Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 12. APRÍL 2015
Önnur skáldsaga Snorra Hergils Kristjánssonar, Blood
Will Follow, er í hópi 45 bóka sem tilnefndar eru sem besta
skáldsaga ársins í furðusagnageiranum í Bretlandi. Um er
að ræða verðlaun sem kennd eru við furðusagnahöfundinn
David heitinn Gemmell og er flokkurinn, sem Snorri er til-
nefndur í, kenndur við fyrstu skáldsögu Gemmels, Leg-
end.
„Ég er afar ánægður með tilnefninguna, enda ægileg
nöfn á þessum lista. Nú þarf ég að treysta á að fólk kjósi
rétt,“ segir Snorri í samtali við Sunnudagsblað Morgun-
blaðsins en það eru lesendur sjálfir sem velja milli bók-
anna. Kosningin hófst í gær á heimasíðu verðlaunanna,
www.gemmellawards.com.
Þetta er í sjöunda sinn sem Gemmell-verðlaunin eru
veitt en tilgangur þeirra er að kynna og verðlauna höfunda
á sviði furðusagna sem aðstandendur segja afar mikilvægt
svið bókmennta og fjölbreytt. Blood Will Follow er önnur
bókin í fantasíutrílógíu Snorra um víkinga en fyrsta bókin
heitir Swords of Good Men. Þriðja bindið er væntanlegt í
sumar en það hefur hlotið nafnið Path of the Gods.
Ljósmynd/Gunnar Freyr Steinsson
SNORRI HERGILL KRISTJÁNSSON
Tilnefndur til virtra
furðusagnaverðlauna
Snorri Hergill Kristjánsson rithöfundur
býr og starfar í Bretlandi og skrifar
skáldsögur sínar á tungumáli innfæddra.
Nýr þingflokkur varð til á Alþingi í
kosningunum sem fram fóru í apríl
1995, þingflokkur Þjóðvaka.
Framboðið varð til skömmu áður
þegar Jóhanna Sigurðardóttir
sagði sig úr Alþýðuflokknum og
fékk fjóra menn kjörna: Jóhönnu,
Svanfríði Ingu Jónasdóttur, Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur og
Ágúst Einarsson.
Meðfylgjandi mynd var tekin á
fyrsta þingflokksfundi Þjóðvaka
en þá var Svanfríður kjörin for-
maður þingflokksins. Ágúst var
kjörinn varaformaður og Ásta
Ragnheiður ritari. Á þingflokks-
fundinum var einnig ákveðið að
varaþingmenn Þjóðvaka, þau
Mörður Árnason, Guðrún Árna-
dóttir, Lilja Á. Guðmundsdóttir og
Vilhjálmur Ingi Árnason, hefðu
setu- og tillögurétt á þingflokks-
fundum.
Þjóðvaki bauð ekki aftur fram til
Alþingis en þingflokkurinn sam-
einaðist þingflokki Alþýðuflokks-
ins undir merkjum þingflokks
jafnaðarmanna hálfu öðru ári síð-
ar. Þjóðvaki gekk formlega inn í
Samfylkinguna árið 2000 og varð
Jóhanna Sigurðardóttir síðar for-
maður þess flokks og forsætisráð-
herra landsins.
GAMLA FRÉTTIN
Þjóðvaki
á þing
Þingmenn Þjóðvaka vorið 1995: Svanfríður Inga Jónasdóttir, Jóhanna
Sigurðardóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Ágúst Einarsson.
Morgunblaðið/Þorkell
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Mark Ruffalo
kvikmyndaleikari
Arnar Eggert Thoroddsen
doktorsnemi í tónlistarfræðum
Rob Adler
leikur í Íslandsbankaauglýsingu
Kíktu við og njó
ttu þess að
skoða úrvalið h
já okkur
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Tonon Concept stóll
Hönnuður Martin Ballendat
Verð með viðarfótum kr. 79.900 stk.
Fást einnig með stálfótum.