Reykjalundur - 01.06.1972, Side 54
SVEINN SÆMUNDSSON
blaðafulltrúi:
Skemmtileg
ferð til Legolands
Nokkru eftir að Grímur Engilberts, sá
maður sem gert hefur meira fyrir yngstu
lesendur þessa lauds eu flestir aðrir, tók við
ritstjórn Barna og unglingablaðsins Æsk-
unnar, tókst samstarf lians og Flugfélags ís-
lands um ýmsar getraunir í blaðinu, þar
sent fyrstu verðlaun voru utanlandsferðir.
Frá upphafi reyndist þessi þáttur starf-
seminnar vinsæll og sívaxandi þátttaka
barna og unglinga sýnir að þessir aldurs-
flokkar kunna vel að meta slík tækifæri til
ferðalaga, og þeirrar menntunar, sem
þeim eru samfara. Mest varð þátttakan samt
á sl. vetri, er verðlaunasamkeppni þessa
árs var hleypt af stokkunum, og nú stóðu
auk Æskunnar og Flugfélags íslands,
Reykjalundur og Lego Danmark að sam-
keppninni. Verðlaunin voru að vanda góð
og eftirsóknarverð. Tvenn fyrstu verðlaun
ferð með þotum Flugfélags Islands til
Kaupmannahafnar og þaðan með einka-
flugvél Lego fyrirtækisins til Billund á Sjá-
landi. Átta börn hlutu þar að auki Ltgo-
kassa frá Reykjalundi.
Yfir sex þúsund lausnir bárust, langflest-
ar réttar. Dregið var úr þeim á skrifstofu
S.I.B.S. í Reykjavík laust eftir miðjan maí
og jafnframt var verðlaunaferðin ákveðin
12. til 16. júní. Þegar lagt var upp frá
Reykjavík má segja að börn bæði sunnan
lands og norðan hafi átt sína fulltrúa um
54
REYKJALUNDUR