Reykjalundur - 01.06.1972, Side 17
Héraðslœknisbústaðurinn, fullbyggður 1971. Arkitekt Gunnl. Halldórsson.
í byrjun fluttumst við hjónin í sumar-
bústað hér skannnt frá, en mínir góðu
kollegar á Reykjalundi, Oddur og Haukur,
leyfðu mér afnot af læknastofum sínum.
Þannig byrjaði ég að sinna héraðinu frá
Reykjalundi og naut frá upphafi frábærrar
fyrirgreiðslu ráðamanna staðarins, sem ég
fæ seint fullþakkað.
Húsnæðisvandræði okkar hjóna leystust
og farsællega fyrir velvild ráðamanna
Reykjalundar. Við fengum til afnota eitt
starfsmannahúsanna að Reykjalundi.
Það kom aldrei til þess, að ég þyrfti á
læknastofu fyrirrennara míns í Hlégarði að
halda. Samningar hófust fljótlega milli full-
trúa hreppa læknishéraðsins annars vegar
og ráðamanna Reykjalundar hins vegar um
að héraðslæknirinn fengi fyrst um sinn að-
stöðu fyrir starfsemi sína að Reykjalundi,
þannig að um samstarf við læknana þar
gæti orðið að ræða eftir samkomulagi.
Þannig komst þetta samstarf á og um leið
fyrsti vísirinn að heilsugæzlustöð hér á
landi. í framhaldi af þessu er rétt að geta
þess, að þegar sýnt þótti að samstarfið
reyndist vel fyrir alla aðila, sem hlut áttu
að máli, þótti ástæða til þess að endurskoða
smíði hins nýja læknisbústaðar að Varmá.
Þegar grundvöllur var lagður að honum
var reiknað með því að héraðslæknirinn
starfaði áfram einn og hefði þar alla aðstöðu
fyrir starfsemi sína. Með samstarfinu við
Reykjalund var sá grundvöllur ekki lengur
fyrir hendi, enda höfðu þegar komið fram
raddir um, að sennilega væri þetta hús bet-
ur komið sem heimavistarhús fyrir Gagn-
fræðaskólann að Brúarlandi. Vel í sveit sett
sem slíkt, í næsta nágrenni skólans.
Hreppurinn keypti því læknisbústaðinn,
að fengnu leyfi lteilbrigðisyfirvalda og hann
er núna notaður sem heimavist.
Reykjalundur gaf aftur á rnóti lóð undir
læknisbústað héraðinu til handa í næsta ná-
grenni Reykjalundar. Þar hófust svo fram-
kvæmdir í júní 1970. Húsið teiknaði Gunn-
laugur Halldórsson, arkitekt. Þar er ein-
ungis gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði héraðs-
læknisins og fjölskyldu hans. 1. júlí 1971
fluttumst við í húsið fullfrágengið í liólf
og gólf. Hlutafélag hér í sveitinni tók að sér
REYKJALUNDUH
17