að rétta öðr-
um skáldsöguna og halda sér til hlés.“
Fullorðinslegri og betur
skrifuð en jafnhjartnæm
Þegar hér er komið í spjallinu átta ég mig á
því að fullmikill tími hefur farið í Einn dag,
þegar spjallið átti að snúast um Okkur. Þeg-
ar ég er búinn að biða Nicholls afsökunar á
því að pína hann til að svara svo mörgum
spurningum um Einn dag spyr ég hann
hvort það hafi ekki verið erfitt að þurfa sí-
fellt að vera að hugsa um Einn dag í fjögur
eða fimm ár samfleytt – að skrifa bókina og
tala um hana í viðtölum þegar hún kom út og
síðan skrifa handrit að kvikmyndinni og tala
um hana í viðtölum eftir að hún kom út.
„Það tók vissulega á og var einkar erfitt
að byrja á nýrri bók. Á endanum strækaði ég
á að tala meira um Einn dag, hreinsaði öll
eintök út af skrifstofu minni og settist við
nýja bók. Næsta árið fór síðan í að skrifa
bók sem ég gafst upp á vegna þess að alltaf
þegar ég las hana yfir heyrði ég raddir sem
sögðu „hún er ekki eins góð og Einn dagur“.
Mig langaði nefnilega ekki að skrifa daufa
eftirhermu af Dexter og Em [söguhetjunum í
Einum degi], mig langaði til að skrifa eitt-
hvað allt annað án þess þó að fæla frá les-
endur. Svo langaði mig til að skrifa betri
bók, enda er lítið vit í að skrifa ef manni
finnst maður ekki vera að bæta sig. Þetta
tók því allt sinn tíma.
Ég er sáttur við það að ég verði alltaf
þekktur fyrir það að hafa skrifað Einn dag,
það er hið besta mál, en ég er mjög stoltur
af nýju bókinni minni. Mér finnst hún full-
orðinslegri og betur skrifuð en jafn-
hjartnæm. Mér þætti það frábært ef ég yrði
framvegis þekktur fyrir það að vera höf-
undur Eins dags og Okkar.“
VIÐ EFTIR DAVID NICHOLLS
Örvænting er þrungin kímni
Breski metsöluhöfundurinn David Nicholls segist hafa einsett sér að hafa hafa nýja skáldsögu sína
eins fyndna og sér væri frekast unnt og líka mjög dapurlega, enda fari þetta tvennt einkar vel saman.
EPA
BRESKI RITHÖFUNDURINN DAVID NICHOLLS ER HEIMSÞEKKTUR METSÖLUHÖFUNDUR OG ÞÓTTI ÞVÍ FRÉTTNÆMT
ÞEGAR NÝ BÓK HANS, VIÐ, VAR TILNEFND TIL BOOKER-VERÐLAUNANNA BRESKU. HANN SEGIR AÐ ÞAÐ HAFI VERIÐ
SÉR MIKILS VIRÐI AÐ KOMAST Á TILNEFNINGALISTANN ÞÓTT HANN HAFI VISSULEGA VERIÐ MJÖG LANGUR.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
* Ég er ekki mjög klár í að skrifa hamingjurík sögulok,
en að því sögðu þá
skrifa ég ekki sorgleg
sögulok að mínu viti.