Reykjalundur - 01.06.1972, Blaðsíða 10
að þessum málum starfa, koma í ljós í formi
betra líkamlegs og andlegs heilsufars við-
komandi aðila, aukinnar almennrar hæfni
þeirra til vinnu og aukinnar almennrar
færni á mörgum sviðum hins daglega lífs.
í lok þessarra lína um starfsemina að
Reykjalundi má nefna, að erlendis héfur
á liðnum árurn mjög tíðkazt að gefa öryrkj-
um, einkum þeim, sem skertar liafa hreyf-
ingar, kost á að stunda reiðmennsku. Til-
raun var gerð með þá þjónustu að Reykja-
lundi sl. sumar og hefur fengizt af því góð
reynsla, þegar þetta er ritað.
Byggingaframkvœmdi r
Byggingarframkvæmdir eru mjög tengd-
ar og samofnar allri sögu Vinnuheimilis
S.Í.B.S. að Reykjalundi og eru athyglisverð-
ar fyrir ýmsar sakir, ekki sízt hin fyrstu
drög og undirbúningur:
Berklasjúklingar stofna S.Í.B.S. á Vífil-
stöðum 23.-24. okt. 1938. Þegar í öðru hefti
Berklavarnar, blaðs S.I.B.S., 1940, birtist
grein eftir Odd Ólafsson, alþingismann,
fyrrv. yfirlækni Reykjalundar, um þörf
„vinnuhæla“ fyrir berklaveika. Árið eftir
setur stjórn S.I.B.S. sérstaka vinnuheimilis-
10
REYKJALUNDUR