Reykjalundur - 01.06.1972, Side 40
lagði hönd að varð fallegt
og sérstaklega smekklegt.
Eðli Guðrúnar Einars-
dóttur var samofið djúpri
alvöru, einlægri og sterkri
trú á forsjónina, ríkri gleði
og gamansemi. Má ætla að
í því hafi hún líkst bróður
sínum „húmoristanum“
Steingrími Eyfjörð lækni
og fleiri ættmönnum sín-
um. Hún hafði sérlega
næma skynjun og tilfinn-
ingu fyrir umhverfinu,
samferðamönnunum og
allri fegurð.
Guðrún hugsaði mikið
um andleg mál, og las þeg-
ar hi'in þoldi, um þau efni.
Þar, sem annars staðar
greindi hún kjarnann frá
hisminu, þó fátt væri sagt.
Hún var í eðli sínu hlédræg
og ánægulegt var að tala við
liana eina; hún beið hér
aðeins byrjar eins og við
hin, því öll erum við gestir
hér á jörð.
Á þessurn sumardögum
hefur mynd og minningar
um Guðrúnu Einarsdóttur
verið í huga mínum, aftur
og aftur hafa liðin atvik
birzt með hugblæ er bæði
seiðir og saknar, hugboð
um að nú lifi hún það í
raun, sem öllu lofi er betra.
I júlí 1972.
Laufey Sigurðardóttir,
frá Torfufelli.
SAMVINNA GEÐVERNDAREÉLAGS
ÍSLANDS OG S.Í.B.S.
framhald af l)ls. 24
grannalöndum um einhvern hluta hennar,
heldur en að biðja þá um að annast alla
kennsluna. Þegar kominn er nægilegur hóp-
ur sjúkraiðjuþjálfara, sem vinnur með iiðru
sérlærðu starfsliði, geðlæknum, orkulækn-
um, sálfræðingum, félagsráðgjöfum, sjúkra-
iðjuþjálfum og hjúkrunarkonum, má gera
ráð fyrir að hægt verði að móta meðferðar-
og endurhæfingarsamfélag, sem verði mun
virkara og áhrifameira heldur en það, sem
við höfum í dag. Slíkt samfélag, ásamt auk-
inni félaglegri hjálp almennt, myndi vafa-
laust stuðla að verulega bættri nýtingu
þeirrar aðstöðu, sem þegar er fyrir hendi
og verið er að korna upp að Reykjalundi.
Meðal sameiginlegra verkefna Geðvernd-
arfélagsins og S.Í.B.S. er að stuðla að jrví að
skapa þetta samfélag, með því að ýta á eftir
tillögum að innlendri menntun nauðsyn-
legra starfskrafta.
LOKAORÐ
Samræmd alhliða endurhæfing hvers
kyns öryrkja með aðstoð Jress starfsliðs, sem
upp hefur verið talið og annarra, er vafa-
laust eðlilegasta, lýðræðislegasta og mann-
legasta vinnuaðferð, sem hægt er að leggja
til grundvallar læknis- og endurhæfingar-
starfi. Hún byggist að sjálfsögðu á Jrví, að
öryrkjarnir eða sjúklingarnir hafi fengið
nauðsynlega meðferð vegna sjúkdóma sinna
og missmíða hvort heldur, sem um er að
ræða andlega eða líkamlega kvilla, áður
en Jreir eru teknir til endurhæfingar í stofn-
un, sem annast slíka alhliða endurhæfingu.
Til Jress að auðvelda endurhæfinguna verð-
ur meðferðin að liafa verið veitt á jafnrétt-
is grundvelli og eftir lýðræðisreglum. Hafi
jæss verið gætt svo sem væntanlega mun
verða í framtíðinni, ætti endurhæfingar-
starfið að ganga enn betur. Samvinna Geð-
verndarfélags íslands og S.f.B.S. er tilorðin
í anda samræmdrar alhliða endurhæfingar.
Vonandi heldur Jressi samvinna áfram að
vaxa og dafna í sama anda.
40
REYKJALUNDUR