Reykjalundur - 01.06.1972, Side 60
Á fundi berklavarnasambanda Norður-
landa í maí 1971 var m. a. ákveðið að lialda
sérfund með fulltrúum sambandanna um
félagsmálalöggjöf landanna, og stöðu sam-
bandanna varðandi skjólstæðinga sína.
Var einnig ákveðið að þessi fundur yrði
haldinn í Danmörku í byrjun þessa árs.
Vegna nýrrar félagsmálalöggjafar í Dan-
mörku á þessu ári, var fundinum frestað
þar til í maí s.l., svo að tími gæfist til að
sjá og kyuna sér þær breytingar, sem þar
áttu sér stað.
Var svo þessi fundur haldinn í Dan-
mörku á hvíldarheimili danska sambands-
ins, Glamsbjerg, sem er skammt frá Odense.
Voru þar mættir fulltrúar allra samband-
anna og frá S.Í.B.S. mættu Oddur Ólafs-
son, Júlíus Baldvinsson, Hjörleifur Gunn-
arsson og undirritaður.
Fyrirlestrar voru haldnir um þau mál,
sem segja má að efst séu á dagskrá allra ör-
yrkjasambanda og þeirra annarra, sem láta
sig vandamál öryrkja varða.
Má nefna sem dæmi að lielztu dagskrár-
atriði voru Öryrkinn og vinnumarkaður
framtíðarinnar.
í því sambandi var aðallega rætt um at-
vinnumöguleika öryrkja til starla að loknu
námi eða endurhæfingu, og revnt að
skyggnast 5—10 ár fram í tímann.
Þá var rætt um framtíðarhorfur þess ör-
yrkja, sem ekki reynist hæfur til neinna
starfa eftir endurhæfingu eða skólagöngu,
og þau vaudamál sem þá verður að levsa.
í framhaldi af þessum umræðum var
haldinn fyrirlestur um aðgerðir þegar í
barnaskédum í Danmiirku til að koma í
veg fyrir örorku barna, þar sem hætta kynni
að vera á henni, þegar vinnualdri yrði náð.
Einnig var haldinn fyrirlestur um á
hvern hátt Danir væru nú að gera tilraun-
ir með að einfalda tryggingarkerfið hjá sér,
þannig að væntanlegir umsækjendur þyrftu
ekki að leita til margra staða um upplvsing-
ar eða fyrirgreiðslu á sínum bótarétti.
Eftir lýsingu þeirra sjálfra var í lneinasta
óefni komið, og urðu þeir, sem eftir ein-
hverjum bótum tryggingakerfisins, voru að
leita, að ganga frá einni skrifstofunni til
annarrar, þar til úrskurður fékkst.
Var þetta kerfi orðið svo þungt í vöfum
l'yrir alla aðila, að ráða varð bót á.
Niðurstaða fundarins í Glamsbjerg var
sú, að miklar endurbætur og framfarir
hefðu átt sér stað í félagsmálalöggjöf allra
landanna, þar sem m. a. öll læknisþjónusta
og endurhæfingarþjálfun hali veriðstórauk-
in með nýjum, auknum lagafyrirmælum.
Taldi fundurinn að verkefni berkla-
varnasambandanna, sem annarra öryrkja-
bandalaga, væri að fylgjast mjög náið með
þróun félagsmála, með það fyrst og fremst
fyrir augum, að auka áhrif samtakanna á
gerð þeirra laga, sem í framtíðinni verða
sett, þannig að möguleiki öryrkjans til
sjálfsbjargar verði að fullu nýttur, svo hann
njóti jafnréttis við aðra þjóðfélagsþegna.
Kjartan Guðnason.
60
REYKJALUNDUR