Reykjalundur - 01.06.1972, Side 15
VIÐTAL VIÐ
FRIÐRIK SVEINSSON
HÉRAÐSLÆKNI Á REYKJALUNDI
Hvernig vísir
að heilsugæzlustöð
varð til
Heilsugæzlumál og skipan þeirra í fram-
tíðinni eru mjög á dagskrá um þessar mund-
ir. Þar sem segja má, að vísir að fyrstu
heilsugæzlustöð hér á landi sé kominn á
Reykjalundi, brá ritstjóri sér á fund Frið-
riks Sveinssonar héraðslæknis og lagði fyrir
hann nokkrar spurningar.
Héarðslœknishjónin A Reykjalundi,
frú Gunnþóra Þórðardótlir
og Friðrili Sveinsson.
Fyrir Alþingi liggur nýtt frumvarp til
laga um heilbrigðisþjónustu. Þar er m. a.
rætt um heilsugcezlustöðvar og lœknamið-
stöðvar.
Hver er munurinn d þessu tvennu?
Samkv. núgildandi læknaskipunarlögum
er kveðið á um læknamiðstöðvar annars
vegar og heilsuverndarstöðvar hins vegar,
sem geta starfað og starfa sem sjálfstæðar
stofnanir, sbr. Heilsuverndarstöð Reykja-
víkurborgar, Heilsuverndarstöð Akureyrar
o. s. frv.
í frumvarpi því sem nú liggur fyrir al-
þingi er hins vegar einungis rætt um heilsu-
gœzlustöðvar. Hvaða þjónustu heilsugæzlu-
stöð á að veita er skilgreint þannig í frum-
varpinu.
1. Almenn læknisþjónusta, vaktþjónusta
og vitjanir til sjúklinga.
2. Lækningarannsóknir.
3. Sérfræðileg þjónusta og tannlækning-
ar.
4. Heilsuvernd, sem skiptist í 14 sér-
greinar.
Heilsugæzlustöð samkv. nýja frumvarp-
inu er því nánast læknamiðstöð -j- heilsu-
verndarstöð, samkv. núgildandi lögum.
Hvernig komst þetta samstarf héraðs-
lœknisins og lœknanna d Reykjalundi d i
upphafi?
Álafosshérað var auglýst laust til um-
sóknar snemma árs 1966, við fráfall Ólafs
P. Jónssonar, héraðslæknis, þess mæta
manns og læknis.
REYKJALUNDUR
15